Alþýðublaðið - 25.07.1962, Side 4
Guðni Guðmundsson:
ERLENÐ TIÐINDI
VIÐ EBE SENN AÐ UUKA
Samningaumlcitainr Bretn fií
ÍEfnahagsbandalag Evrópu virS-
rast nú vera aö komast á lokastig,
aS því er sum brezk blöð tclja.
•Segja þau blöð, að sexveldin
hafi nú komið sér saman um hve
langt þau séu reiðubúin að
ganga til móts við skilyrði Breta
fyrir því, að þeir geris't aðilar.
Jafnframt berast fregnir um, að
Spaak, utanríkisráðherra Belgíu
hafi nú skipt um skoðun að því
er varðar viðræður um pólitíska
einingu Eviópu og sé nú fús
til viðræðna, áður en fullvíst
er orðið um aðild Brcta. Segjai]
má, að fundur jafnaðarmanna í
Brussel um fyrri helgi liafi
breytt viðhorfum talsvert mikið.
Fréttaritari Observer í Bruss
el segir, að sexveldin séu nú
reiðubúin til að taka upp
stefnu „skynsamlegs verðlags“
á landbúnaðarafurðum gagn-
vart „hvítu“ samveldislöndun-
um þ.e.a.s. Kanada, Ástralíu og
,sennilega Nýja Sjálandi. Þessi
stefna mundi hafa í för með sér
að takmörkúð yrði framleiðsla
landbúnaðarafurða, þannig að
jlandbúnaðarvörur frá Samveld
inu og öðrum ríkjum kæmust
að á Sameiginlega markaðn
um, sem annars mundi vera
sjálfum sér nógur á næstu tiu
árum eða svo.
í öðru lagi séu forsvarsmenn
sexveldanna reiðubúnir til að
Hugh Gaitskeil
kalla saman alþjóðaráðstefnu til
að tryggja verðlag og magn
helztu landbúnaðarafurða. Þá
segir fréttaritarinn, að sér skilj
ist, að samkomulag sé um þörf-
ina á að gefa sérstakan gaum
að smjörútflutningi Nýja Sjá-
lands til Bretlands. Þetta er
hins vegar viðkvæmt mál, þvi
að á það er bent, með réttu, á
meginlandinu, að miðað við smá
bændur á Suður-ítaliu eru
bændur í N'ýja Sjálandi miUjón
ungar. Segii fréttaritarinn. að
sexveldin telji sig sýna mikinn
skilning með því að vilja slaka
til í þessu máli.
Paul Ilenry Spaak
Þá munu sexveldin eftmig
liafa gert samkomulag að því
er varðar aðstöðu samveldis-
landanna í Asíu.
Ef við snúum okkur að hinu
atriðinu, breytingunni á af-
stoðu Spaaks, þá kemur hins
vegar dálítið annað í Ijós. Svo
er að sjá, sem Spaak liafi orðið
all heitt í liamsi á fundinúm í
Brussel og jafnvel liaft við orð
að svo virtist, sem brezkir jafn
aðarmenn vildu, að „allt Efna-
hagsbandalagið gengi í Samveld
ið“. Það er a.m.k. alveg Ijóst, að
fundurinn í Brussel, og aðallega
afstaða Gaitskells, leiðtoga
brezkra jafnaðarmanna, og þá
sennilcga fulltrúa Dana og Norð
manna, sem tóku í sania streng
og hann, hafi valdið Spaak von-
brigðum, svo mikluin, að hann
liefur skipt um skoðun, að þvi
er varðar að vilja ekki ræða
hina pólitísku einingu fyrr en
útséð væri, hvort Bretar gerðust
aðilar eða ekki.
Gaitskell lagðist mjög hart
gegn pólitískri einingu Evrópu
í því formi, sem Spaak hefur ár
um saman stefnt að, þ.e.a.s.
ríkjasambandi Evrópu. Og hann
hafði alla fulltrúa frá þeim
löndum sem þegar eru aðilar
að EEC, á móti sér. Það er svo
að sjá, sem þessi munur á af-
stöðu jafnaðarmannaflokkanna
sé nokkuð djúpstæður, því að
svipað sjónarmið sjónarmiði
Spaaks kom fram á þingi Al-
þjóðasambar.di frjálsra verka-
lýðsfélaga í Berlín um svipað
Icyti. Kom það fram í einka-
viðræðum, að verkalýðsfélög
sexvcldanna mundu krefjast for
gangsréttar fyrir sitt fólk til
vinnu í Bretlandi, fram yfir
fóik frá Samveldinu.
Áreksturinn milli Spaaks og
Gaitskells virðist nú þegar hafa
haft þær afleiðingar, að Spaak
hefur fallizt á að ræða við for-
ustu menn annarra ríkja Sam
eiginlega markaðsins um hin
pólitísku mál, áður én útséð er
um aðild Breta. Þó tclja sumir
að hann hafi enn einhverja von
um að komast upp á milli dc
Gaulle og Adenauers að því er
■varðar pólitíska einingu Evrópu
Svo sem kunnugt er vill de
Gaulle helzt fá fram samband
ríkjanna án nokkurs „yfir-þjóð
Iegs“ valds, en í versta falli
eitthvert slíkt vald. Hins vegar
er hershöfðinginn alveg á móti
ríkjasambandi Evrópu, eins og
Spaak vill hafa það. Er nú talið
að Spaak muni gcra tilraun til
að kljúfa í þessu máli og fá Ade
nauer á sitt mál.
Það, sem Spaak óttast, er, að,
de Gaulle hyggist reyna að
koma upp einskonat „þriðja
afii“ í Evrópu undir forustu
Frakka, er sé hlutlaust milli
Bandarikjanna og Rússa. Óttast
hann ennfremur, að í samein-
aðri Evrópu muni smáríkin hafa
eitthvað að segja, þar sem í
hinu kerfinu verði aðeins um
að ræða, að liinir sterku ráði.
Hefur hann til þessa talið, að
mjög mundi draga úr hættunni
á þessu, ef Bretar gerðust aðil
ar. Hefur hann einkum verið
bjartsýnn á þetta undanfarið,
þar eð allt útlit er fyrir, að
næsta stjórn Bretlands verði
jafnaðarmannastjórn. Ilann hef
ur nú hins vcgar rekizt á þann
þröskuld að Gaitskell. líka minn
ugur þess, að hann kann að
verða næsti forsætisráðherra
Bretlands, vill ekki skuldbinda
sig tii að láta Samveldið róa
með það fyrir augum að verða
hluti af Sameinaðri Evrópu.
Þessi mál eru enn öll í deigl
unni og erfitt að segja um
framvinduna, en nú alveg á
næstunni kann að vera, að mál
in skýrist nokkuð, bæði í samn
ingaviðræðunum í Brussel og á
ráðherrafundinum I Róm.
Afstaöa Macmillans hefur
hingað til verið eindregin í þá
átt að koma Bretlandi inn í Sam
eiginlega markaðinn. Suiuir
vilja þó álíta nú, að einhver
svartsýni kunni að vera farið
að gæta hjá brézku stjórninui.
Draga menn þá ályktun fyrst
og fremst af því, að Macmillan
skipaði Reginald Maudling fjár
málaráðherra, en hann kvað
vera fremur á móti aðild að
Efnahagsbandalaginu. Þetta á
væntanlega einnig eftir að skýr
ast á næstunni.
WMðWWHWWWWWWWWWMWWIWMWðWWMWWtWMWWIMMWMttMMMWWW
4» 25. júlí 1962 - ALÞÝ6UBLAÐIÐ
Athugasemd við
greinargerð meist-
arafélagsins
STJÓRN Meistarafélags húsa-
smiða hefur sent frá sér greinar
gerð, hina furðulegastu smíð, um
kjaradeilu Trésmiðafélags R-vík-
ur við Meistarafélagið og Vinnu-
veitendasamband íslands. Þar
sem í greinagerðinni er ýmist
farið rangt með, ellegar þagað
yfir staðreyndum til hagrseðis
þeirra „málstað" þykir okkur rétt
að fara um hana nokkrum orðum
án þess að við teljum slík blaða-
skrif vænleg til lausnar kjara-
deilu, en skorumst heidur ekki
undan framhaldi þeirra eí óskað
er.
Áður en U1 auglýsingar kaup-
taxta kom, hiiiðu samningavið-
ræður staðið nolckuð á annan
mánuð, án þess að nokkuð þokað
ist í samkomulagsátt, og hafði
Trésmiðafélagið veilt vinnuveit
endum frest á aðgerðum af sinni
hálfu. Það er íyrst að þe m fresti
loknum. að okkur er tjáð, að
íramkvæmdanefndafundur
Vinnuveitendasambandsins, ekki
Meistarafélagið, hafi samþykkt
að vísa deilunni til sáttasemjara,
og buðu Trésmiðafélaginu sam-
flot þar um. Til þess íöldum við
ekki ástæðu, né vænlegt íil 1 tusn
ar meðan meistarar sýndu engan
vilja í samkomulagsátt. í gre'.nar
gerð sinni birta meistarar íilboð
sem þeir segjast hafa gert Xré-
smiðafélaginu meðan á samninga
viðræðum stóð', en hvers vegna
að birta rangt boð, þegar bæði
Trésmiðafélagio og sátt.lsomjari
hafa rétta tiiboðið í höndum', en
það er þannig.
25.66x46.28=1.187.54
1.187.54x110 = 1.306.29 (10%)
1.306.29x106 = 1.384.67 (lífeyrissj)
Verkfæragjald 1.20-j-10%=1.32
Framhald á 14. síðu.
FJALLAGARPAR
UM þessar mundir stendur
yfir námskeið fyrir 8 til 14
ára drengi í íþróttaskóla
Höskuldar Karlssonar og Vil
hjálms Einarssonar að
Reykjadal í Mosfellssveit.
Drengirnir leggja stund á
ýmsar íþróttir og m.a. fara
þeir í fjallgöngur, en þessi
skemmtilega mynd er ein
mitt tekin við slíkt tækifæri.
Námskeiðin standa yfir í 10
daga og það næsta hefst 8.
ágúst. Þessi starfsemi er öll
hin merkilegasta og til gagns
og ánægju fyrir unglingana.
f