Alþýðublaðið - 27.06.1962, Blaðsíða 9
I Washington hafa menn
upplýst, að venjulegir amer-
ískir verkamenn hafi haft á
síðasta ári 155 frítímum fleiri
á fullum launum en félagar
þeirra fyrir 200 árum síðan.
Um það bil helminginn
af þessum aukna frítíma, eða
75 stundir, má rekja til stytt-
ingar vinnutímans um
stund á viku, og hinn helm-
ingurinn felst í viku sumar-
fríi á fullum launum og fjór-
um helgidögum, sem einnig er
greitt kaup á.
í skýrslu sinni segir yfir-
maður ríkisvinnunnar í Banda
ríkjunum, að nú sé farið að
miða / að fleiri frídögum á
fullum launum, en ekki enn
meiri styttingu vinnutímans,
eins og verið hefur hingað til.
Yfirvöldin tóku í vetur fyr-
ir hina geysilegu styttingu
vinnutímans hjá sumum iðn-
lærðum mönnum i New York,
meðal annars unnu 9000 raf-
virkjameistarar aðeins 25
stundir á viku að meðaltali,
og það á 5 dögum.
Voru byggingamenn og
skipuleggjarar, sem eru á 3.
hundrað þúsund einnig farn-
ir að sækjast eftir svona stutt-
um vinnutíma. Nú er stefnan
hins vegar farin að beinast inn
á þær brautir að frídögum
fjölgi, en vinnutíminn standi
í stað.
Síðan 1940 hafa amerísk-
ir verkamenn tryggt sér frí-
tíma sem nemur alls 10 mill-
jarðir stunda, en þessi mikli
tími hefur auðvitað aukið til
muna allar íþróttaiðkanir, —
lengri sumarleyfisferðir, og
yfirleitt fjölbreyttara líf.
Stór, bandarisk iðnaðarfyr-
irtæki hafa nú orðið 7 helgi-
daga fría á fullum launum
handa starfsmönnum sínum,
en það er þó ekki eins mikið
og hjá bankafólki, sem vinn-
ur í bönkum eða við einhver
peningastörf, þar eru helgi-
dagarnir 11 talsins.
Og enn miða Bandaríkja-
menn að því að skapa fleiri
helgi- og frídaga handa hin-
um vinnandi stéttum, sérstak-
lega lengjast páska og jóla-
fríin.
'ér
ÞEGAR hinn frægi tónsnill-
ingur Mendelsohn var ný dá-
inn, kom ungur maður til tón-
skáldsins Rossini og sýndi hon
um sorgarmars, sem hann
hafði samið í tilefni af dauða
snillingsins.
Rossini hlustaði þolinmóð-
ur á verkið, en þegar hann
átti að segja meiningu sína
um verkið, sagði hann: Þetta
hefði nú verið betra á annan
hátt.
Nú hvernig þá?
Ég á við að þér hefðuð dáið,
en Mendelsohn hefði samið
sorgarmarsinn.
:omna vætt-
i beið hans
árið 1865.
HERNA fyrir ofan er fræg-
asta minnismerki sem gert hef
ur verið um Abraham lincoln.
Þaff er eftir snillinginn Daniel
Chester French. Líkneskiff er í
veglegu húsi skammt frá fljót-
inu Potomac í Washington.
Þetta hús stendur eitt s^r, gert
úr hvítum steini. Traustar súl-
ur einkenna þaff, þaff er eins
og griskt hof.
Inni í minnismerkinu situr
Lincoln í stól og horfir fram
fyrir sig eins og sjá má á mynd
inni. Andlit hans er hrjúft og þó
hugstætt, dulin Ijós varpa helgi
blæ á líkneskið og gera það enn
tignarlegra. - Þetta minnis-
merki gleymist engum, sem sér
þaff.
Hérna til hliffar er höggmynd
af honum sem ungum. grannur
og ómótaður af reynslu hins
erfiffa lífs.
Skilgrein-
ingar
f MOSKITO: Lítið skordýr framleitt af j
j náttúrunni til að láta okkur hugsa meira j
i og meira um flugur. |
TÆKIFÆRISSINNI: Maður sem er í |
I heitu vatni — og tekur sér bað. \
ÖND: Fugl, sem lítur út fyrir að hafa ver- I
\ ið á hestbaki allan daginn. I
SÖNGUR: Það, sem allir eiga rétt á að |
\ gera i baði. |
j HEIMSPEKINGUR: Maður, sem getur j
[ horft í tómt glas — og brosað. |
: VASAÞJÓFUR: Maður sem finnur hluti i
f áður en fólk týnir þeim. i
'ÚMmmmmimmmmMmimmMiumiimmimmimiMmimimiii' m>. iMMiiiiiiiiiiiiMiiiiiimMiiiiM''
Rýmingarsala
Mjög ódýrar prjónavörur.
Verzlunin Anna Þórðardóttir h.f.
Skólavörðustíg 3.
SÍLDARSÖLTUNARSTÖLKUR
Vantar á Söltunarstöð Ólafs Ragnarssonar
Siglufirði.
Upplýsingar í síma 50165.
Síldarsöítun - Síldarsöfun
Stúlkur vantar til söítunar í sumar á góðri söltunarstöð á
Siglufirði.
Upplýsingar gefur
SVEINN FINNSSON, hrl.
Laugavegi 30, símar 23700 og 22234.
Síldarstúlkur
Vanar síldarstúlkur óskast til Siglufjarðar.
Mjög gott húsnæði. — Fríar ferðir. Kaup-
trygging.
Upplýsingar í síma 37027 og í Hafnarfirði x
síma 50771.
Húsmæður
Odýrir og góðir snúrustaurar
og barnaróiur.
Vélsmiðjan Syrktll
Hringbraut 121 — Símar: 24912, 34449.
Framtíðarstarf
Stúlka eða eldri kona óskast á heimili í Reykjavík. (Má
hafa með sér barn).
Sér herbergi. Fátt í heimili.
Engin börn.
Svar sendist afgreiðslu blaðsins merkt: Framtiðarstarf.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
annað og siðasta, á hluta Jóns Bjarnasonar í húseigninni
nr. 81 við Laugaveg, hér í bænum, fer fram á eigninni
sjálfri, laugardaginn 30. júní 1962, kl. 2% síðdegis.
Bergarfógetinn í Reykjavík.
I-_______-_________________________^
ALÞÝOUBLAÐID - 27. júní 1962 $