Alþýðublaðið - 25.07.1962, Blaðsíða 11
WWWWWWWMWWWIW
Knattspyrna
Framhald af 10. síðn.
og fyrr segir var furðu vel sam-
stillt, bar mest á h. innherjanum,
Jörgen Jörgensen, 19 ára gömlum.
Hann er mjög snjall leikmaður,
bæði „taktiskur og tekniskur".
Hann átti sinn mikla og góða þátt
í öllum mörkunum, einkum þó
tveim þeim síðari.
Aðspurður eftir leikinn, sagðist
hann hafa byrjað að æfa knatt-
spyrnu 6 ára gamall og farið að
keppa, er hann hafði aldur til, og
m. a. leikið með úrvali DBU. Hér
er á ferðinni piltur, sem áreiðan-
lega á eftir að láta að sér kveða
í danskri knattápyrnu, ef honum
endist líf og heilsa, svo glæsilegur
leikmaður, sem hann er þegar
orðinn.
HIB - VÍKINGNR'-4:0.
Þegar að leik Þróttar og gest-
anna loknum hófst leikur Vikings
og þeirra í III. fl. Var þar næsta
enn meiri munur á, en í fyrri
leiknum. Eftir 7 mínútur lá knött-
urinn í fyrsta sinni í Víkingsmark
inu. H. innherjinn sendi knöttinn
inn með laglegum skalla, úr send-
ingu frá v. útherja. Bæði sending-
in og skallinn var mjög vel fram-
kvæmt. Aftur skora gestirnir með
skalla 10 mínútum síðar, það gerði
h. innherjinn. Meginhluta hálf-
leiksins lá knötturinn á Víking-
unum, en loks rétt fyrir hlé, tókst
þeim að sækja svo að knötturinn
komst út fyrir endamörkin Dan-
anna megin, voru það einu sóknar-
tilþrifin hjá þeim. En allan leik-
inn tókst Víking ekki að setja
mark Dana í neina hættu. í síðari
hálfleik bættu svo Danir tveim
mörkum við. H. innherji skoraði
það fyrra og v. innherjinn það síð-
ara. Leikurinn í heild var ójafn,
þar sem annars vegar, reyndar
eins og í fyrri leiknum iíka, þó
enn meira áberandi í þeim síðari,
áttust við, hraðinn byggður á
staðgóðri sendingu, stöðukunnáttu,
og samleiks, en hinsvegar meira og
minna skortur á leikrænum skiln-
ingi og yfirsýn — blindri tilvilj-
un.
Hversu fer um úrslit þeirra
leikja, sem Danirnir eiga eftir að
leika hér, skal ósagt látið, en þeir
munu nú í kvöld hitta fyrir KR í
II. og III. fl. á Melavellinum, þá
er það víst, að af piltum þessum
geta jafnaldrar þeirra hér margt
lært, sem til góðrar knattspyrnu
tekur. og eins hitt, að þeir, sem á
annað borð hafa gaman af lipurri
og fágaðri knattspyrnu verða ekki
fyrir vonbrigðum að horfa á leiki
þeirra. _______ EB
Landskeppni
Framhald af 10. síðu.
SPJÓTKAST
1. Elvira Ozolina, Sovét, 55,89
2. Alevitna Sjastitko, Sovét, 51,13
3. Renae Bair, USA, 44,83
4. Karen Mendyka, USA, 43,47
KRINGLUKAST
' I. Tamara Press, Sovét, 57,73
2. Olga Conolly USA, 50,94
3. Antonina Zolothukina, So. 49,53
4. Sharon Stepherd, USA, 46,10
4x100 m. BOÐHLAUP
1. USA (White, McGuire, BrQ\vn,
Rudolph) 44,6
2. Sovét (Motina, Moslovskaja,
Itkina, Povova) 44,9.
SÍLDIN
Framh. af 1. síðu
Páll Pálsson 700 tn.
Ágúst Guömundsson. 1000 tn.
Fákur 1800 tn.
Sæfell SH 900 tn.>
Baldur 500 tn.
Einar Hálfdáns .... 900 tn.
Andri 600 tn.
Haraldur 600 tn.
GuSrún Þorkelsdóttir 700 tn.
Víðir II 400 tn.
Rán ÍS 400 tn.
Árni Þorkelsson .. 300 tn.
Sæþór 300 tn.
Sigurður SI 750 tn.
Hafrún IS 1200 tn.
Meta 100 tn.
Steingrímur trölli .. 1550 tn.
Hafþór RE 700 tn.
Sæfari BA . . .. .. 800 tn.
Dofri 700 tn.
Straumnes 700 tn.
Guðbjartur Kristján 1000 tn.
iGjafar 900 tn.
Eldborg 600 tn.
Draupnir 500 tn.
Anna 1300 tn.
Steinunn .. .. v. 600 tn.
Bjarni Jóhnnnesson 700 tn.
Hugrún ÍS 700 tn.
Höírungur 700 tn.
Bjarni 700 tn.
Jón á Stapa 400 tn.
K
Frá síldarleitinni á Raufarh.
Björgvin .........
Ólafur Tryggvason
Héðinn.........
Jón Garðar
Ólafur Magnússon A
Smári .........
Helgi Flóventsson
Júlíus Björnsson
Akraborg . . . .
Farsæll........
Grundfirðingur II
Ásgeir Torfason
Sigurður AK . .
Björn Jónsson
Höfrungur II ..
Garðar...........
Máni HU .. ..
Jón Jónsson ..
Guðm. Péturs . .
Halldór Jónsson
400 tn.
800 tn.
700 tn.
1100 tn.
1000 tn.
900 tn.
600 tn.
550 tn.
400 tn.
200 tn.
800 tn.
550 tn.
1200 tn.
1100 tn.
1000 tn.
400 tn.
1000 tn.
900 tn.
400 tn.
600 tn.
Frá síldarleitinni á Seyðirf.
Einar 1100 mál
Þorgrímur 800 tn.
Valafell 1000 tn.
Glófaxi 750 mál
Ásgeir 700 tn.
Reykjaröst 450 tn.
Stígandi VE 700 tn.
Gullfaxi 1200 tn.
Hrefna 400 tn.
Gylfi EA 300 tn.
Erlingur IV 700 mál
Mummi GK 600 mál
Sæljón 400 tn.
Fram 700 mál
Rifsnes 500 tn.
Gullver 900 tn.
Hoffell 500 tn.
Hafþór NK 900 mál
Ingiber Ólafs 1100 tn.
Gunnar SU 500 tn.
Kambaröst 300 tn.
Heimir SU 700 tn.
Ól. Magnús. EA 1400 tn.
Kristbjörg 450 tn.
Hannes Hafstein 300 mál
Svanur IS
Reykjanes
750 mál
400 tn.
Bæjarbíó: Nazarin
verk Bunuels.
snilldar
Hér í Alþýðublaðinu hefur áð
ur lítillega verið minnst á
þessa einstæðu kvikmynd, einn
igr hefur Pétur Ólafsson gert Bun
uel og myndum hans nokkur skil
í lesbók Morgunblaðsins.
Bæjarbíó hefur nii hafið sýn-
ingar á Nazarin og þar með
gert þeim, sem áliuga hafa á kvik
myndalist- og sannmennskri leit
hennar að fullkomnun, hinn
mesta greiða..
Luis Bunuel er landflótta Spán
verji, sem hefur frá lokum borg
Vrastyrjaldarinnar á Spáui að
mestu dvalizt í Mexieo og átt
hvað ríkastan þátt í að gera kvik
myndagerð þess lands heims-
fræga.
Eins og hjá flestum hinna
mestu snillinga kvikmyndalistar-
innar fyrr og síðar er maðurinn
höfuðviðfangsefni hans — mað
urinn og mannssálin.
Honum er eins og fleiri stór
mennuin, sem skapandi geta kall
ast og enn eru stórvirkir, dimmt
fyrir augum. Maðurinn verður
ekki ofurmennsk heíja, guðlegt
gæzkuljós eða annað slíkt fyrir-
bæri í tjáningu hans: nema í Ijós
komi, áður en lokið er, að' mann
skepnan er of samsett til þess
og geta virst og verið' það sama.
Sumum hefur þótt Bunucl um
of djarftækur ti! þeirra hluta er
sýna mannkynið í skuggalcgu og
jafnvel óhugnanlegu ljósi — En
einkennileg tilviljun er það', að
meistararnir, sem dýpst hafa
skyggnst í mannlegt sálarlíf og
atferli hafa yíirleitt komizt að
þeirri niðurstöðu, að mannkynið
verði ekki sýnt í réttu Ijósi, án
þess að kafa í afglöpum þess og
svívirðu.
Nazarin, mynd Bunuels, sem
hér er gerð að umtalsefni, er ekki
þeirrar gerðar, sem mcsi hefur
hneykslað frómar sáli>' á undan
förnum áratugum, en liún er
engu að 'síður stórkostiegt dæmi
um leit Bunuels að manninum
í manninum. Klerkur nokkur af
neitar öllum lífsgæðum, til þess
að geta miðlað öðrum — en lifir
sjálfur á ölmusu. Ilann tekur
undir sinn verndarvæng gleði-
konu, sem drepið hefur starfs-
systur sína — og kemst með því
í kast við lögin Hann heldur út
á þjóðveginn til þess að vera «ig
um til ama og kemst þar að raun
um trúgirni og hjátrú kvenna —
það verður til þess að hann fær á
sig dýrlingsnafn og tvær konur
fylgja honum á göngu hans eftir
það, sem meistara sínum og
herra. Hann vonar allt, trúir
öllu, umber allt, en staðreyndir
veraldarinnar eru honum ókunn
ar og hann þrjózkast við að við
urkenna þær.
Þannig heldur hann áfram.
göngu sinni, og hann sem vill
reynast algóður kemst smám sam
an að raun um það að veröldin
viðurkennir ekki slíkt líf, slíka
menn.
Glæpamaður nokkur verður til
að kenna honum speki, sem fær
hann til að skelfast og efast og
að lokmn bíður hann algjört skip
brot. — En hverju veldur það
skipbrot, því lætur Bunuel ó-
svarað.
Eins og út úr öðrum miklum
listaverkum geta menn úr þessari
mynd lesið það, sem þeim sýnist,
það er ekkert unnið fyrir þá —
það er tæpt á ýmsu, en þýðing
þess er ekki algjör fyrir áhorf-
endann.
Myndin virðist við fyrstu sýn
allt að því grunn, en hún dýpkar
því meira, sem menn sökkva sér
í hana og loks verða menn þess
fullvissir, að hún eigi fáa sína
líka.
Hún er í senn einföldust allra
ýnynda og sú margsluugnasta.
Hana skyldu allir sjá — H.E.
Áætlunarbíll frá Norðurleiðum valt:
TVÆR FLUTTAR
Á SJÚKRAHÚS
ER áætlunarbíll frá Norðurleið-
um var að fara upp brekkuna
fyrir ofan Bakkasel í Öxnadal í
gærdag, brotnaði vegarkanturinn
undan bílnum og valt hann út af.
Tvær konur slösuðust og voru
fluttar á sjúkrahús á Akureyri.
Önnur þeirra var viðbeinsbrotin,
og hafði hlotið skrámur, en hin
var lítið meidd. Aðrir farþegar
sluppu með litlar skrámur.
Lögreglan á Akureyri var köll-
uð á staðinn um kl. 11 í gærmorg-
un, og lá þá bíllinn á hliðinni
fyrir neðan veginn, en þarna varj
kanturinn all hár. I bílnum voruj
13 manns, og eins og fyrr segir,'
voru tvær konur fluttar á sjúkra-j
hús.
Alþýðublaðið ræddi i gær við
Jón Egilsson, forstjóra Norður-
leiða á Akureyri, og sagði hann/
að bíllinn hefði verið á lítilli ,
ferð, er hann fór út af, en ekið
heldur nærri kantinum, og svo,
að kanturinn gaf eftir. Ekki var
áætlunarbíllinn að víkja þarna
fyrir neinum öðrum. Bifreiðin
skemmdist mjög mikið.
L
vatR
„ tk#* .'ll
KHQKt |
Umboðsmenn HAB á!
Norður- og Austur-l
landi.
Ilrútafjörður:
Magnús Gíslason, kaupm.
StaSarskála
Hvammstanga:
Bjöm Guðmundsson, bafnarv.
Sauðárkrókur:
Konráð Þorsteinsson, kaupm.
Varmahlíð:
Sigurður Haraldss., hótelstjóri.
Hofsós:
Þorsteinn Hjálmarss., símstjórl.
Siglufirði:
Jóhann Möller, fulltrúl.
Ólafsfirði:
Sigurður Ringsteð Xngimund-
arson, bifreiðastjóri.
Dalvík:
Jóhann G. Sigurðsson, bóksall.
Akureyri:
Stefán 'Snæbjörnsson, verzLm.
Húsavík:
Þorgrímur Jóelsson, fiskasH.^
Raufarhöfn:
Guðni Þ. Ámason, verzl.m. j
Þórshöfn:
Jóhann Jónsson, verzlunann.
Bakkafirði:
Jón A. Árnason, útibússtjóri
Neskaupstað:
Sigurjón Kristjánss., verzl.m.
Egilsstöðum:
Gunnar Egilsson, útvarpsvirkL
Seyðisfirði:
Ari Bogason, bæjarfuiltrúi
Eskifirði:
Bragi Haraldsson, verzlm.
Reyðarfirði:
Egill Guölaugsson, kaupmaður.
Fáskrúðsfirði:
Óðinn G. Þórarinsson, kaupm,
Dregið verður næst
10. ágúst um Tatrnus
fólksbifreið.
Verðmæti kr. 164
þúsund krónur.
Aðeins 5000 númer.
Endurnýjun er hafin.
LÁTIÐ EKKI HAB
ÚR HENDI SLEPPA.
WWWWWWWWWWI
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 25. júlí 1962 H