Alþýðublaðið - 25.07.1962, Qupperneq 2
Bitstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Aðstoðarritstjóri:
Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími
14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentcmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
8—10. — Áskriftargj ald kr. 55,00 á mánuði. I lausasölu kr. r,00 eint. Útgef-
andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson.
' Afturhald Framsóknar
SÓLSKINIÐ 'virðist hafa örvandi áhrií á í-
ahyndunarafl Tímaritstjóranna. Þeir skrifa af
■ bjartsýni um þátttöku Fraansóknar í ríkisstjóm,
Qg ætla auðvitað að frelsa þjóðina frá ógnarástandi
viðreisnarinnar, þegar þeir komast í hina lang-
þráðu stóla. ’ 1
Tíminn tilkynnir, að Framsókn sé bæði á móti
íhaldi og kommúnisma. Nú vill að vísu svo til, að
ekki eru aðrir flokkar á þingi en þeir, sem Fram-
sóknarmenn kalla íhaldsflokka og kommúnista.
Kemst Framsókn ekki hjá því að vinna með þess-
úm höfuðórvinum, því ekki fær hún ein meirihluta
4 þingi. Reynir Tíminn að bjarga sér úr þessari
' fyrirsjáanlegu klípu með því að lýsa yfir, að þessir
ilokkar muni batna, ef þeir aðeins vinni með Fram-
^ókn, ög verði þá frjálslyndir.
Menn muna eftir slíkum stökkbreytingum á
flokkum. Einu sinni var í landinu minnihluta-
stjórn Sjálfstæðisflokksins, sem Framsókn átti
ýkki nógu sterk orð til að svívirða, meðal annars
fyrir þá íhaldssemi, að leggja til lækkun krónunn-
ar. Lagði Framsókn fram vantraust á Sjálfstæðis-
menn, fékk það samþykkt, en skreið síðan til sam-
starfs við þá og lækkaði gengið með þeim ! Þarna
hefur Sjálfstæðisflokkurinn líklega snöggbreytzt
í vinstri flokk á því einu að vinna með Framsókn!
Skyldi Tímann dreyma um að endurtaka þetta
fræga pólitíska sjónarspil ?
Það er annars furðulegt, að Framsóknar-
flokkurinn skuli leyfa sér að kalla sig vinstri flokk:
Þarf ekki að benda á annað en tryggingamálin til
að sýna, að flokkurinn er í veigamestu umbóta-
málum okkar samtíðar hinn mesti dragbítur. All-
ar meiri háttar breytingar á tryggingalöggjöfinni,
sem stefnt hafa að aukinni tekjujöfnun og meiri
aðstoð þjóðfélagsins við lítilmagnann, hafa verið
gerðar, þegar Framsókn hefur verið utan stjórnar.
Er fil dæmis sláandi, að í vinstri stjóminni gat
Alþýðuflokkurinn engan stuðning fengið við til-
Iögur sínar um stóraukningu trygginganna, og
:þær breytingar voru ekki gerðar, fyrr en í tíð nú-
verandi stjórnar.
Framsóknarflokkurinn er harðskeyttur sér-
hagsmunaflokkur, sem hefur verið fjandsamlegur
verkalýðshreyfingunni alla tíð, nema hann geti
sjálfur haft gagn af henni, afturhaldssamur í fé-
Iagsmálum og að ýmsu leyti mesti íhaldsflokkur
landsins. Þetta eru staðreyndir, sem hreytast ekki,
þótt Framsókn sjái sér stunarhag í að þykjast vera
róttækur vinstriflokkur.
atMiiiMiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiii’uiiiiiiifiiiiiiiiHiiiimiiiiiiiiiiiiimiiiiim.iimiiiuiiiiiiiiiiii ........
Iþróttamenn í öllum löndum
hressa sig á COC^ ~ COLA
Þessi vinsælasti
svaladrykltur veraldar
gefur þægilega hressingu,
sem eykur ánægjuna
og gerir skapið
létíara.
HANNES
Á HORNINU
★ Tjöld í Öskjuhlíð.
★ Ferðafólk á hrakningi
★ Nauðsyn á útbúnaði.
★ Tjaldsvæði nauðsyn-
leg við fjölmenna
byggð.
NOKKRUM SINNUM á þessu
sumri hef ég veitt því athygli að
erlendir ferðalangar hafa slegiö
tjöldum á Öskjulilíð. Þar hafa þeir
búið um sig meðan þeir hafa áð
í Reykjavík, en allir hafa þeir
haldið lengra, upp á jökla og inn
á öræfi, og komið svo aftur og
slegið tjöldum aftur á hlíðinni þar
til þeir hafa haldið heim. Smáveg
is bar á þessu í fyrrasumar, en
áður hafa nokkrir sett upp tjöld
annars staðar.
HÉR MUN FYRST og írcmst
vera um að ræða skólafólk, sem
farið hefur hingað í námsferða-
lag og því haft ákveðinn íiigang
með ferðinni. Þetta fólk hefur
ekki mikið fé handa á milli, enda
verður það ráðið af búskap þess
og útbúnaði, en vitanlega vcrður
maður að taka ekki síður á móti
því en hinu, sem er loðnara um
lófana. Þetta er allt ungt fólk, scm.
leggur mikla stund á nám sitt og
hver véit nema það komist í
fremstu röð meðal þjóða sinna
þegar tíma líða.
EN VIÐ UEYKVÍKINGAR ger
um ekkert fyrir það. Aðbúnaður á
Öskjuhlíð er bókstaflega enginn.
Ég hef komið í tjaldbúðasvæði er-
lendis og séð hvernig þau eril
skipulögð og hvernig borgirnar
búa í haginn íyrir þetta fólk. Við
höfum einnig kynnst því á Akur-
eyri, en Akureyri er íyrirmynd
um þetta mál. Þar hafa bæjaryfir
völdin haft uppi forystu um goit
tjaldbúðasvæði, enda er ír.ór sagt
að þar uni fólk sér vel.
ÞAÐ ER MIKIÐ vafamál að
Öskjuhlíðin sé gott tjaldbúða-
Framhald á 14. síðu.
ÚTSALA - IJTSALA
Borðdúkar, 20% — 50% afsláttur.
GARDÍNUBÚÐIN
Laugavegi 28.
2 25. júlí 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
\