Alþýðublaðið - 25.02.1962, Page 4
Munur á Tryggva
og Tímanum í dag
RÚMLEGA ár er liðið, síð
an landhelgisdeilan við Breta
var leyst með þeim hætti, að
-fiest erlend blöð töldu stórsig
tir fyrir íslendinga. Kommún
istar og framsóknarmenn
gerðu þá pólitísku kórvillu að
^núast á móti þessari lausn
málsins. En þeir fengu engar
undirtektir hjá þ j ó ð i n n i.
Þeir urðu að hætta við mót
mælafundi, sem þeir ætluðu
að halda um allt land, því
allir hugsandi landsmenn
fögnuðu sigri og friði.
Samningar við Færevinga
og Þjóðverja sigldu í kjölfar
ið, eins og skýrt var frá í
upphafi, að verða mundi, Nú
hefur alþingi haft þá sanm
inga til staðfestingar og kom
þýzki smningurínn til um
ræðu í v i k u n n i, sem leið.
Hafði umræðan dregizt vik
um saman samkvæmt ósk
framsóknarmanna, enda varð
hún eftirminnileg.
Kommúnistar eru raunsæir
í stjórnmálum. Þeir skilja, að
:mál þetta er fyrir löngu tap
að fyrir dómstóli þjóðarinnar.
Þeir þ ö g ð u við umræðuna.
.Hins vegar virðast framsókn
-armenn ekki skilja þetta, og
"Þórarinn Þórarinsson hélt
hina furðulegustu ræðu um
-jnálið. Hellti hann svívirðing
Tim yfir Vestur Þjóðverja,
vangfærði staðreyndir máls
ins og heimtaði, að samning
irrinn yrði felldur.
Menn eru ýmsu vanir frá
JFramsóknarflokknum í utan
xíkismálum, þegar hann er í
stjórnarandstöðu. Þá er hann
reikandi og ábyrgðarlaus, og
fer með þessi viðkvæmustu
•mál þjóðarinnar eins og þau
væru þýðingarlaus hreppa
mál, sem hægt er að spila með
Á atkvæðaveiðum. Oft hefur
þetta haft -hrapalegar afleið
ingar fyrir fiokkinn. Eitt
<iæmi var það, að aðeins tveir
framsóknarmenn greiddu at
kvæði með inngöngu Islands
í Sameinuðu þjóðirnar. Ann
að dæmi gerðist, er dr. Krist
inn Guðmundsson, þeirra eig
in flokksmaður, var utanríkis
ráðherra. Hann sat vorið 1956
í forsæti NATO ráðsins í
París og gaf yfirlýsingar um
að styrkja þyrfti varnir
bandalagsins og andstöðu
•gegn kommúnisma. Sömu
dagana gekkst Hermann Jón
asson hér heima fyrir sam
þykkt um brottför hersins —
til að veiða á það atkvæði.
Þessi skollaleikur var bæði
dr. Kristni og þjóðinni til
skammar á alþjóðlegum vett
vangi. Þriðja dæmið er stuðn
ingur framsóknarmanna við
hlutleysishreyfingu kommún
isla með alls konar undir
skriftum og skrifum f Tíman
um síðustu 2—3 árin.
Er ekki kominn tími til að
Framsóknarflokkurinn taki
ákveðna afstöðu til utanríkis
mála og standi við hana?
Hvað segja fulltrúar á mið-
stjórnarfundi flokksins, sem
nú stendur yfir í Reykjavík?
Standa þeir á bak við þann
óvirðulega skollaleik, sem
Þórarinn lék á alþingi í vik
unni?
Ein furðulegasta kenning
Þórarins var sú, að Bretum
og Þjóðverjum hafi verið
fengið „stöðvunarvald“ á
frekari aðgerðir íslendinga,
af því að deilum varðandi út
víkkun landhelgi skal vísa til
Alþjóða dómstólsins í Haag.
íslendingar hafa hingað til
alltaf fært út fiskveiðilögsögu
sína í samræmi við alþjóðalög
og einmitt farið þar í slóð,
sem Alþjóða dómstóllinn hef
ur rult, eins og 1951. Við höf
um ekkert að óttast í því
sambandi.
Annars er fróðlegt að íhuga
þetta nánar. Þegar haldið var
hátíðlegt 1000 ára afmæli al
þingis 1930, vildu íslendingar
gera eitthvað á alþjóðlegum
vettvangir sem vekti athygli
og traust á þjóðinni. 'Var valin
sú leið að gera gerðardóms
samninga við öll hin Norður
löndin, og voru þeir staðfestir
af alþingi á hátíðarfundi á
Lögbergi.
Efni þessara samninga var,
að íslendingar og Norður
landaþjóðirnar sömdu um að
leysa deilumál sín friðsam
legS og lúta úrskurði dóm
stólsins í Haag, hvenær sem
ekki semdist um málin. Þá
sagði Tryggvi Þórhallsson á
Lögbergi; „Það mun engum
blandast hugur um, að vel
fari á þvf á þúsund ára af
mæli íslenzka ríkisins að und
irrita samninga um gerðar
dóm og aévinlega friðsamleg
úrslit mála milli okkar og
frændþjóðanna“.
Og Jón Baldvinsson sagði:
„Samningar þeir, sem fyrir
lítilli stundu voru undirritað
ir hér af fulltrúum Norður
landaþjóðanna, eru f rauninni
ekkert annað en það að láta
í ljós og festa á pappírnum
þá hugsun, sem er ríkust með
okkur íslendingum, að útkljá
á friðsamlegan hátt öll deilu
mál . .
Hvílíkur munur á reisn
Tryggva Þórhallssonar eða
tækifæris stefnuleysi Þórar
ins Þórarinssonar nú, þrjátíu
árum síðar! Hvílíkur munur
á víðsýni Tryggva og Jónas
ar, er þeir börðust fyrir að
ísland gengi í Þjóðabandalag
ið, eða hálfkommúnistískum
skrifum Tímans um utanrík
ismál nú á dögum!
nefnist erindi, sem Júlíus Guðmundsson
flytur í Aðvent-kirkjunni í dag, sunnu-
daginn 25. febr. kl. 5 e. h.
Blandaður kór og tvöfaldur
karlakvartett syngja.
Allir velkomnir.
Kvi 'kmyrh dír
Hafrji.rbíó: Hús hinna f«r
dæmdu — mynd gerð eftir
sögu Poe — ógurleg;, en afar
vel gerð og leikin.
Bæjarbíó Hafnarfirði: Saga
unga hermannsins — ljóðrænt
listaverk.
Shanna Prokovenko leikur
annað aðalhlutverkið í „Saga
unga hermannsins.“
Edgar Allan Poe var mikið
skáld, en tarjálsemin leyndist
í honum alla ævi og litaði verk
hans hræðilegum skuggum.
Myndin, sem HAFNARBÍÓ
•sýnir nú, er gerð eftir sögu
hans einni, er segir frá systkin
um, er búa saman í gömlu
Frh. á 11. síðu.
■ ■ H®
Utsvor
1962
Borgarstjórn Reykjavíkur 'hefur ákveðið skv.
venju að innheimta fyrirfram upp í útsvör 1962, sem
svarar helmingi útsvara hvers gjáldanda árið 1961.
Fyrirframgreiðsluna ber að greiða með 4 afborg-
unum og eru gjalddagar 1. marz, 1. apríl, 1. maí og
1. júní, sem næst 12 Vz af útsvari 1961 hverju sinni,
þó svo að greiðslur standi jafnan á heilum eða hálf-
um tug króna.
Reykjavík, 24. febrúar 1962.
Borgarritarinn.
4 25. fefbr. 1962 — Alþýðublaðið