Alþýðublaðið - 15.03.1962, Side 8
í Ástralíu ræða menn um
það, hvort svörtu svanirnir
þar séu skaðræðisgripir eða
ekki. Fyrstu landnemarnir,
sem til landsins komu, litu á
svörtu svanina sem einhvers
konar furðudýr, því þeir
voru vanir því, að svanir
væru hvítir. Æ síðan hefur
svörtu svönunum í Ástralíu
verið sýnd margs konar eft-
Irtekt og jafnvel virðing.
Þeir eru í skjaldarmerki Vest
ur-Ástralíu, þeir hafa kom-
izt á frímerki landsins, skáld-
in hafa sungið þeim lof, og
ýmsir staðir í landinu hafa
hlotið nöfn eftir þeim.
En þessi forna virðing
svörtu svananna fer nú
minnkandi hjá sumum. Jarð-
eigendur kvarta undan því,
að svanirnir eti mýrargrasið,
sem þeir fæða búféð með, og
1 WMWMiMWWWWMM
EOBERT WAGNER
borgarstjóri í New
Yorb befur athugað
Iög allra þeirra klúbba
og félaga, sem hann er
meðlimur í, en þau eru
alls 31, til þess að
ganga úr skugga um
það, hvort nokkrir
kynþáttahleypidómar
séu I löffum þeirra. —
Hefur borgarstjórinn
þegar sagt sig úr nokkr
um félögum, t. d. „New
York Athletic Club”,
sem útilokar „vissa
hópa þegnanna” eins
og Wagner orðar það.
Hann hefur lika sagt
sig úr hinum fræga
klúbb „The Elks”, þar
sem hann var í stjórn.
Orsökin var lagagrein:
„Aðeins hvítir menn
mega vera í félaginu”.
AMMMMMMMMMMMW
fiskveiðimennirnir halda því
fram, að svanirnir séu ábyrg-
ir fyrir dauða fiska í stórum
stíl, því þeir éti fæði, sem
fiskamir myndu annars lifa
á. Svörtu svönunum hefur
fjölgað svo mjög í seinni tíð,
að þeir hafa beinlínis valdið
ýmiskonar tjóni á einstökum
svæðum í vesturhluta Vic-
toriuríkis.
Af þessum ástæðum var í
fyrra leyft að veiða svanina
á sérstökum tíma, og er þetta
í fyrsta sinn, sem það er leyft
síðan 1909.
Á landnámstíma Ástralíu
var litið á svaninn sem góðan
veiðifugl, en nú hefur hann
verið friðaður svo lengi, að
menn voru í fyrra alveg bún-
ir að gleyma því, að hann
væri góður til matar. Nú álíta
yfirvöldin að það muni á
engan hátt skaða stofn fugls-
ins að leyfa að veiða hann á-
kveðinn tíma á ári hverju, og
má vel vera, að í framtíðinni
verði gefið leyfi í öðrum fylkj
um en Victoríu til að veiða
hann á ákveðnum tíma á
hverju ári. Það leyfi fer eftir
því, hvort Ástralíumenn
koma sér saman um það,
hvprt svörtu svanirnir eru
skaðlegir fuglar eða ekki.
Ný skáldsaga hefur verið
bönnuð í Suður-Afriku. Hef-
ur samband rithöfunda þar
syðra mótmælt því til innan-
ríkisráðherrans. Skáldsaga
þessi nefnist „Heimur hins
óþekkta manns” (The world
of a Stranger). Fjallar hún
um vináttu hvíts manns og
svarts í Jóhennesarborg og
er skrifuð af einni frægustu
skáldkonu Suður-Afríku, Na-
dine Gordimer, sem nýlega
hlaut 100 þús. kr. bókmennta-
verðlaun í London.
Suður-afrískir rithöfundar
urðu svo gramir yfir banni
stjórnarinnar, að samtök
þeirra í Jóhannesarborg og
Höfðaborg fóru strax að ræða
um myndun sameiginlegrar
nefndar, sem skyldi ganga á
fund innanríkisráðherrans og
mótmæla þessari skerðingu á
prentfrelsi í landinu. Einn rit
höfundanna sagði þetta um
bókabannið: Það lítur úr fyr-
ir, að ritskoðunin sé að leit-
ast við að gera land okkar
hlægilegt í augum annarra
þjóða.
En það eru ekki aðeins rit-
höfundar, sem horfa með ó-
hug á vaxandi fjölda bóka,
sem bannaður er. Á síðustu
fjórum árum hefur tala bann-
HJONABA
IRYGGIR FARSÆL HJONABOND
Hjónabandsvél er það allra
nýjasta. Elektrónísk reikni-
vél, sem kemur hinum réttu
saman í það heilaga eftir upp
lýsingum, sem vélin hefur
áður verið „matreidd” með.
Það er í New York, sem farið
er að nota þennan nýja reikni
vélheila. Hjónabandsmiðlun-
arskrifstofa nokkur fékk sér
reiknihella í þessum tilgangi,
og viðskiptin hafa aldrei
gengið betur en síðan hún
tók nýju vélina í notkun. Það
sem mest er um vert er þó
að jafnmörg hjónabönd hafa
aldrei enzt £ sögu skrifstof-
unnar og síðan vélin var tek-
in í notkun.
Forstjóri fyrirtækisins, dr.
Eric Ross segir, að af þeim
500 hjónaböndum, sem stofn-
að hafi verið til samkvæmt
ábendingum vélarinnar síðan
hún var tekin í notkun ár-
ið 1956, hafi aðeins eitt þeirra
endað með hjónaskilnaði. —
Þess skal getið, að einu hjóna
bandi af hverjum fjórum í
Bandaríkjunum lýkur með
skilnaði.
Þótt fullkomin sé, er ekki
hægt að ábyrgjast neitt með
algerri vissu, segir forstjór-
inn. Vísindin hafa hér feng-
ið áorkað miklum framför-
um, en ekki nægilegum til
þess að við getum ábyrgzt að
hjónabandið haldist ævilangt,
en betri árangur en nú síð-
ustu árin, eftir að við tókum
vélina í notkun, höfum við
aldrei náð.
Áður en upplýsingariiar
eru settar í vélina er tilvon-
andi hjónabandsaðili . spurð-
ur spjörunum úr af sálfræð-
ingi og öll svörin lögð niður
á númerað kort. Kortið er
svo sett í vélina og er þar
ásamt 3000 konum, sem eru
í leit að eiginmanni.
Þá eru tilvonandi eigin-
menn einnig spurðir spjörun-
um úr á svipaðan hátt og bú-
in til kort yfir þá, sem sett
eru í vélina með öllum upp-
lýsingunum.
Eftir hálfan mánuð hefur
fyrirtækið svo nafn á þeirri
konu, sem virðist hafa mikið
eða mest sameiginlegt með
einhverjum manni, sem líka
er á vegum skrifstofunnar og
þau eru þá leidd saman. —
Flestir, sem til þessarar miðl-
unarskrifstofu koma, eru vel
menntaðir og margir eru frá-
skildir og vilja ekki hætta á
neitt í næsta hjónabandi..
Meðalaldur fólksins var 35
ár. Eitt sinn leiddi vélin sam-
an áttræða konu og áttatíu
og eins árs karl og þau lifa
enn saman í hamingjusömu
hjónabandi.
Og hvað er það svo, sem
heldur hjónabandinu saman
og gerir það svo varanlegt?
Báðir aðilar verða að lað-
ast hver að öðrum, bæði til-
finningalega og kynferðilega,
og þeir verða að geta rætt
saman um öll áhugamál sín.
Þeir verða einnig, að áliti dr.
Rose, að standa á svipuðu
menntunarstigi, hafa alizt
upp við svipaðan efnahag og
æskilegt er, að þau séu álíka
fríð og gjörvuleg.
— Aðalvandamál margra
hjónabanda. er það, að þegar
hjónabandið hefur varað
nokkurn tíma hætta hjónin
að geta talað vel og innilega
saman.
færðra bóka orðið
meiri né minni en 38
þrjú þúsund og átta hr
—, og er það um 1000
bækur en állar þær,
bannaðar voru frá 19
1956. Verk margra 1
frægra rithöfunda stai
bannlistanum, t. d. Hí
ways, Zola, Tolstoy,
rence, Sartre, og Be
NADINE GORDIM
Russel. Flestar hinna
uðu bóka eru samt ui
þáttavandamál.
Ekki er til birtur
einn listi yfir þær bæki
bannaðar hafa verið, e
hvoru eru birt nöfn yí
nýju bækur, sem ba
skulu.
Þeir munu þess vegr
margir, sem eiga ba
bækur í bókahillum
frá fyrri tíð. Það er þ
hættulaust, því komi:
upp, að menn hafi vís
í fórum sínum bannaði
ur, geta menn átt von
að því 100 þús króna í
fangelsi allt til fimm
í Suður-Afríku
g 15. marz 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ