Alþýðublaðið - 05.07.1962, Qupperneq 7
Túss eða
BALMAN er þó eftir sem áður
meistari í að skapa dragt fyrir
hina fullkomnu konu. Honum
finnst, að dragtin eigi að vera
einföld, glæsileg með einstaka
nýjum smátilbrigðum, og kápan
lýtur sömu lögum. Hann kemur
með prinsessusniði og drögtum
sínu áliti á framfæri með kápum
með sígildu sniði á .iakkanum og
útvíkkandi pilsi. Sum dragtar-
pilsin eru með íellingum.
HJÁ NINU RISSI er uzkusér-
fræðingurinn Francois Chrahay.
Hann vil'l, að kona vorsins sé ung
og kát í léttum kjólum með
klukkusniði á pilsinu, kjólum,
sem sýna vel hennar mjóa mitt;
og mjúklegu mjaðmir. Löngu
kragaböndin á drögtnum hans
eru með kögri, og sólpiíseraðir
kvöldkjólarnir hans eru iéttir og
litríkir: gulir, gulllitaðir, gulrauð-
ir og rauðir. Það eru litir sólar-
ljóssins.
En það, sem er mest áberandi
hjá Ricci eru breiðu beltin, sem
eru um annað hvert mitti í því
húsi í ár. Beltin eru skreytt með
alls konar keðjum og hnöppum
úr málmi. Þau skreyta dömurnar
hjá Ninu Ricci allt frá því að
sólin kemur upp yfir tvídkápuna
þar til sólarlagið signir siffon-
kjólinn.
*
LAVIN-CASTILLO er á sömu
línu og Nina Ricci. Hann er# í
ár einnig einlægur aðdáandi belt-
anna, — en beltin hans sitja
hærra, — allt að því eins hátt og
á tímum empire-stílsins. Og kjól-
arnir hjá Lavin Castillo eru svo
■flegnir og æsilegir, að það er
eins og þeir séu beinlínis gerðir
fyrir vorhús á Maxim og Tour d-
’Argant (eða ágústhúmið í
Klúbbnum!)
*
KONA VORSINS í hverju íer
hún út úr gráum íízkusölunum
út í sól vorsins. Auðvitað er hún i
dragt, hvort, sem hún er á ferð
inni seint eða snemma. En hún
ræður því sjálf, hvernig dragt
hún velur sér. Hvort efnið er
tvíd eða þunnt krep eða jafnvel
ennþá þynnra siffon. Vill hún
Framhald á 14. síðu.
★ MINNSTA hreyfing kemur
hreyfingu á tvíhnepptu káp-
una frá Ninu Ricci. Þessi kápa
er nokkuð einkennandi fyrir
káputízkuna í ár. Kragalausar
kápur sjást varla, og þessi
stíll virðist ætla að slá í gegn.
Einfaidur frakki með eilítið
útvíkkandi pilsi og eilítið dreg-
inn inn í mittið — (en ekki
aðskorinn). Kraginn er lítill
og hornin pen. Ermarnar eru
þröngar fram. Það eru klaufar
upp í liliðarnar á þessum
frakka — en það er ekki nema
einkahugdetta Ninu Ricci.
★ TAKIÐ eftir hattinum — hann
minnir á stílinn 1930.
ÞAÐ er ekki sagt, að þetta sé fallegasta dragtin í blaðinu og þess
vegna sé myndin tvídáika, en hún er dálítið einkennandi fyrir íízk-
una, sem kom með vorinu. Sléttu skrautlausu fötin eru að faverfa,
alls konar krúsindúllur og skraut setja svip sinn á vortízkuna. Sumt
er ákaflega fallegt og kvenlegt, rósir. pífur og slaufur í hæfilegum
mæli, —^ sumt virðist aftur á móti allt að því ofhlaðið eins og
þessi dragt frá Pierre Cardin. Jakkinn er með stórum tölum og mjó-
um kraga, breiða beltið, sem alls staðar er að sjá í vor sést hér undan
jakkanum og pilsið er með þessari nýju hálfvídd — og þó í víðara
★ HÉR KOMA léttu efnin ljós-
lega fram. Þessi kjóll frá Marc
Bohan hjá Dior er úr laufléttu
efni og plíseraður allt um
kring. Beltið er yfirílekkt úr
sama efni og kjóllinn, og undir
plíseraða yfirpilsinu er annað
slétt pils.
★ HÉR ER Hior-dragt með slétt-
um, einhnepptum jakka og út-
sniðnu, ,,ferhyrndu“ pilsi. Tak-
ið eftir hvítu silkiblússunni og
svarta leðurbeltinu á mjöðm-
unum.
★ ÞESSI STtJLKA er þó enn þá
líkari mynd frá 1930. Húfan
situr úti í öðrum vanganum,
og pilsið er hálfvítt. Jakkinn
er tvíhnepptur og stuttermað-
ur, og takið eftir því að á pils-
inu koma einnig tvær tölur í
stíl við jakkatölurnar. Beltið
er úr sama efni og situr niður
á mjöðmum. Þetta er dálítið
strákslegur klæðnaður, enda
kallast sííllinn Garconne og
er frá Dior.
lagi með óreglulegum saumum. Takið eftir litlu blússunni, sem cr
ómissandi undir dragtinni í ár og takið eftir smáköflótta hálsklútn-
um. . . . Hann er líka ómissandi í ár . . .
ALÞYOUBLAЮ - 5. júlí 1962 J