Alþýðublaðið - 25.04.1962, Síða 3
iwwwww-tvwmwvvw
FALLÖXIN bíður Raouls Sa
ans hershöfðingja yfirmann
OAS-samtakanna, sem handtek
inn var á föstudaginn langa
Hann hefur fyrir löngu verif
dæmdur til dauða fyrir þáttöki
í uppreisn hershöfðingjanna í
Alsír fyrir réttu ári.
Blaðamenn, Ijósmyndarar
og: fréttamenn útvarps og
sjónvarps hvaðanæfa að úr
heiminum gátu til skamms
tíma hcimsótt Salan með
jöfnu millibili og haft við
hann viðtöl, þó að lögreglan
og öryggissveitirnar í Alsír
finndu ekki felustað lians fyrr
en í síðustu viku.
Barátta þeirra de GauIIes
forseta og Salans, sem staðið
hefur í eitt ár, er lokið, og
Salan hefur farið halloka. —
Vígorðið „Algerie Francaise"
er að verða fjarstæöa. Þrátt
fyrir hryðjuverk OAS er Al-
sír á hraðri leið til sjálfstæð-
is. Eftir nokkra mánuði hafa
OAS-samtökin verið broti’n á
bak aftur og eftir nokkur ár
verða þau gleymd, eins og
önnur svipuð samtök hryðju-
verkamanna, svo sem EOKA
á Kýpur.
Slægur
Seimilega hefur Salan
leiðst út í þessa baráttu af
SALAN dulbúinn. Myndin er
tekin skömmu eftir handtöku
hans á föstudaginn langa.
liégómagirnd, en ekki af sann
færingu eða metorðagirnd.
Hann var nokkurs konar
„toppfígúra“ í samtökunum
og gaf þcim „virðulegau“
svip, en hin raunverulesru
völd eru í höndum hættu-
legri manna eins og Susini.
Salan er ekki hættulegur mað
ur, en slægur, undirförull og
óaðlaðandi, svo að enginn hef
ur samúð með honum.
Salan hefur verið fjarri
Frakklandi mestan hluta rev-
innar, barizt gegn Þjóðverj-
um, Sýrlendingum, nazistum,
Frjálsum Frökkum, Indó-
Kínverjum, kommúnistum,
Serkjum og Frökkum, og því
ekki skilið hvað hefur verið
að gerast í Frakklandi á síð-
ustu áratugum, og allra sízt
hefur hann skilið ástandið í
Alsír.
„Mandarininn"
í Indó-Kína hreifst Salan
af austurlenzkri dulspeki og
fiktaði jafnvel við ópíum. —
Hann fór á fund Búddha-
munka og leitaði ráða hjá guð
unum. Þegar hann var í Indó-
Kína fyrir heimstyri;i!dina
stjórnaöi hann leyniþiónustu
Frakka, og átti slíkt vel við
lunderni hans. Þegar þar við
bættist svo, að hann þótti dul-
ur, fáskiptinn og rólegur á
furða að hann væri kallaður
Kínverjinn eða Mandaríninn.
Raosul Salan fæddist árið
1899 skammt frá Toulouse. —
Faðir hans var læknir og sós-
íalisti. Hann stóð sig frábær-
lega vel í herskólanum í St.
Cyr, hélt til vígstöðvanna
1917, særðist og hlaut heiðurs
merkið Croix de guerra. Eftir
styrjöldina var hann sendur
til Sýrlands, þar sem hann
barðist gegn Drúsum, og særð
ist aftur. Þá var hann sendur
til Indó-Kína og var m. a. her
stjóri á landssvæði einu, sem
er þakið frumskógi, á landa-
mærum Kína, Burma og Laos.
ÓáfevæW«nn
Salan var hrósað fyryir
hreyst.ilega framgöngu gegn
nazistuui í Frakklandi áður en
frönsku herirnir urðu að gef-
ast upn. Nú kom í Ijós hve
erfit.t hann átti með að taka
ákvörðun ne meðfædd var-
kárni hans. Hann var í Dakar
þegar Frakkar gáfust upp
fyrir nazistum og í fjögur ár
íhugaði hann hvort hann ætti
helditr að ganga í lið með
Frjálsum Frökkum de Gaulle
og handrmönnum eða sýna Vic
hy stjóru Pétain hollustu, og'
þar með nazistum. Að lokum
tók h«mt fvrri kostinn.
Eftir ’nnrásina í Normandí
1944 barðist, Salan með hinum
fræga franska marskálki, Jeau
de Lattre de Tassigny, í S.-
Frakklandi og Elsass. Eftir
stríðið hélt hann aftur til Indó
Kína sem næstráðandi de Lat
tre de Tassigny, en þar höfðu
kommúnistar gert uppreisn
undir forystu Ho Chi Minh.
Þegar de Lattre lézt 1952 varð
Salan eftirmaður lians og stóð
sig hvorki betur né verr en
fyrirrennarar eða eftirmenn
hans.
„Vinstri maður"
Þegar illa gekk í Indó-Kína
er sagt að Salan hafi látið
senda sér sagnfræðirit um ó-
sigur Napóleons á Spáni. —
Hann snéri aftur til Frakk-
lands 1954, hlaðinn heiðurs-
merkjum, en hægri sinnar grun
uðu liann um að hafa verið
hlynntur uppgjöf. Aðstaðan í
Indó-Kína var orðin vonlaus
er hann hélt þaðan.
Salan leyfði frönskum blöð-
um að komast í leyniskýrslur
þess efnis, að aðstaðan í Indó
Kína væri vonlaus, ef ekkert
væri að gert. Nú urðu hægri
sinnar æfir og kölluðu hann
„lýðveldisliöfðingjann“, sein
andvígur væri nýlendustríðum.
Það var því ekki óeðlilegt, að
Mollet forsætisráðlierra skip-
aði hershöfðingja, sem talinn
var vinstri sinni, í embætti
Framhald á 1? síðu
Lagt til at-
lögu gegn
í Oran
ALGEIRSBORG og París 24. ap-
ríl (NTB-Reuter-AFP) Hin leyni-
legu samtök hersins, OAS, reyndu
í dag að sýna heiminum fram á, að
handtaka Raoul Salan hefði ekki
veikt baráttuþrek þeirra.
Hryðjuverkamenn unnu mörg
hermdarverk í dag, og aðeins í A1
geirsborg og nágrenni biðu 13
manns bana. Tólf þeirra er féllu
voru Múliameðstrúarmenn. Tíu aðr
ir Múhameðstrúarmenn særðust.
Eftirlitsaðgerðir lögreglunnar
héldu áfram í dag, bæði í Algeirs
borg og Oran, og 14 OAS-menn
voru handteknir í Bab-el-Oued-
hverfinu í Algeirsborg. Mikið magn
skotfæra var gert upptækt og einn
ig nokkur skjöl.
Undanfarna daga hefur Joscp
Katz liershöfðingja, yfirmanni her
sveitanna í Oran, borizt mikill liðs
auki. Ilermenn hans hafa tekið sér
stöðu efst í þrem skýjakljúfum, en
þaðan sjá þeir yfir alla borgina.
Eftir nokkra daga mun Katz hers
höfðingi hafa 10-12 þúsund her
menn undir sinni stjórn til þess
að berjast gegn OAS á Oran-svæð-
inu. Góðar heimildir herrna, að
Katz hershöfðingi muni nota lög
regluaðgerðir, t.d. húsleitir, skil-
ríkjaeftirlit, og lokun bæjarliverfa
Hefur Oran nú verið umkringt og
búist er við að Katz láti til skarar
skríða gegn 2 þúsund OAS-mönn
um.
Búizt er við, að forseti bráða
birgðastjórnarinnar í Alsír, Abder
Rahmane Fares muni koma til Par
ísar á miðvikudag að ræða við de
Gaulle forseta.
Æðsta ráð lögfræðingastéttarinn
ar kom saman til fundar í París í
dag til þess að taka afstöðu til
þess, hvort hinn dauðadæmdi Et!
mond Jouliaud skuli verða hengdur
eða ekki. Það er de Gaulle forseti
sem tekur liina cndanlegu ákvörð
un og hann er ekki bundinn af
áliti ráðsins.
Franska þjóðþingið kom sainan
til vorfundar í dag. Þingið kemur
venjulega tvisvar saman til fundar
á ári — í apríl og í október. Ilvor
fundurinn um sig stendui í þrjá
mánuði.
Á páskadag hófu starfsmen i
ríkisjárnbrautanna í Suður-Fr-ikk-
landi verkfall og nú liafa starfs-
menn á járnbrautarstöðum í ýi-
borgum Parísar gert samúðarv >rk
fall. Óttazt er, að verkfallið br ,ð
ist út til annarra landshluta.
wtwwvmwwvmuww
USA HEFJA
TILRAUNIR
WASHINGTON 24. apríl
(NTB-Reuter) Kennedy for
seti hefur greint frá því, að
hinar fyrirhuguðu kjarnorku
tilraunir Bandaríkjamanna
4 gufuhvolfinu yfir Kyrra
hafi geti hafizt eins fljótt og
unnt er. Þetta var tilkynnt
opinberlega í Washington í
kvöld. Kjarnorkunefndin seg
ir í tilkynningu, að forset-
inn hafi veitt nefndinni og
landvarnaráðuneytinu umboð
til að liefja nokkrar kjarn
orkutilraunir á Kyrrahafi.
Sérþjálfuð hersveit undir
stjórn A.D. Starbird hers
höfðingja á að stjórna tilraun
unum.
HUWtUUUUUUUUUWMtW
„Ranger 4”
gengur illa
hverju sem gckk var ekki að
imuuuuuuuuuuuuuuuuuuw- w- 'uuuuutuMuuuuuMututuuuuutM*
KANAVERALHÖFÐA og MOSK
VA 24. apríl (NTB-Reuter-AFP)
Bandaríska tunglflaugin „Rangcr
fjórði“ hefur misst allar rafhlöð-
urnar, sem hún hafði með sér I
byrjun, og lítill radíósendir í
tækjahylkinu er það eina sem ger
ir ldeift að fylgjast með flauginni.
Kl. 17.00 eftir íslenzkum tíma í
dag var „Ranger fjórði“ u.þ.b. 208.
204 kílómetra út í geim
hélt ferð sinni áfram til tunglsin.->
á 5.456 kílómetra hraða á klst.
Vísindamenn telja að eldflaugin
muni hrapa niður á bakhlið tun.
ins kl. 13.50 ísl. tími á fimmtudSag.
Þó útiloka þeir ekki þann mögu-
leika, að „Ranger fjórði" komisf
ekki alla leiðina til tunglsins. •
Fréttir frá Moskvu herma, að
hið nýja gervitungl Rússa .KosnLos*
sem skotið var árdegis í dag, figi
fyrst og fremst að rannsaka geim
geisla í ionos-sviðinu, þannig- að
auðveldara verði að senda gervi-
hnetti til veðurathuguna síðar.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 25. apríl 1962 ‘3
PiíiAJfc-