Alþýðublaðið - 05.07.1962, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 05.07.1962, Blaðsíða 8
 Hér sést Ingólfur Bárðarson stökkva me5 sínum skemmtilega og sérstæða stíl, en hann varð sigurvegari í hástökki og stangarstökki. Ingólfur er í Ungmennafélagi Selfoss, og fyrir nokkrum árum var hann ísfandsmeistari í hástökki. FÓLK upp í Hlíðum, sem á sumarbústað á Þingvöllum skrapp þangað um síðustu helgi að gamni sínu. Þetta fólk á kött, sem er allra gam- an í fjölskyldunni, og hefur áunnið sér hylli allra sem hann þekkja fyrir háttprýði og hreinlæti. Þessi köttur var sjálfsagð- ur með í ferðalagið, og var honum því kippt upp í bílinn og síðan ók öll halarófan til Þingvalla. Þegar þangað kom, týndist kisi, og fannst ekki þrátt fyrir mikla leit. Varð þá uppi ramakvein mikið og þótti mönnum sem ei sæi lengur til sólar vegna hvarfs kattar- ins góða. Daginn eftir hélt kattarlaus fjölskyldan í bæinn, og var hnípin hjörð og þögul, sem lagðist til svefns um kvöldið. En er fyrstu kennimerki dagsins komanda brutust inn í svefnhús hjónanna, verður bónda vaknað við þrusk á glugga. Skyggnist hann betur um og sér þá að kisi er kom- inn á bognum löppum með bólgnar tær. Var þá sem hús vaknaði og þustu hver um fæt- ur öðrum að hylla hinn fyrr heillum horfna kött. Undraðist fólk stórum hví- líka ratvísi kötturinn hafði sýnt og einkum þótti frænd- rækni hans með afbrigðum að hann skyldi aftur koma til síns heima, en ekki slást í hóp farandkatta, hverjir títt raska ró kerlinga um nætur með breimi sínu. • En kisi var hinn hægasti undraðist sig ei, þó aðeins sárar tær sínar mjúkri tungu. Þykir sýnt, að sár hans grói óðum og brátt muni hann al- heill standa. ^ærh?? 1 urs,itum hundraff metra hlaupsins. Það eru tvær frænkur sem haf; -« m? na’ íf?r/ra Ungmennafélaginu Samhygð og heita Helga ívarsdóttir, sú sem er á und inni hoifinMeni *8úr !fsí-a.eftir heitir RaPhe|5ur Stefánsdóttir, Þriðja stúlkan sem sést á mynd inm heitir Margret Hjaltadóttir og er frá Selfossi. Það er harka í úrslitasprettinum í 100 metra hlaupinu. Ungur Selfyssingur. Sigurður Sveins- son hefur tekið forystuna og sigrar með herzlumun. Sigurður er ungur að árum, en eigi að síður færði hann félagi sínu mörg stig á þessu móti. — Hann varð annar í þrístökkinu. Það er gaman að geta þess, að Sigurður á systkini, sem oft hafa farið með sigur af hólmi þarna á Þjórsártúni, bróðir hans, sem stundar nám í háskólanum sigraði í kringlukasti, og systir hans sem varð stúdent frá Laugarvatni í vor sigraði í langstökki kvenna. Sjálfur er Sigurður í menntaskóla, svo að sjá má að þau systkini eru vel gefin bæði til „munns og handa". í SKINI milli skúra lögðum við af stað á sunnudagsmorg- uninn og ætluðum að fara til Þjórsártúns, þar sem garpar í Skarphéðni leiða saman hesta sína til úrslita um hver er sprettharðastur, hver get- ur klofað lengst eða glímt snarpast. Það má því segja að Opnan í dag verði íþróttasiða, þar sem svo liittist á að allar aðr- ar myndir en þær, sem teknar voru af íþróttamönnunum mis heppnuðust svo herfilega að engin þeirra reyndist birting arliæf. Verður varla annað ætlað en skrattinn hafi hlaup ið í myndavélina. þegar ljós- myndarinn ætlaði að taka myndir af mótsgestum: fal- legum stúlkum sitjandi á garðsins vegg eða manni með pytlu í fanginu, sem var að reyna hvað hann *gæti oltið marga hringi þar sem leireðj- an var sem allra mest. Því miður töldum við ekki hring- ina sem hann snerist, en segja mætti, að ef einhver löggiltur dómari hefði verið viðstaddur, hefði hann stað- fest árangurinn sem eitt allra glæsilegasta afrek unnið á mótinu. Annars má það segja að vín var ekki áberandi á mönnum, utan þessum eina, þó var kalt í veðri og hefði mátt ætla að fleiri hefðu fallið fyrir tál- snörum Bakkusar. Furðulega fátt fólk var á mótinu, einna fæst sem ver- ið hefur í fleiri ár, og má þar kannski um kenna veðr- inu, sem var vont fyrri hlr.ta sunnudagsins, kuldi, og skúrir öðru hverju. Á laugardag höfðu verið áætlaðar undan- rásir, en ekki var þó hægt að keppa í öllum greinum vegna veðursins, sem var vont, rok og rigning. Framkvæmd mó^s:ns vnr ekki góð, hefði mátt skipu- leggja keppnirnar betur, og einnig var mikið um að krakk ar hlypu inn á leikvanginn og þyrptust utan um keppend- ur og keppnissvæðið. Lúðrasveit Selfoss lék á milli atriða skemmtileg og fjörug lög. Það vakti eftir- tekt gesta að ung stúlka lék með lúðrasveitinni af hinni mestu prýði, og gaf karlmönnr um ekki eftir í sínu hlutverki. Að íþróttakeppninni lok- inni var haldið yfir á gamla völlinn, þann sem snýr út að ánni mót Skeiðunum, og þar fór fram glíma, sem vakti einna mesta athygli mótsgesta. Gnúpverjar eru sprett ur. Þetta kom í Ijós nú sem er lengst til vinstr asti íþróttamaður austa annars Skarphéðinsm stökkum öðrum. Það bar til tiðinda í g að þrír bræður fóru n ur af hólmi, hlutu 1. verðlaun 1. verðlaur Sigurður Steindórsso hin tvö hlutu Guðmui Hérna er Heiga ívarsi stökkva langstökk, og f svo mikil að hárið ster ur af henni í alíar áttir. 8 5. júlí 1962 - ALÞYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.