Alþýðublaðið - 28.03.1962, Síða 3

Alþýðublaðið - 28.03.1962, Síða 3
Algeirsborg, París og Rabat, 27. marz: — ALLSHERJAR verkfall ríkti enn í dag í Algeirsborg, en bað er gert til þess að minnast þeirra manna, er féiiu í átökun- um síðustu daga.' Á yfirborðinu var allt með kyrrum kjörum, en spennan cr ennþá mikil. Nú er talið, að yfir 50 menn hafi fallið í álökunum í gær. í morgun bar fólk blóm og blómsveiga á staði, þar sem barizt var, og á sveigana letrað: „Þeir féllu fyrir Frakk- Iand”. í Óran virtust foringjar OAS enn ekki hafa náð sér eftir áfall- ið, sem handtaka Jouhaud, fyrr- verandi hershöfðingja hafði í för með sér, en hann var fluttur til Parísar og verður stefnt fyrir sér- stakan lierrétt eftir viku. Eini sögulegi atburðurinn í dag var árás OAS með sprengjuvörp- um á hverfi Serkja í Óran, en tal- ið er, að fimm Serkir hafi fallið og 20 særzt. Hverfinu var strax lokað. Sagt er, að Serkir liafi sýnt mikla stillingu þrátt fyrir ögran- ir OAS-samtakanna. Um mannfall í Algeirsborg er ekki vitað enn. í kvöld var opin- berlega tilkynnt, að náðst hefði í fremsta leiðtoga OAS í Vestur- Alsír, sjóliðsforingjann Guillau- SAMBÚÐIN ERFIÐARI MOSKVA: VASILY Kuznet- sov, aðstoðarutanríkisráð- herra Rússa, ræddi á þriðju- dag við sendiherra Frakka í Moskvu, sem nú hefur verið kallaður heim vegna viður kenningar Rússa á FLN- stjórninni. Kuznetsov kvað ákvörðun Frakka mundu hafa í för með sér mikla erf iðleika I sambúð ríkjanna, en hún væri ekki of góð fyr- ir. Hann lagði áherzlu á, að viðurkcnningin væri ekki gerð af fjandskap ‘við frönsku stjórnina. me, og liann hefði verið fluttur til Parísar. í dag var tilkynnt í Rabat, að Abdel Bahman Fares, fyrrum for seti landþingsins í Alsír, muni j gegna embætti forsætisráðherrarí \ ráðuneyti 12 manna, sem á að fara með völd í Alsír þar til þjóðarat- kvæðagreiðsla hefur farið fram. Bráðabirgðastjórn þessi á m. a. að sjá um það, að vopnahléssamn- ingarnir verði haldnir og ganga frá því þjóðskipulagi, sem verður á fót sett eftir atkvæðagreiðsl- una. Þá á bráðabirgðastjórnin að vera Fouchet, stjórnarfulltrúa Frakka, til ráðuneytis. Fares var í frönsku fangelsi, en sleppt úr haldi á dögunum um leið og Ben Bella og fleiri FLN-foringjar. Fares ræddi í dag við frétta- menn og sagði, að aðalatriðið væri að koma á friði eftir margra ára styrjöld og tryggja öllum íbúum landsins lífshamingju. í frétt frá franska dómsmála- ráðuneytinu segir, að í málaferl- unum gegn Jouhaud hershöfð- ingja, en mál hans kemur fyrir hinn sórstaka herdómstól eftir nokkra daga, verði bæði tekið til greina þáttur hans í hinni mis- heppnuðu byltingu í Alsír í fyrra og auk þess störf hans sem næst- æðsti maður OAS-samtakanna að undanförnu. Jouhaud hefur áður verið dæmdur til dauða, og þegar hinrf æðsti herdómstóll hefur fjallað um mál hans verður dómn um ekki áfrýjað. Hinir þrír hers- höfðingjarnir, sem ásamt Jouhaud voru forsprakkar byltingarinnar, verður stefnt fyrir lægri herdóm- stól. Stjórnarfulltrúi Frakka í Alsír, Christian Fouchet, varaði í kvöld evrópska menn í Alsír við sam- blástri með OAS-morðingjunum, sem hvatt hefðu þá til bardaga gegn öryggissveitum í' Algeirs- borg í dag. Stjórnarfulltrúinn lagði á það á- herzlu, að sú tilraun OAS að koma í veg fyrir vopnahlé í Alsír væri dæmd til að mistakast, Fouchet • skoraði ákaft á evr- ópska menn og sagði, að það væri sitthvað að vera ættjarðarvinur og halda fast í franskt Alsír, öðru máli gegndi að ganga í lið með morðvörgum. GEIMSKIP Á VILLI- GÖTUM RUSSINN lentur' á tungl- inu? Nei, ekki alveg. Hins vegar er hér um að ræða kvikmynd, sem segir frá rússneskmn geimförum, sem ætla að þeir séu komnir til Venusar, þegar sannleikur- inn er sá, að þeir villtust Iítillega af leið og lentu á brezku eyjunni Sylt! Þetta veldur auðvitað margskonar misskilningi og mörgum skop legum atvikum, ekki sízt þeg ar geimfararnir byrja að sjá kvenfólk, sem að vísu minnir þá á Venus en þó ekki þann Venus, sem þeir þykjast standa á. — Kvik- myndin er þýzk — það er að segja vestur-þýzk. MtHMWMHUMtWMHmHM. Rusk, Gromyko og Home halda heim VINOGRADOV, sendiherra LONDON og GENF 27. marz: Utanríkisráðherra Breta, Ilome lá varður kom í dag til Lundúna frá Genf þar sem hann hefur setið á afvopnunarráðstefnunni. Hann sagði, að ekki væri mikill grund vallarmunur á tillögum Bandaríkj anna og Sovétríkíanna um afvopn un, en Sovétríkin vildu framkvæma algera afvopnun á fjórum árum og Bandaríkjastjórn á níu. Home lávarður kvaðst sannfærð ur um, að ef góður vilji væri fyrir hendi mætti brúa bilið á milli þess ara tillagna. Rusk utanríkisráðherra Banda- ríkjanna er á leið heim til Was hington frá Genf. Hann sagði í ræðu í morgun, að utanríkisráð herrarnir hefðu náð misjafnlega /miklum árangri í þrem helztu j markmiðum þeirra með för þeirra j til Genfar. Hann kvað markmiðin hafa veriö I þessi; :Að undirbúa jarðveginn fyrir viðræður um afvopnun, að koma sér saman um vinnutilhögun og skiptast, á skoðunum um gruna vallarsjónarmið ríkisstjórna þeirra Hann sagði, að ekki þyrfti nema slysni eða óheppni til að hleypa öllu í bál og brand, og ef áfram héldi sem nú horfði í vígbúnaðu. kapphlaupinu hefðu stórveldin ir að ráða helmingi öflugri dráps tækjum árið 1966. Groinyko, utanríkisráðherra So- vétrikjanna, fer heim til Moskvu á föstudaginn, og eftir brotit'ór utanríkisráðherra þríveldanna munu fleiri utanríkisráðherrar hugsa sér til hreyfings. Afvopn unarráðstefnan heldur hins vegar áfram. Rusk sagði í ræðu sinni, að mikið gagn yrði af ráðstefnunni ef hún kæmi sér saman um þessav a'ðgerðir: 1. Stöðva hið síaukna vígbúnaðarkapplilaup. 2. Koma í veg fyrir að fleiri lönd fái kjarn orkuvopn. 3. Aðgerðir til þess að minnka styrjaldarhættuna. Rusk lagði til, að settar yrðu á fót nefndir, sem skuli fjalla um ýmis vandamál, t.d. að fjarlægja hættuna á sýklahernaði, hernaði með kjarnorkuvopnum og flug skeytum, allt undir öruggu alþjóða eftirliti. Rusk lagði áherzlu á, að vinna yrði að lausn vandamálanna og byrjunin hafi verið góð. í sameiginlegn yfirlýsingu Rusks og Gromykos sem gefin var út í morgun segir, a„ viðræður þeirr i um Berlínarmálið hafi verið gagn legar og opinskáar og árangur hefði náðst, einkum hvað varðaði að gera grein fyrir því, á hvaða sviðum samkomulag væri ríkjandi og hvar ekki. Lélegur afli Sauðárkróki 27. marz AFLI bátanna hefur veriff lé- legur, og gæftir hafa veriff stirðar Bátarnir hafa veriff á netaveiðum sl. hálfan mánuff en veiffa sáralítiff Héðan hafa róið tveir stærri bátar. Annar þeirra er nú á neta veiðum, en hinn er faránn til Keflavíkur þar sem hann mun hefja róðra. — M.B. ALÞYÐUBLAÐIÐ - 28. marz 1962 3

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.