Alþýðublaðið - 29.08.1962, Síða 13
BSO - s'imi 2727
BIFREIÐASTÖÐ ODDEYRAR
er opin alla daga frá kfl.
7,30 f. h. til kfl. 2,30 a« nóttu
Annast fólksflutninga, hvert á Iand sem er.
★ Góðir bílar
★ Vanir bifreiðastjórar
★ Góð þjónusta
SALA Á:
Benzín og olíum
gosdrykkjum, sælgaeti og tóbaki.
Sími 27 27.
BSO
NAUÐUNGARUPPBOÐ
sem auglýst Var í 72., 73. og 74. tbl. Lögbirtingablaðsins 1962,
á hluta í Laufásveg 19, hér í bænum, þingl. eign Oddgeirs
Magnússonar, fer fram eftir kröfu Vagns E. Jónssonar hdl.
á eigninni sjálfri mánudaginn 3. september 1962, kl. 2 síð
degis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Sveinspróf í rafvirkjun
Þeir rafvirkj anemar sem hugsa sér að ganga
undir sveinspróf nú í haust, en ekki hafa lokið
verknámsskeiði við Iðnskólann í Reykjavík,
gefi sig fram við formann prófnefndar, Ólaf
Jensen, sími 34559, fyrir 3. sept. n.k.
Prófnefndin.
Debussy
Framhald af 4. síðu.
bussy gat nú algerlega helgað
sig tónsmíðum. Hann varð aftur
eftirsóttur og vinsæll, en fannst
hann ætíð vera einmana. Hann
vann mikið og mörg merkileg
tónverk sáu dagsins ljós.
Debussy samdi óperu, sem
byggð er á Ijóði Maeterlinck
Pelléas og Melisande. Sú ópera
er alls óskyld þeim óperuverkum,
sem þá voru hvað mest í tízku,
en hún er talin skorta dramatík
og hefur ekki náð sérstökum vin-
sældum. Hljómsveitarverkið Síð-
degi skógarpúkans hefur aftur á
móti orðið mjög vinsælt og heyr-
ist oft. Þar lýsir Debussy min>n-
ingum skógarpúkans, sem notið
hefur unaðar ástarinnar með
ungri skógardís.
Mánaskin (Claire de Lune).
Myndir (Images) og Childrens
Corner eru allt vérk, sem oft eru
leikin og kannski er nafn De-
bussy í hugum almennings einna
helzt tengdar þessum verkum.
Fyrir heimsstyrjöldina fyrri
fór Debussy margar tónlistarferð-
ir og gjörði hvort tveggja að leika
einleik á píanó og stjóma hljóm-
sveitum og vakti alls staðar
mikla hrifningu. En styrjöldín
lagðist þungt á hann og jafn-
framt yeiktist hann af krabbá-
meini. 1915 gekk hann undir
uppskurð, en náði engum bata.
23. marz skutu Þjóðverjar á
París úr hinni miklu fallbyssu
Feitu Bertu, sem hét í höfuðið
á frú Krupp. Kúlur,nar sprungu
skammt frá bústað Debussy, og j
daginn eftir lézt hann.
Claude Debussy er einstakur
í hópi tónskálda. Margir hafa
reynt að feta í fótspor hans, en
ætíð mistekizt. Hann hefur samt
haft mikil áhrif á mörg yngri
tónskáld. Um þessar mundir er
lians minnzt um heim allan sem
höfuðsnillings.
Washington, 27. ágúst (NTB).
BANDARÍSKIR embættismenn
skýrðu frá því í dag, að Kínverj
ar gætu sennilega hafið fyrstu
kjarnorkutilraunir sínar innan
fárra mánaða, en þeir ættu þá enn
langt í land að geta framleitt
kjarnorkuvopn.
MELAVÖLLUR
Reykjavíkiirmót
Leikurinn, sem ekki var lokið í vor, fer fram
í kvöld (miðvikud.) kl. 7,30.
Þá keppa
FRAM - VALUR
SUMARDVALARBÖRN
á vegum Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra
koma til Reykjavíkur að Sjafnargötu 14,
fimmtudaginn 30. ágúst, kl. 6 e. h.
Alþýðublaðið
vantar unglinga til að bera út blaðið í þessum
hverfum:
SÖRLASKJÓLI,
GRÍMSSTAÐAHOLTI.
Afgreiðsia Alþýðúbla$sins
Sími 14-900.
Hjúkrunarkonur
Stöður yfirhjúkrunarkonu og aðstoðarhjúkrunarkonu við
Sjúkrahús Akraness eru lausar til umsóknar. Upplýsingar
gefur yfirlæknir eða ráðsmaður sjúkrahúsins.
STJÓRN SJÚKRAHÚSS AKRANESS.
Framh. af 4. siðu
árum. Hins vegar mun Sovétstjórn-
in neita en>a sem fyrr að aðstoða
við byggingu einbýlishúsa. Ein-
býlishús eru talin „fjárhagslega
óhagkvæm" og „slæm „hugsjóna-
lega“ séð“.
VESTUR-ÞÝZKALAND: Willi
Richter, forseti þýzka verkalýðs-
sambandsins DGB, kallar dráp
hins 18 ára gamla Peters Fechters
við múrinn J Berlín 17. ágúst
„ótvírætt morð“. Hann fordæmdi
þá staðreynd, að piltinum var lát-
ið blæða út, þar sem hann lá
hjálparvana og alvarlega særður
í eina klukkustund eftir að austur-
þýzka lögreglan skaut á hann,
og bætti við: „Stjórnmálakerfi er
aðeins getur ríkt með slíkum ógn-
um, er ómannúðlegt og hefur eng-
an rétt til þess að ákveða örlög
17 milljón mapna“.
BRÚSSEL, 23. ágúst, (ICFTU).
Um það bil 1300 námuverka-
menn í fjórum námum í Astu-
rias-héraði hófu verkfall 20. ág-
úst til þess að ítreka kröfu sína
um fimm daga vinnuviku án
kauplækkana. Verkföllin miklu
á Spáni í apríl og maí á þessu
ári hófust í sama héraði.
Minnstu daglaun ófaglærðra
verkamanna í stáliðnaðinum í
Viscaya-héraði á Spáni hafa nú
verið ákveðin. Daglaunin eru
60 pesetar (einn bandarískur
dollari eða u. þ. b. 42 krónur).
Um það bil 45 þús. verkamenn
vinna í þessum ið,naði í Viscaya.
OF LÁG LAUN í
BASKA-HÉRUÐUNUM.
Laun þeirra voru áður 50
pesetar á dag, og var launahækk-
unin helzti liðurinn í nýjum
samningi við verkamenn. Hins
vegar voru verkamenrL ekki
spurðir ráða í þessu sambandi.
í verkalýðsfélögum Spánar eru
bæði verkamejnn og atvinnurek-
endur. Þar að auki stjórnar
ríkið og Falangistahreyfingin,
eini stjórnmálaflokkurinn á
Spáni, sem fær að starfa, félögun
um. Spönsk yfirvöld búaát við því
að þessi auknu lágmarkslaun
muni koma í veg fyrir frekari
ólgu meðal verkamanna á Spáni,
en nýju launin hrökkva
þó hvergi nærri fyrir lífsnauð.-
synjum. Samkvæmt nýlegu mati
eru 120 til 140 pesetar á dag
jnauðsynle'g lágmarkslaun verka-
manns, sem hefur fyrir fjögurra
manna fjölskyldu að sjá.
ÓBREYTT RITSKOÐUN.
Blöð og útvarpið á Spáni
skýrðu nýlega frá því, að afnema
ætti ritskoðun, og yrði þetta stórt
skref 1 átt til frjálslyndari stjórn-
arháttá. Ekki mun þó vera rétt
nema að nokkru leyti, að afnema
eigi ritskoðunina.
Samkvæmt stjórnaryfirlýsingu
er ritskoðun ennþá viðhöfð í
tveim stærstu héruðum Spánar,
Madrid og Barcelona, og dag-
blöðin verða að senda prófarkir
til ritskoðara áður en þau fara
í prentun, eins og áður hefur
tíðkazt.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 29. ágúst 1962