Alþýðublaðið - 14.04.1962, Síða 10
Ritstjóri: ÖRN EIÐSSON
- og fleiri ágæt afrek voru unnin
á mótinu í fyrrakvöld
Við birtwm Jiessa mynd frá Hlíðarfjalli fyrir ofan Akureyri í til-
efni fréttarinnar hér fyrir neðan. Myndin sýnir m. a. traktor, sem
notaðu verður sem hlutverki skíðalyftu á Landsmótinu, sem hefst
á þriðjudaginn.
Takið þátt í skíðalands-
göngunni um helgina
Skíðalandsgöngunni lýkur
hinn 22. apríl eða á 2. í páskum.
Vitað er að þátttaka hefur verið
líijög mikil á Vesturlandi, Norð-
ifrlandi og Austurlandi, og líefur
4 .
Beztu afrekin
í fyrra og
frá upphafi
í sambandi við met Guð-
mundar Gíslasonar í 400 m.
fjórsundi, birtum við hér
beztu afrek í þeirri grein,
bæði í fyrra og einnig\ frá
upphafi. Afrekin eru unn-
in í 50 m. laug.
Beztir í fyrra:
Stickles, USA 4:55,6
Trenowan, USA 5:01,5
Robie, USA 5:04,4
Kirkby, USA 5:06,3
Utley, USA 5:12,3
Rice, USA 5:19,0
Lundin, Svíþj. 5:20,4
Vaahtoranta, Finnl. 5:22,0
Beztir frá upphafi:
Stiekles, USA 4:55,6, 1961
Trenowan, USA 5:01,5, 1961
Robie, USA, 5:04,4 1961 7
Rounsavelle, USÁ 5:04,5, 60
Harrison, USA 5:05,3 1960
Henrich, USA, 5:05,4 1960
Kirkby, USA 5:06,3 1961
Biack, Eng. 5:08,3 1959
House, USA 5:09,3 1960
Utley, USA 5:12,3 1961
■»
þátttakan í sumum kaupstöðum
komizt yfir 50%.
Á Suðvesturlandi hefur þátt-
taka verið lítil en með snjókom-
unni í vikunni hefur útlitið batn
að. í fyrradag munu hafa geng-
ið 1200 skólanemendur í Rvík.
Einnig hefur þátttaka skólanem-
enda í Kópavogi, Hafnarfirði og
í Hveragerði verið mjög mikil.
Allar horfur eru á góðu færi
um páskana og vill landsnefnd-
in hvetja Reykvíkinga til þess að
ganga 4 km. í Landsgöngunni yf
ir hátíðarnar.
Allar birgðir af merkjum göng
unnar eru þrotnar hjá nefnd-
inni og beinir hún þeim tilmæl-
um til skíðanefnda úti á landi
að senda þegar óseld merki, ef
útlit er fyrir að þau seljist ekki
fyrir lok göngunnar.
Sundráð Re^’kjavíkur gekkst
fyrir afmælismóti í fyrrakvöld í
tilefni 25 ára afmælis Sund-
hallarinnar í sl. mánuði. Einar
Hjartarson leikstjóri setti mótið
með nokkrum orðum og þakkaði
starfsfólki og forstjóra Sund-
hallarinnar fyrir ágætt samstarf
við sundfólk á undanförnum 25
árum, en að því búnu hófst
keppnin.
★ Frábært afrek Guðmundar.
Fyrsta grein kvöldsins var 400
m. fjórsund karla, og það er í
fyrsta sinn, sem keppt er í þeirri
grein hér á landi, en hún er mjög
erfið og ekki nema fyrir frá-
bæra sundmenn. Guðmundur1
synti einn og gerði það vel og
rösklega, enda var tíminn —
5:16,3 mín. nýtt Norðurlandainet.
Bezti tími, sem Norðurlandabúi
hafði náð í þessari grein var 5:-
?0,4 mín., en það afrek vann Sví-
inn Jan Lundin. Ekki voru menn
á eitt sáttir um það, hvort það
afrek var unnið í 25 eða 50 m.
laug, en við munum veita upp-
lýsingar um það bráðlega.
* Einnig met í 50 m. skrið-
sundi.
Guðmundur sigraði með yfir-
burðum í 50 m. skriðsundi og
setti nýtt met, 26,0 sek. Gamla
metið átti hann sjálfur, en það
var 26,2. Það met hafði hann áð-
ur jafnað fimm sinnum! Þriðja
einstaklingsgreinin, sem hann
tók þátt í, var 100 m. baksund og
hann náði mjög góðum tíma —
1:07,6 mín. aðeins 2/10 úr sek.
lakara en metið. Loks synti
Guðmundur baksundssprettinn í
sveit ÍR í boðsundinu og gerði
það með sóma. Allt útlit er fyrir,
að Guðmundur setji 10 met
fimmta árið í röð; en á undan-
förnum fjórum árum hefur hann
sett 10 met árlega.
★ Hörður jafnaði metið.
Keppnin í 100 m. bringusundi
var skemmtileg og sund Harðar
B. Finnssonar, sem sigraði örugg-
Guðmundur Gíslason, ÍR
lega, var stórglæsilegt. Hann
jafnaði hið ágæta met, sem hann
setti á ÍR-mótinu í síðasta mán-
uði, synti á 1:11,9 mín. Tími
Árna Þ. Kristjánssonar er einn-
ig ágætur. Hörður var annar í
100 m. baksundi á mjög góðum
tíma, hans bezta.
★ Hrafnhildur tvöfaldur sig-
úrvegari.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir
og Margrét Óskarsdóttir liáðu
harða baráttu í 50 m. skriðsundi,
eij Hrafnhildur vann nokkuð ör
ugglega á góðum tima, 30,3 sek.,
aðeins 1 sek. lakara en met Ág-
ústu. Tími Margrétar er einr.ig
ágætur. í 50 m. baksundi synti
Hrafnhildur mjög vel og var að
| eins 1/10 . úr sek. frá meti Ág-
I ústu. Margréti hlekktist á í snún-
ingnum og tapaði 1 til 2 sek., en
synti vel.
-*• Ágætt boðsundsmet ÍBK.
Fjórar - stúlkur frá Keflavík
settu ágætt met í 4x50 m. bringu
sundi, bættu elzta staðfesta sund
metið verulega, syntu á 2:53,7
sek. Gamla metið átti sveitÁr-
manns frá 1949, en það var 2:56,8
min. Sveit SH synti einnig á betri
tíma en gamla metið.
TVÖ ÐRENGJAMET
Ágætur árangur náðist í ung-
lingagreinum, m. a. voru sett tvö
góð drengjamet. Þar var að verki
Guðmundur Þ. Harðarson, hin
unga og uppi-ennandi stjarna
Ægis. Hann fékk tímann 2:51,2
mín. í 200 m. bringusundi ung-
linga, sem er 1/10 úr sek. betri
timi en drengjamet Ólafs B.
Ólafssonar, sem sigraði í sund-
inu. Drengir eru þeir kallaðir, sem
verða 16 ára á keppnisárinu en
unglingar 18 ára. Sveit Ægis
setti drengjamet í 3x50 m. þrí-
sundi og bætti gamla metið, sem
sveit Ægis átti einnig, um 2,3 sek.
Framhald á 11. síðu.
Þessí mynd var tekin á af
mælismóti Sundhallarinnar í
fyrrakvöld og sýnir viðbragð
ið í 100 m. bringusundi karla
Frá hægri sjást Páll Krist
jánsson SH, Hörður B. Finns
son ÍR, Árni Þ. Kristjánsson
SH, og Erlingur Þ. Jóhanns
son KR.tLjósm.: R.E.
Real Madrid sigrað: Standard
Liege 2:0 í síðari leik félaganna í
undanúrslitum Evrópubikarkeppn-
innar, sem fram fór í Liége í
fyrrakváíd. Puskas og Del Sol
skoruðu mörkin. Þetta er í 6. sinn
sem Real kemst í úrslit keppninnar
Víðavangshlaup
Víðavangshlaup Hafnarfjarð-
ar 1962 fer fram á Sumardaginn
fyrsta við Barnaskólann og hefst
kl. 15. Keppt verður í 3 aldurs-
flokkum, 17 ára og eldri, 14-16
ára og 13 ára og yngri. Keppt verð
ur um farandgripi í hverjum
flokki. Væntanlegir þátttakendur
tilkynni þátttöku í Bókabúð Oli-
vers Steins hið fyrsta.
J.0 14. apríl 1962 - ALÞYÐUBLAÐIÐ
V }; !.;.;•'' a ■;. M. .