Alþýðublaðið - 05.07.1962, Page 4
Komið sem fyrst,
og gerið góð kaup
Allt á að seljast
Skóbúð Reykjavíkur
Aðalstræti 8.
ÚTSALA
a
skófatnaði
UNDANFARIN ár hefur ver-
ið mikið ritað og rætt um holda
nautarækt á íslandi. Hefur ver-
ið einkennilega mikil mótstaða
móti innflutningi hreinrækt-
aðra stofna í þessu augnamiði,
og það e. t. v. ekki að ástæðu-
lausu, þar sem allir núlifandi
íslendingar þekkja það tjón,
sem hlaust af innflutningi sauð-
fjár fyrir nokkrum áratugum og
fluttu með sér mæðiveikina,
sem olli landsmönnum stórtjóni.
En með aukinni vísindalegri
tækni og þekkingu á meðhöndl-
un innfluttra gripa í tilrauna-
skini ætti öll hætta að vera úti-
lokuð.
1960 var skipuð nefnd af bún-
aðarþingi að athuga þessi mál,
sem ferðaðist til Noregs, Eng-
lands og Skotlands. Skilaði
nefndin síðan áliti, sem virtist
að sumu leyti all einkennilegt.
Var það samþykkt á búnað-
arþingi og fer það hér á eftir:
„1. Að nú þegar verði unnið að
því með innflutniugs djúp-
frysts sæðis að hreinrækta
liinn erlenda lioldanauta-
stofn, sem fyrir er í Iand-
inu.
2. Jafnframt séu athugaðir
möguleikar á því að koma
hér upp í landinu fleiri hrein
ræktuðum holdanautastofn-
um með innflutningi ný-
fæddra kálfa, svo sem Here-
ford og Aberdeen Angus kyn
um, enda verði þeir aldir
upp í öruggri sóttkví með
innlendum nautgripum, þar
Naut af Galloway-kyni.
til fullkomið öryggi fæst
um heilbrigði þeirra. Inn-
flutningur á sæði og gripum
fari fram samkvæmt gild-
andi Iögum um innflutning
búfjár“.
Þrátt fyrir sameiginlegar til-
lögur nefndarmanna, komu
fram tvær greinargerðir. Var
önnur frá formanni nefndgrinn-
ara Sveini Jónssyni bónda á
Egilsstöðum, en hin frá þremur
öðrum nefndarmönnum, þeim
Þorsteini Sigurðssyni form. Bún
aðarfél. íslands, Einari Óiafs-
syni í Lækjarhvammi og Garð-
ari lieitnum Halldórssyni alþing
ismanni.
Var greinargerð Sveins miklu
jákvæðari fyrir málið í heild.
Byggir hann hana á nokkurra
ára reynslu Norðmanna, og vitn
ar í umsögn eins fylkisráðu-
nauts, sem segir orðrétt: „Hér
er fengin reynsla, og þeir sem
voguðu fé og fyrirhöfn og höfðu
forustu í þessu máli, eru yfir-
leitt ánægðir með árangurinn
og áhugi fer ört vaxandi".
. Sveinn segir í grcinargerð-
inni orðrétt:
„Nokkrir bændur hafa komið
sér upp sjálfstæðum bústofni af
þessum innflutta lioldanauta-
stofni og þá jafnframt lagt nið-
ur mjólkurframleiðslu.
Ástæðuna fyrir þessum breyt-
ingum töldu bændur þá, að
mjólkurframleiðslan væri svo
rúmfrek og bindandi, auk þess
að ekki væri hægt að fá, að-
keypta vinnu til hennar. Hins
vegar væri holdanautabúrekst-
ur ekki eins vinnufrekur og
ekki eins bindandi. Fjölskyldan
kæmist af án aðkcyptrar vinnu
með svipuðum búrekstri til inn-
tektar, en hefðu það’ bæði frjáls
ara og erfiðisminna“.
Sveinn segir ennfremur í
greinargerðinni, að vart hafi
orð'ið mikils áhuga á svæði því
er þeir fóru um í Noregi (Roga-
land), fyrir útbreiðslu holda-
nautanna, bæði til fjölbreytni í
landbúnaði, og einnig að fram-
leiða verðmætara og betra kjöt
fyrir markaðinn.
Er auðséð á greinargerð
Sveins, að hann telur að af til-
raun Norðmanna á þessu sviði
eigum við frekar að læra, en af
reynslu Skotanna og cr það
ekki óeðlilegt.
En einn skuggi finnst mér
gægjast fram, og það er að
norskir bændur leggi niður
mjólkurframleiðslu, með til-
komu holdanautanna. Væri það
ekki heppilegt, ef sú stefna yrði
tekin upp hér, þegar holdanauta
búreksturinn kemur hér á landi,
ef að mjólkurframleiðslan
minnkaði í sama hlutfalli og
holdanautabúræktin færðist í
aukana.
Með auknum fólksfjölda í
landinu, þarf mjólkurframleiðsl
an að aukast en ekki minnka.
En fyrst hér hefur verið
' minnst á holdanautabúrekstur-
inn, er rétt að geta þess hér, er
forgöngumaður um, holdanauta-
rækt á íslandi hefur að segja í
þessu merka máli.
í útvarpserindi, sem Páll
Sveinsson sandgræðslustjóri
flutti s. 1. vetur kom hann inn
á þetta merka málefni. Hann
sagði þar meðal annars orðrétt-
„Ég harma hversu lengi ís-
lenzkum bændum hefur verið
* Framh. á 12. síðu
Kvenkór með hæl ■•••..••........kr. 150,00
Kvenskór með hæl............. — 200,00
Kvengönguskór (rúmenskir) • • • • — 125,00
Flatbotnaðir kvenskór......•••• — 175,00
Flatbotnaðir kvenskór ....••..•• — 200,00
Kvenstrigaskór ................. — 75,00
Kventöflur ................••.. — 125,00
Telpnainniskór ................. — 35,00
Telpnaskór ..-•................ — 125,00
Herrainniskór ................. — 75,00
Herrainniskór ......-•••••■•.. — 95,00
Herrainniskór .................. — 125,00
Karlmannaskór úr leðri ■ •.......— 200,00
Karlmannaskór úr leðri...........— 250,00
Karlmannaskór úr leðri ••....•••• — 350,00
Drengjaskór ............•..... — 100,00
Drengjaskór ............•••••• — 200,00
Telpnastrigaskór................ — 75,00 i
Gondólaskór .................... — 35,00
Drengjabússur..............•.. — 95,00
Margskonar annar skófatnaður
Nylon-sokkar með saum kr. 25.00
Skóáburður í túbum kr. 6,50
Skóáburður í dósum kr. 7,50.
Skókrem í glerdósum kr. 9,00
Sérlega lágt verð.
4 5. júlí 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ