Alþýðublaðið - 25.04.1962, Qupperneq 16
43. árg. - MiSvikudagur 25. apríl 1982 — 93. tbi.
Vissu að JbeiV
yoru oð fremja
verkfallsbrot
TOGARINN Karlsefni kom tii
Reykjavíkur á fyrsta sumardegi.
Hafði togarinn þá ekki komið til
hafnar hér í IV2 mánuð, og að á-
liti sjómannasamtakanna, framið
gróft verkfallsbrot með því að
íara á veiðar og í söluferð til
Hýzkalands í leyfisleysi.
Um leið og togarinn lagðist að
brygg.íu, fóru þrír menn úr stjórn
Sjómannafélagsins og tveir úr
stjórn Dagsbrúnar, um borð í tog
arann og höfðu þeir tal af áhöfn
og skipstjóra. (Sjá mynd)
Alþýðublaðið ræddi í gær við
Jón Sigurðsson, formann Sjó-
mannafélagsins. Sagði hann að
|>eir hefðu farið um borð til að
grennslast eftir hvað skipstjóri
og skipverjar hefðu fram að færa
eér til málsbóta.
Sagði hann, að í ljós hefði kom
i&, að skipstjórinn, Halldór Tngi-
marsson, hefði óskað eftir því við
áhöfnina að hún færi þessa ferð.
Hafði hann jafnframt talað við
trúnaðarmann Sjómannafélagsins
um borð, og hafði hann ekkert
við það að athuga að ferðin væri
farin.
Á laugardaginn klukkan tvö,
boðaði Sjómannafélag Reykjavík-
ur áhöfn Karlsefnis á sinn fund.
Aðeins fimm þeirra mættu, en
elckert nýtt kom fram á fundin-
Um, annað en það, sem skips-'
menn höfðu sagt áður.
Hvað gerður verður, mun
fitjórn Sjómannafélags Reykjavík-
ur ákveða og leggja síðan fyrir
féiagsfund, sem haldinn verður
tHMMVMMtMMMMWMUMM
næsta
bæjar
Helsingfors. — Kýrin
finnska bóndans Pekka Vir-
tinen virtist verða eitthvað
gröm, þegar hann seldi
nautið sitt. Að minnsta kosti
seildist hún í vasann hans
um mjaltatímann, náði í
veskið hans — og át hvern
einasta eyri, sem Pekka
hafði fengið fyrir nautið!
einhvern næstu daga. Er það á
valdi þess fundar hvað gert
verður.
Það er fullvíst, að öll áhöfn
togarans vissi, að verið var að
fremja verkfallsbrot, er togarinn
fór í þessa veiðiferð. Hvað gert
verður til að refsa fyrir þetta '
brot, er ekki kunnugt, . en vitað
er að mikill hiti er í sjómönn-
um út af þessum atburði, og eru
þeir því reiðir að áhöfn Karls-
efnis varð til þess að kljúfa ein-
eingu togarasjómanna í þessu
verkfalli.
Kvenfélagið
í Reykjavik
KVENFÉLAG Alþýðuflokksins í
Reykjavík heldur fund ■ n.k. föstu
dag (27. þ.m.) í Iðnó uppi. Fundar
efni: Borgarstjórncakosning-arnar
framsögu hefur Soffía Ingvarsdótt
ir. Frjálsar umræður,. Allar Al-
þýðuflokkskonur velkomnár.
Fannst slasaður
við vegkantinn
ÖS.TALFBJARGA maður fannst
á veginum, sem liggur frá Selja-
landsdal til ísafjarðar, aðfara-
nótt páskadags. Hér var um hol-
lenzkan sjómann að ræða, og við
rannsókn hefur komið í ljós, að
hann er mikið slasaður, en síð-
ustu fréttir herma, að honum
líði sæmilega. Ekki er vitað, með
hverjum hætti hann slasaðist.
Þetta kvöld var skíðavikudans
leikur á Seljalandsdal og margt
um manninn. Þar voru m. a. er-
lendir sjómenn. Ölvun var nokk-
ur, og er talið, að maðurinn, sem
slasaðist, hafi verið ölvaður.
Hann virðist hafa ætlað áð
ganga til bæjarins að dansleik
loknum og var kominn langlcið-
ina er slysið vildi til. Ekki er vit-
að með hvaða hætti það varð, en
rannsókn stendur yfir.
Samkvæmt _ frásögn HalIdSrs
. Jónmundssonar yfirlögreglu-
þjóns á ísafirði, var hringt til Iög
reglunnar kl. 1,25 aðfaranótt
páskadags og lienni tilkynnt, að
menn væru að stumra yfir ósjálf
bjarga manni á veginum inn við
Engi, en það er íbúðarhús við
innanverðan Seljalandsveg.
Lögreglan fór strax á vettvang
og kom í ljós, að hér var um
alvarlega slasaðan sjómann að
ræða.
Þetta var 25 ára gamall erlend-
ur sjómaður, matsveinn á hol-
lenzku flutningaskipi, sem liggur
í höfn á ísafirði og lestar fiski-
mjöl.
Vegfarendur höfðu fundið
manninn máttvana og ósjálf-
bjarga neðan við vegarkantinn.
Strax og lögreglan sá ásig-
komulag mannsins sótti hún
sjúkraköríu og var hann fluttur
á lögregluvarðstofuna. Læknir
var strax til Icvaddur og var þá
maðurinn tafarlaust fluttur á
sjúkrahús.
Við rannsókn hefur komið í
ljós, að maðurinn er mikið slas-
aður, m. a. liöfuðkúpubrotinn.
FYRIR milligöngu Landsbanka
íslands tókst nýlega að fá lánaða
$1.500.000 með veði í fiskbirgðum
Islendinga í Bandarikjunum.'í hlut
Sambaqdsins komu $375.000 af
þessari upphæð. ' Af þeim hluta
var síðan greitt $250.00 lán, sem
Sambandið hafði haft fyrr þar
vestra, svo að nú voru ekki eftir
nema $125.00 (ca. 5 milljónir kr.j
til að ráðstafa til greiðslu upp í
fisk. Þetta viðbótarfé hefur þó
stuðlað að því, að Sambandið hef
ir getað staðið við að greiða upp í
allan freðfisk um það bil 2 Yz mán
uði eftir afskipun, síðan í ágúst sl.
í þessu sambandi hafa þó hinar
tiltöiuiegu öru sölur í Bandaríkjun
um verið miklu þýðingarmeiri. Er
nú um að ræða meiri fyrirfram-
sölu og afgreiðslu frá skipshlið.
Unnið er nú að því að fá írekari
lán út á fisk, sem seldur er í um-
boðssölu til Bandaríkjanna, og að
því stefnt að hægt verði að greiða
upp í allan fisk jafnóðum og hann
fer úr landi.
(Frétt frá sjávarafurðadeild SÍS)
Dæmdurí
250 Jbús.
kr. sekt
SKIPSTJÓRINN á landhelgis-
brjótnum Ben Lui var dæmdur í
250 þús. kr. sekt til Landhelgis-
sjóðs og afli og veiðarfæri gert
upptæk.
Skozki togarinn Ben Lui, sem
er frá Aberdeen, var tekinn að
ólöglegum veiðum á Selvogs-
banka miðvikudaginn 18. þ. m.
Dómur í máli skipstjórans á
Ben Lui, Charles Alfred Grimm-
er, var kveðinn upp kl. 11 á mánu
dagsmorgun.
Skipstjórinn var auk þess
dæmdur til greiðslu alls sakar-
kostnaðar.
Bör í Keflavík
Leikfélagið Stakkur í Keflavík
er nú að æfa leikritið Bör Börs-
son. Leikritið veröur frumsýnt í
Ungmennafélagshúsinu í Kefla-
vík.
Með aðalhlutverkið fer Sigur-.
jón Ilinriksson, en leikstjóri
er Kristján Jónsson.
Neiía að greiða
útvarpsgjaldið
109 útvarpsnotendur i
Raufarhafnarhreppi og ná-
grenni liafa neitað að greiða
afnotagjald til Ríkisútvarps
ins.
Segjast þeir ekki geta
Iilustaö á útvarpið sein
skyldi vegna þess að það sé
svo veikt að erlendar stöðv-
ar yfirgnæfi það með öllu
eftir að rökkva tekur á kvöld
in. Fyrst fóru þeir fram á
lækkun afnotagjalds af fyrr-
greindum ástæðuni, en þar
sem útvarpsstjóri hafi dauf-
heyrzt við því, telja þeir sig
neydda til að grípa til rót-
tækari aðgeröa.