Alþýðublaðið - 07.07.1962, Side 10
RitstjórL ÖRN EIÐSSON
Oiympíski eldurinn
Tokyo, 5. júlí. (NTB-AFP).
★ OLYMPÍSKI eldurinn fyrir
leikana 1964 verSur fluttur meS
wvwvwwwawwv.wvvw*
Drsngir og
stúlkur reynið
ykkur í frjálsum
íþróttum
★ FRJÁLSÍÞRÓTTADEILD
ÍR hefur ákveðið að efna til
nýjungar til að auka áhuga
unglinga fyrir frjálsíþrótt-
um. Þjálfari félagsins, Ung-
verjinn Gabor (hann talar ís-
lenzku) verður staddur á
Melavellinum ásamt dómur-
um á morgun (sunnudag) kl.
10,30 til 11,30.
Þeir drengir og stúlkur,
sem hafa áhuga geta komið
á þessum tíma og reynt sig.
Á morgun verður það 80 m.
hlaup og langstökk, fyrir þau,
sem fædd eru 1944 eða síðar.
Næstu sunnudaga verður
þessu haldið áfram, aðrir ald-
ursflokkar fá að reyna sig og
aðrar greinar verða á boðstól
um. Allir þeir unglingar, sem
tóku þátt í námskeiði ÍR í vor
geta að sjálfsögðu komið og
reynt sig og ailir sem áhuga
hafa eins og fyrr segir:
Bezt er að hafa æfingagalia
(overalls) og boi og stuttbux-
ur, einnig er betra að hafa
gaddaskó, en þeir sem ekki
eiga „overalls“ eða gaddaskó
geta notað gallabuxur, peysu
og strigaskó. Munið á morg-
un kl. 10,30 til 12,00 á Mela-
vellinum.
(Frjálsíþróttadeild ÍR).
flugvél frá Aþenu til Naha á Okin-
awa, segir japanska olympíunefnd-
in I dag.
Eldurinn verður kveiktur á Olym
pos 10. ágúst 1964, tveim mánuðum
áður en leikarnir hef jast.
j Á leiðinni til Japan mun olymp-
íueldurinn faráí gegn um Istanbul,
Ankara, Teheran, Kabul, Karachi,
New Dellii, Rangoon, Bangkok,
Kuala Lumpur, Singapore, Djak-
arta, Manila, Hongkong og Taipeh.
j Flugvélin með eldinn lendir á
bandaríska flugvellinum í Kadena
10. september. Þaðan munu jap-
anskir íþróttamenn leggja af stað
með hann til Tokyo og koma tii
Olympíuleikvangsins 10. október.
- íhRÓTTAFRÉn'IR
í smnu MÁu .
★ SEXTÁN þúsund manns fylgd-
ust með stangarstökks-einvígi Nik-
ula og Tork frá USA á Olympíuleik
vanginum í Helsingfors í gær-
kvöldi. Finninn gjörsigraði og
stökk 4,85 m., sem er nýtt stadion-
met. Tork varð aðeins þriðji með
4,45 m. — Saloranta, Finnl. sigraði
í 3 km. á 8:03,6 mín. Bezti tími
í Finnl. í ár_Hellén sigraði í há-
sökki með 2,08 m. bezti árangur
Finna í ár.
★ RÚSSINN Titov, sem er oiymp-
íumeistari, varð heimsmeistari í
fimleikum, en heimsmeistarakeppn
inni í Prag lauk í gærkvöldi. — í
flokkakeppni sigraði Japan, en
Rússar voru í öðru sæti.
★ ARSENAL hefur keypt Baker
frá Torino. Samningar hafa staðið
yfir í margar vikur og verðið er
ca. 70 þús. pund.
Þjálfari flokksins sýnir hér æfingu á svifrá, hann er fyrrverandi landsliðsmaður.
Sænska fimleikafólkið
vakti mikla hrifningu
SÆNSKA fimleikafólkið frá
Stokkhóimi vakti gífurlega hrifn-
ingu á fyrstu sýningu sinni í Há-
skólabíó í fyrrakvöld. Auk fim-
leikanna voru sýndir þjóðdansar
frá ýmsum byggðarlögum í Sví-
þjóð og þeir vöktu einnig athygli
áhorfenda, þó að hrifningin væri
ekki eins mikil.
Áður en sýningin hófst gengu
fiokkarnir inn á sviðið undir
sænska fánanum, en Benedikt Jak-
obsson íþróttakennari og formaður
móttökunefndar ávarpaði gesti.
Mest var hrifningin, þegar karla
flokkurinn sýndi og öryggi og fimi
flokksins var stórkostleg, bæði í
staðæfingum og á dýnu, svifrá og
hesti. Mesta athygli og hrifningu
vakti ungverskur flóttamaður, sem
dvalið hefur í Sviþjóð síðustu fimm
árin. Hann er mjög lágvaxinn og
heitir Béla Somogyi og fjaðurmagn
hans og öryggi er mikið. Annars
tilkynnti fararstjórinn með afsök-
unarhreim í röddinni, að þetta
væru nú ekki þeirra beztu menn,
,,þeir eru að keppa á heimsmeist-
arákeppninni í Prag“, sagði hann.
Kvennaflokkurinn vakti einnig
mikla hrifningu, stúlkurnar sýndu
fallegar æfingar með undirleik og
túlkuðu á fullkominn hátt kven-
legan yndisþokka.
Að loknum sýningunum gengu
flokkarnir aftur inn á sviðið og
Benedikt Jakobsson þakkaði é/-
horfendum komuna. Það er alveg
óhætt að hvetja fólk til að koma
og sjá þetta sænska íþróttafólk,
sem eru ágætir fulltrúar sænskrar
líkamsmenntar, er stendur á mjög
háu stigi eins og kunnugt er.
Úrslit í afmæl-
ismóti HVÍ
NÝLEGA birtum við umsögn um ^
50 ára afmælismót Héraðssam-
bands Vestur-ísfirðinga, en hér
koma úrslit í einstökum greinum.
Karlar
100 m. hlaup :
Karl Bjarnason, S. 12.7
Har. Stefánsson, H. 12,8
Sæþór Þórðarson, G. 12,9
400 m. hiaup :
Karl Bjarnason, S. 61,3
Kristján Hjaltason, G. 62,3
Ólafur Finnbogason, H. 62 3
1500 m. hlaup :
Sigurjón Gunnl. H. 5:12,1
Jón Pálsson, H. 5:12,9
Friðbert Jónasson, S. 5:15,8
Boðhlaup 4x100 m.:
Sveit Stefnis 51,1
Sveit Grettis 51,3
Sveit Höfrungs 53,0
Sveit Mýrarhrepps 55,1
Framhald á 14. síðu.
| í Gær hafði sænski ambassador-
! inn Aug. von Hartmansdorff og frú
boð inni fyrir íþróttafólkið og þar
var þröng á þingi. Okkur tókst
samt að ná tali af nokkrum Sví-
um og fyrstur á vegi okkar var far-
arstjórinn, Olof Schager, lögfræð-
ingur.
— Ég hef verið með þessum
flokkum í tvö fyrri skiptin, sem
þeir hafa komið hingað til lands,
\ fyrst var það 1938, en þá var ég í
| sýningarflokknum, síðan var ég far
! arstjóri 1956 og nú er ég aftur kom
| inn, sagði Schager.
— Finnst yður ekki hafa orðið
miklar breytingar hér síðan 1938?
— Vissulega, Reykjavík hefur
[ vaxið mjög hratt, bæði að útliti og
1 stærð og jafnvel síðan 1956 finnst
mér allt horfa í framfaraátt hér,
í Hingað er alltaf gott að koma og
gestrisni er íslendingum í blóð bor-
! in.
— Við búum í KR-húsinu og i-
PVamhalrt » <' síðu.
400 stúku-
miðar seidust
i gær
Stúlkurnar sýndu mjög fallegar og mjúkar æfingar.
* VIÐ ATTUM leið framhjá Ut-
: vegsbankanum í gær, en þar eru
! seldir aðgöngumiðar að landsieikn-
um gegn Norðmönnum, sem fram
fer á Laugardalsvellinum á mánu-
daginn. Salan hefur gcngið vel og
allt útiit er fyrir, að stúkumiðar
verði ófáanlegir eftir daginn í dag.
Þegar fyrsta daginn seldust 400
mið.-.’ í stúku. Fólk talar lítið um
það, þó verð á miðurn sé hærra en
venjuiega, enda verð'nr aðeins um
I Iandsleikinn að ræða og dýrt að
í taka norska liðið hingað.
J_Q 7. júlí 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ