Alþýðublaðið - 25.04.1962, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 25.04.1962, Blaðsíða 5
GUÐBJORG OG IK HEIÐRUÐ Verðlaunum var úthlutað í 3. skiptið úr Menningarsjóði Þjóð- leikhússins á 2. í páskum. Verð- launaafhendingin fór fram á leik sviði Þjóðleikhússins að lokinni sýningu á My Fair Lady og af- henti Guðlaugur Rósinkranz þjóð leikhússtjóri þau. Að þessu sinni hlutu leikararnir Guðbjörg Þor- bjarnardóttir og Rúrik Haraids- son verðiaunin og var upphæðin 10 þús., sem hvort hlaut, og skal þeirri fjárhæð varið til utanfar- ar. Menningarsjóður Þjóðleikhúss- ins er stofnaður 20. apríl 1950, en þann dag fór vígsla Þjóðleikhúss- ins fram. Markmið sjóðsins er að verðlauna leikara fyrir velunr.in störf og listræna túlkún á leik- sviði Þjóðleikhússins. Fyrst var úthlutað úr sjóðnum árið 1958 og hlaut Róbert Arn- finnsson þau verðlaun. Næst voru veitt verðlaun úr sjóðnum á 10 ára afmæli Þjóðleikhússins árið 1960 og hlutu leikararnir Herdís Þorvaldsdóttir og Valur Gíslason verðlaunin. Stjórn sjóðsins skipa nú Guð- laugur Rósinkranz þjóðleikhúss- KILJAN- SÝNING MÁL og menning opnaði í gær í Snorrasal sýningu á verkum Halldórs Laxness. Sýndar eru allar bækíir skálds- ins og þýðingar á ýmsum tungu- málum. Einnig eru sýndar fyrstu greinar, sem eftir hann birtust á prenti. Eiginhandarhandrit að 'ýmsum bókarköflum eru til sýn- is. Þarna er fyrsta saga, sem Hall- dór frumsamdi á dönsku. Birtist hún í Berlinske Tidende árið 1919. Sýningin verður opin frá 2 — 10 þessa viku. EIPSPÝTUR ERU EKKI BARMALElKFÖNfr! Húseigendafélag Reykjavíkur. stjóri er formaður, en aðrir í stjórn eru, dr. Gunnlaugur Þórð- arson og Herdís Þorvaldsdóttir leikkona. Páskaannir... Framhald af 1. síðu. Þá var í fyrrinótt brotist inn í Þjóð Ieikhúskjallarann og þaðan stolið 800 krónum í peningum og einnig var brotist inn í mjólkurbúð í Garðastræti 17 og I Sælgætisverk- smiðjuna Opal. Fyrir páska var stolið bankabók frá manni nokkrum í Vestmanna- eyjum. Þjófurinn kom til Reykja- vílcur á föstudaginn Ianga, og fékk þá lánaða nokkra peningaupphæð út á bókina. en í henni voru 12 þúsund krónur. Sá er lánaði þjófn um fór svo í bankann með hana í gærmorgun og ætlaði að leysa út þá upphæð, er hann lánaði. Bank inn hafði þá fengið vitneskju um þjófnaðinn, og var maðurinn tek- inn til yfirheyrslu. Gat hann gefið góða lýsingu á þjófnum, sem var svo tekinn í gær. Á páskadag úm kl. 20.18 var stórri Dodge-herbifreið ekið út af við EHiðaárnar. Hafði stýri bifreið arinnar farið úr sambandi, og valt bifreiðin út af syðri helming vegar ins, en hún var á vesturleið. Kona, sem í bílnum var slasaðist eitthvað en þrjú börn, sem í bílnum voru, sluppu ómeidd svo og bifreiðastjór inn. Ekki var vitað í gær um nein alvarleg umferðarslys, en eitthvað var þó um árekstra um bænadag ana. V WHuuumuuuuuuuuu< I BÍLSLYS í j I EYJAFIRÐI | Akureyri, 24. apríl. Fólksbifreið valt út af vegin- inum við Laugaland I Eyjafirði aðfaranótt skírdags, og liggur bifreiðarstjórinn enn á sjúkra- húsi. Hér var um bifreiðina A-721 að ræða, en það mun vera gömul fólksbifreið. Bíllinn fór út af veg- inum skammt frá bænum Bringu í Kaupangssveit, og honum hvolfdi. Lögregla og sjúkralið komu á vettvang. Bílstjórinn, sem mun hafa verið einn í bílnum, — var fluttur í sjúkrahús, þar sem hann liggur enn og líður vel eftir at- vikum. Sömu nótt varð slys niður á Oddeyri. Þar hafði maður nokk- ur dottið ofan af húsatröppum og höfuðkúpubrotnað. Maðurinn mun hafa dottið ofan á gang- stétt. — G. St. Kosningaskrifstofa Alþýðuflokksins \ Kópavogi SKRIFSTOFA Alþýðuflokksins í Kópavogi er i félagsheimilinu AuS- brekku 50, sími 28130. Er hún daglega opin kl. 16-19 og kl. 20-22. Alþýðuflokksmenn, Kópavogi, komiS á skrifstofuna og vinniS vel í kom andi bæjarstjórnarkosningum í Kópavogi. m STENZT OLL PROF jTlliffffj UTANBORÐSMÓTORAR FÁRA SIGURFÖR UM HEIMINN ÞEIR ERU FRÁMLEIDDIR í ST/ERÐUNUM: 4'/?, 6'Á, 18, 30 OG 40 HESTÖFL gpSfiMÍ- Ulanborðsmólorana má panla ' * Með mismunandi skrúfum * I tveim lengdum (dýptum) « Með stjórnbúnaði og öðrum aukaútbúnaði eftir vali LEITIÐ NANARI UPPLYSINGA HJÁ OSS EÐA KAUPFÉLÖGUNUM DRÁTTARVÉLAR H.F SIRANDLENGJA FAXAFLÓA MÆLÐ INNAN skamms munu hér hefj ast allumfangsmiklar dýptar og strandmæiingar, en þær annast bandarískir sérfræðingar í sam- vinnu við íslenzku sjómælingarn- ar. Tilgangurinn með mælingum þessum er að gera nákvæmari uppdrætti af strandlengjunni og auka þannig öryggi sjófarenda umhverfis landið. Mælingar þessar munu taka 3 4 mánuði, en fyrst verður mæid gervöll strandlengja Faxaflóa. — Gert er ráð fyrir að verk þelta hefjist á næstunni. Verður þá á- kveðið um staðsetningu ná- kvæmra miðunarstöðva í nánd við Malarrif, Arnarstapa og Hraunsnes. Gert er ráð fyrir að tvö mælingaskip í bandaríska flotanum taki þátt í þessu starfi, en við mælingarnar verða ann- í marzmánuði var vöruskipta- jöfnuðurinn hagstæður um 62,2 milljónir króna. Út var flutt fyrir 318.1: milljón, en inn fyrir- 254,9 milljónir. Á sama tíma í fyrra var vöru- skiptajöfnuðurinn óhagstæður um 16 milljónir króna. Þá var flutt út fyrir 217 milljónir, en -inn fyrir 233 milijónir. ars notuð mjög nákvæm radió- miðunartæki af nýjustu gerð. Allar niðurstöður mælinganna verða látnar í té hverjum þeim, sem hér hafa hagsmuna að gæta og not hafa fyrir slíkar upplýs- ingar. Byggingarfélag í Wolverhamp- ton hefur afgreitt tvær tilbúnar Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs hefur jöfnuðurinn orðið hag- stæður um samtals 191.9 milljón- ir, út var flutt fyrir 853,2 miilj. en inn fyrir 661,3 millj. Á sama tímabili 1961 var vöru- skiptajöfnuðurinn hagstæður um 81,3 milljónir. Út var flutt fyrir 690 milljónir en inn fyrir 608,7 milljónir króna. ' KOSNINGA- SKRIFSTOFA í KEFLAVÍK A-LISTINN í Keflavík hefur opnað kosningaskrif- stofu að Hafnargötu 62. — Verður skrifstofan opin fyrst um sinn síðdegis og fram á kvöld. Stuðningsmenn Aiþýðu- flokksins í Keflavík eru hvattir til að ganga við á kosningaskrifstofunni við fyrsta tækifæri. byggingar, sem reistar verða á Austfjörðum. Er hér um að ræða fiskimjöls- og síldarverksmiðjur með alls kyns vélabúnaði. Samkvæmt frétt í „The New Daily“ í London tók byggingarfé- lagið Coseley Building Ltd. a9 sér að framleiða þessar bygging- ar tilbúnar I marzlok, þannig að þær gætu tekið til starfa-í júní. Byggingar þessar eru 25 þús- und ferfet, og hafa sérstaklega, vcrið styrktar gegn snjóþunga og regni. Menntamálaráðuneytið hefur auglýst starf safnvarðar við Þjóð- minjasafnið laust til umsóknar. Umsóknir sendist þjóðminja- verði fyrir 10. maí næstk. 190 MILLJÓNUM MEIRA ÚT EN INN 2 AUSTFIRZKAR VERKSMIÐJUR FRÁ ENGLANDI ALÞYÐUBLAÐIO - 25. apríl 1962 5-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.