Alþýðublaðið - 29.08.1962, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 29.08.1962, Blaðsíða 5
ÉÉtÉl v - § «1; . | KVR bátur kom til Grindavíkur í gær. Er það 155 tonna stál- skip smíðað í Austur-Þýzkalandi. Hlaut hann nafnið Sigfús Bergmann GK 38. Eigzl.idi er hlutafclagið Hafrenningur. Skip- stjórj á heimieiðinni var Ólafur Björnsson, skipstjóri í Keflavík. Myndip sýnir bátinn við komuna. (Ólafur Þorvarðarson, Lága- felli Grindavík, tók myndina.) 120 SÚTTU ÁRS- ÞING SÍR 20. ÁRSÞING Sambands ísl. rafveitna var haldið í Keflavík dagana 23.-25. ágúst og lauk um kvöldið laugardaginn 25. ágúst, með samkvæmi í salarkynnum Rafha í Hafnarfirði. Alls sóttu þingið rúmlega 120 manns, rafveitustjórar og aðrir fulltrúar rafveitna, svo og konur þeirra. Margvísleg málefni rafveitn- anna voru rædd á þinginu. Má þar' nefna virkjunarmál, stjórn- unarmál rafveitna, gjaldskrármál, reglugerðarmál og mörg fleiri málefni. Flutt voru þar og mörg erindi, svo sem um virkjunarrannsókn- ir í Þjórsá, Hvítá og Jökulsá á Fjöllum á vegum Raforkumála- skrifstofunnar. Erindi um stórar Stíflur, er Árni Snævarr forstjóri Almenna byggingafélagsins flutti, og erindi, er Jakob Guðjohnsen rafmagnsstjóri flutti um nýja há spennulínu frá Sogi til Rvikur. A fundinum var kjörin stjórn sambandsins fyrir næsta starfsár. Hana skipa: Jakob Guðjohnsen, rafmagns- stjóri formaður, Eiríkur Briem, rafveitustjóri ríkisins, ritari og varaform. Baldur Steingrímsson deildar- verkfr. gjaldkeri — og meðstjórnendur Óskar Eggertsson, rafveitustj. Andakílsárvirkjunarinnar og Ad- olf Björnsson, rafveitustjóri á Sauðárkróki. Steingrímur Jónsson, fyrrver- andi rafmagnsstjóri í Reykjavík, sem verið hefur formaður sam- bandsins frá stofnun þess, baðst nú eindregið undan endurkosn- ingu. Var sú beiðni hans tekin til greina, en hann hins vegar kjör- inn heiðursformaður sambands- ins og hylltur fyrir ágætt starf og forustu rafveitnasambandsins á liðnum árum. ÓÁKVEÐIÐ ) UPPLAG NÝ íslenzk útgáfa af Evróini- frímerkjum kemur út 17. septetn- ber næstk. Eru það tvö mer ti, grænt og gult og er yerðgildé þeirra 5,50 og 6,50. Þau eru meí>- mynd af tré með 19 laufblöðum. í auglýsingum frá frímerkja- sölum um merki þessi, er þess getið, að upplag þeirra verði óá- kveðið. Eins og kunnugt er, þá urðu miklar deilur og blaðaskrif er Evrópu-merki komu hér út síð- ast, og var það vegna þess, að frí- merkjakaupmenn víða um heim, sem pöntuðu merkin, fengu ekki' það, sem þeir báðu um vegna' takmarkaðs upplags. Nú á auðsjáanlega að koma; í veg fyrir að sama sagan endurtakj sig ekki, og hefur póststjórnin því ekki ákveðið upplag merkj- anna, þannig, að hægt yrði að prgnta meira ef skortur yrði. — Þetta minnkar að vísu sölumögu- leikana á merkjunum. Fréttir frá Akureyri: snéri aftur en ekki biluð Akureyri í gærkvöldi: ALLT komst í uppnám hér, þeg ir um það fréttist, að Skymaster- ilugvél, sem lagði upp héðan í 'tvöld væri með bilaða vél. Flug- stjórinn tilkynnti flugturninum hér, að einn hreyfillinn væri bilað ur og snéri aftur til Akureyrar eft ir stutta ferð en á vellinum voru gerðar allar ráðstafanir til að taka á móti vélinni, sem ætlaði að lenda hér aftur á þrem hreyflum. Sjúkrabifreið, lögregiubifreiðum og brunabifreiðum var ekið á vett vang og múgur og margmenni hafði safnazt saman til að fylgjast með lendingu vélarinnar. Vélin lenti heilu og höldnu og við vélarskoðun kom engin bilun í ljós. Skömmu síðar hélt flug- stjórinn aftur af stað með þessa sömu vél og voru þá allir hreyflar í gangi. Bærinn er með miklum liátíðar- brag. Hátíðarlýsing er hvarvetna í miöbænum, fjöldi gesta er kominn til bæjarins til að taka þátt í af- mælisnátíðinni, sem nær hámarki á morgun. Eftirvænting liggur í loftinu, — en það skyggði nokkuð á gleði manna, að áfengisverzlunin var lokuð hér í morgun fyrirvara- laust, og þótti mörgum súrt í broti. í dag var opnuð Iðnsýning á Akureyri, að viðstöddum forseta íslands, herra Ásgeiri Ásgeirssyni og fleira stórmenni. — Árni. Jóhann strauk Framh. af 16. siðu samlega, og ekki gert neinar til- raunir til stroks síðan í fyrrahaust en þá komst hann til Reykjavikur og brauzt víða inn ásamt öðruSn sakamanni að austan. Bíllinn sem Jóhann stal að þessu sinni, var mjög illa farinn eftir öku ferðina, og var vélin m.a. úrhrædd Er það mikið tjón fyrir eigandann, þar eð Jóhann er vissulega ekki borgunarmaður fyrir skemmdim HENNAR konunglega hátijli, Márgrét prinsessa, vakti feiki lega athygli, þegar hún tróð upp í þessum ævintýralega búningi á sjálfstæðishátíð Jamaica, sem haldin var ekki alls fyrir löngu Prinsessan var í níðþröngum kjól með axlaslá sem náði niður á fald og sem hékk næstum laflaus eins og kápan á öxl Sæmund- ar fróða íerðum. Prinsessan var konunglegur fulltrúi hennar há- tignar Elísabetar Englandsdrottningar, systur sinnar, við þessi hátíðahöld. Kvöldskemmtun Suomi að Hótel Borg í kvöld Finnlandsvinafélagið Suorni1 heldur kvöldfagnað að Hótel Borg í kvöld kl. 9,20 í tilefni af komu finnska kórsins, Muntra Musikanter. Mun kórinn syngja á skemmtuninni. Ennfremur verð ur sýnd litkvikmynd, þ. e. Heklu- mynd Guðmundar Einarssonar frá Miðdal. Sitthvað fleira verð- ur til skemmtunar. Aðgöngumið- ar Verða afhentir félagsmönnum og gestum í Bókabúð Lárusar Blöndal að Skólavörðustíg 2. LEIÐRETTING í TEXTA með mynd á baksíðu blaðsins í gær víxluðust nöfn mannanna, sem á myndinni voru. Vinstra megin á myndinni var Gunnar Arthúrsson, flugmaður, og hægra megin Kristján Karl Guðjónsson, flugleiðsögumaður. Ennfremur féll niður lína úr textanum, sem átti að enda svo: Þeir félagar eru heldur kampa- kátir á myndinni, enda hafa þeir ærna ástæðu til. 90 ára Jóhanna Eiríksdóttir Melhaga 10 er 90 ára í dag. Bátur.................. Framhald af 1. síðu Þegar lekans varð vart var klukk a|K rúmlega tvö. Klukkan hálf sex í gærmorgun kom óhöfn Stellu inn til Grindavíkur með Flóakletti. í viðtalinu við Alþýðublaðið lof- samaði Einar mjög hversu örugg og hentug björgunartæki gúmmí bátarnir væru. Á Stellu voru fjórir menn auk Einars. Haukur Kristjánsson, stýri maður Hafnarfirði, Holger Vibjörk vélstjóri frá Færeyjum, Pálmi Friðriksson. II. vélstjóri úr Skaga firði og Sveinn_HaIldórsson mat- sveinn úr Reykjavík. Stella var gamalt skip, byggð ár ið 1934, en var endurbyggð einu sinni eða tvisvar. Hún var um 64 tonn að stærð. Eibar taldi ekki ólíklegt, að gam alt botnstykki, sem sett hafði verið í gat eftir dýptarmæli, kynni að hafa losnað, annars sagðist hann varla geta ímyndað sér hvað valdið hefði þessum skyndilega leka. Eins og menn rekur kannski minni til fórst þilfarsbáturinn Arn artindur í innsiglingunni i Grir.da vík 2. febrúar í fyrra. Á honum voru þrír menn, og björguðu'st tveir og var Einar anhar þeirra. Þegar honum var bjargnð hafði hann verið lengi á sundi óg var hann orðkjn meðvitundarlítill Myndin á 1. síðu var tekin afc- Einari 3. febrúar í fyrra. dagihn eftir að honum var bjargað. BEN GURION kom í dag í scx daga opinbera heimsókn til Ósló ar. í nóvemver síffastliðnum heim sótti Einar Gerhardsen til ísra-. ALÞÝ8UBLAÐIÐ - 29. ágúst 1962 £

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.