Alþýðublaðið - 25.04.1962, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 25.04.1962, Blaðsíða 2
Wtstjórar: Gisli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — AðstoCarritstjóri: Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími 14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu •—10. — Áskriftargjaid kr. 55.00 á mánuði. í lausasölu kr. 3.00 eint. Útgef- andi: Aiþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson. Framboðslistar REYKVÍKINGAR Oiafa nú séð framboðslista flokkanna við borgarstjórnarkosningarnar í næsta mánuði og bíða þess með nokkurri forvitni, hvort lagður verði fram á elleftu stundu nýr listi. Hvað sem því líður er nú þegar augljóst, að mikil breyting verður á borgarstjórninni, og má telja víst, að meirihluti þeirra borgarfulltrúa, sem ná kosningu, verði nýir menn. Mestum tíðindum hefur þótt sæta, að Sjálfstæðis flokkurinn skyldi gera stórfellda hreinsun í liði sínu. Flökkurinn vann 1958 einhvern mesta kosn- ingasigur, sem íslenzk stjórnmálasaga‘getur um, fékk 20 000 af 35 000 atkvæðum í höfuðborginni og , 10 af 15 bæjarfulltrúum. Kjörtímabilið er nú liðið og við röðun á listann í ár er 6 af hinum 10 sigur- sælu fulltrúum kastað fyrir borð. Með þessu hefur Sjálfstæðisflokkurinn fellt dóm yfir sjálfum sér — samþykkt vantraust á fráfarandi bæjarstjórn. Það er vissulega eðlilegt að breyta um menn í lýðræðis- landi. Það gerist, þegar fulltrúar óska ekki eftir að vera áfram, eins og nú gerist hjá Alþýðuflokknum og Framsókn. En sé fulltrúum vikið frá gegn vilja þeirra, hlýtur að vera um að ræða vantraust. Borgarbúar geta mikið lært af þessum viðburð- •um innan Sjálfstæðisflokksins. í fyrsta lagi er aug ljóst, að það er ekki farsælt fyrir borgina að láta flokkinn fá svo mikinn meirihluta, sem 1958. Eftir þann sterka meirihluta liggur ekkert minnismerki — annað en hin sögulega hreinsun innan Sjálfstæð isflokksins að kjörtímabili loltnu. Borgararnir sjá, að það er nauðsynlegt að veita þeim meirihluta, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft, sterkt að- ■hald með því að kjósa einnig öfluga andstöðu inn- an borgarstjómar. Komimúnistar hafa verið stærsti andstöðuflokkur innan bæjarstjórnarinnar. Þeir hafa í vor gert víð- xækar tilraunir til að mynda einhvers konar barida lag utan um sig — til að losna við að berjast undir eigin nafni. Þetta hefur ekki tekizt. Enginn annar flokkur hefur viljað starfa með kommúnistum, eng in samtök lánað þeim nafn sitt. Kornmúnistar standa því einangraðir, en logandi ósamkomulag innan flokksins. Var að lokum sætzt á að hafa list ann svo til óbreyttan í efstu sætunum, og mun hrifning vera lítil meðal stuðningsmanna. Kosningabaráttan hefst nú fyrir alvöru. Reykvík ingar hafa í seinni tíð fengið hraðvaxandi áhuga á ýtmsum borgarmálum, og munu íhuga afstöðu m§nna og flokka vandlega, staðráðnir að kjósa þannig, að það verði til að tryggja borginni okkar lifandi, hugmyndaríka og ábyrga borgarstjóm naéstu fjögur ár. Innflutningur rafritvéla er frjáls .SMM! Letrið óviðjafnanlegt Flestir möguleikar Fisléttur ásláttur Einföld í notkun Fæstir takkar Meira seld en allar aðrar rafritvélar til samans Fieiri hundruð I B M rafritvéfar í Kandinu fryggja flféfar viðgerðir og stóran varahluf aKager. OTTÓ A. MICHELSEh Klapparstíg 25 — 27. HANNES Á HORNINU ★ Sumargjöf brást börn- unum að þessu sinni. ★ Vöruauglýsingar á er- lendum málum í búðar gluggum. ★ Tónabíó opnar í austur bæ. BARNAVINAFÉLAGIÐ Sumar- gjöf brást börnum og fullorðnum í Reykjavík að þessu sinni. Það hefur aðeins einu sinni áður brugð- ist og þá var ákveðið og sagt frá því í blöðum, að aldrei framar myndi það bregðast. Mig furðar stórlega á þeirri ákvörðun stjórnar Sumargjafar að Ieggja niður barna daginn. Engin skýring hefur feng- ist á því, enda tekur enginn þá skýringu gilda að ástæðan sé sú að fyrsti sumardagur og skírdagur féllu á sama dag að þessu sinni. ar eru hér, séu leiðinleg, þá er það ennþá verra og raunar óhæft þeg- ar framleiðendur og kaupm. fara að birta á erlendum má'um í glugg um verzlana leiðbeiningar utn notkun vörunnar eða lýsingar á henni. ESTRELLA skyrtur eru víst á- gætar, ekki efast ég um það. Þær eru nú sýndar í glugga Marteins Einarssonar & Co. Estrella er ít- lent orð, en við skulum láta það vera. Hitt er verra, að yfir þveran gluggann er strengdur borði með áletruninni: ,,Wash‘N Wear. — Þetta á víst að þýða það, að það sé hægt að þvo skyrtuna og fara svo strax í hana. Og mér dettur ekki í hug að bera brygður á að þetta sé hægt. En að birta svona lagað á erlendu máli er smekk- Jeysa. Það er næsta óskiljanlegt, að framleiðendur, sem geta búið til eins vandaðar skyrtur og smekk lgar qg Eestrellaskyrturnar eru, skuli láta sig henda annað eins smekkleysi. sætin. Gesturn var boðið að sjá húsið á miðvikudaginn var og íór fram virðuleg athöfn við það tæki- færi. Síðan var gestum boðið upp á kvikmyndasýningu. En svo var myndin léleg og leiðinleg, að það er ekki sæmandi fyrir Tónlistarfé- lagið að opna með henni. Þetta á að vera gamanmynd, en er aðeins gerð utan um ameríska kynbombu Það er allt og sumt. Hannes á horninu. BARNADAGURINN er orðinn að fastri siðvenju í Reykjavík og einni þeirri beztu um leið. Það má alls ekki breyta þeirri venju. Það er alveg sama hvernig stend- ur á, fyrsti sumardagur skal vera hátíðisdagur barnanna um leið og hann á að vera styrktardagur fyrir Sumargjöf. Skírdagur er ekki á neinn hátt skertur þó að efnt sé til skrúðgangna barna um bæinn, eða barnaskemmtana í samkomuhús- um. ÞAÐ fer sífellt vaxandi, að fram- leiðendur og kaupmenn velji er- lend nöfn á vörur sínar. Þetta er hvumleitt — og stundum alveg ófært sérstaklega þegar um afkára- leg nöfn er að ræða. En þó að er- lend nöfn á vörum, sem framleidd- TRIPOLIBÍÓ er úr sögunni. — Tónabíó hefur opnað austarlegá í austurbænum. Það er mikill sjón- arsviftir að bragganum mikla við Melaveginn, sem Bretar byggðu á slríðsárunum og höfðu þar ieikhús sitt og skemmtistað. En vitan- lega varð hann að hverfa. Nú hef- ur Tónlistarfélagið opnað Tónabíó og ég er búinn að skoða það. Þetta er mjög glæsilegt hús, myndarlegt og mikið að utan og fagurt að inn- an. EKKERT hefur verið sparað til að gera þetta nýja samkomuhús svo vel úr garði og hægt hefur verið, samt er það alveg laust við allt tildur eða fínheit. Maður kann mjög vel við húsið, lýsinguna og 2 25. apríl 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.