Alþýðublaðið - 01.09.1962, Qupperneq 7
TALVÉLIN PAT
EDINBORG, sunnuclag.
ÉG FÓR Á Fnattspyrnukapp-
leik hér í gær, sem var mjög
spennandi og skemmtilega leik-
inn. Það var þó ekki knattspyrn-
an ein, sem vakti athygli mína,
heldur líka tungumálið, sem
nokkrir stuðningsmenn Glasgow-
liðsins Cettic, er stóðu fyrir aft-
an mig notuðu í umtali sínu um
gang lciksins. Það er ég viss um,
að Prófessor Higgins hefði al-
gjörlega sleppt sér, ef hann
hefði heyrt það.
Á einum af fundunum á rit-
höfundaráðstefnunni í síðustu
viku, sagði rithöfundurinn Law-
rence Durrell m. a., að erfitt
væri að segja nokkuð fyrir um
framtíð skáldsögunnar, því að
í málvísindadeild Edinborgarhá-
skóla hefði hann þá um morgun-
inn verið að skoða vél, sem gæti
samið sonnettur, og sú vél mundi
áreiðanlega vera farin að skrifa
skáldsögur fyrir jól!
Hvort tveggja minnti þetta mig
á vél, sem ég hafði heyrt sagt,
að væri til i hljóðfæradeild há-
skólans og ékvað ég að fara og
fá að skoða hana. Þessi vól er
nefnilega þeim kostum búin, að
hún taíar, og er hún notuð bæði
við rannsóknir 1 hljóðfræði og
við kennslu í þeirri grein. (Það
má skjóta þvi hér inn i, að Edin-
borgarháskóli mun v'era eini há-
skólinn í Bretlandi. og þó víðar
sé. leitað, sem leggur sérstaklega
áherzlu á að þjálfa kennara í
„Phonetics". Hinir leggja höfuð-
áherzluna á rannsóknir.).
Það er nú orðin löng „tradis-
jón“ hér í þessum vísindagrein-
um. Þegar árið 1378 voru tveir
menn, Professor FJeenning Jen-
kin og J. A. Ewing, farnir að
gera tilraunir með að greina þau
hljóð og önnur atriði, sem verða
til þess, að menn geta talað.
Gerðu þeir sér í þessu augnamiði
vél, er gerði þeim að nokkru
leyti kleift að sundurgreina eða
„analysera“ hljóð. Var sú aðferð
betri en nokkur, sem þekkzt
hafði til þess tíma. Sú vél náði
þó aðeins til sérhljóða. Árið
1943 var svo ,,talvél“, gerð af
Sir Richard Paget, sýnd hér við
háskólann af Dr. Douglas Guth-
rie, fyrirlesara í læknasögu, sem
enn hefur mikinn áhuga á rann-
sóknum á mannlegu tali, þó að
hann sé nú hættur störfum.
Sú vél, sem nú er notuð hér,
var í upphafi íeiknuð af sima-
verkfræðingnum W. Lawrence
fyrir birgðamálaráðuneytið, og
mun það ráðuneyti enn eiga vél-
ina, þó að hún sé geymd og
starfrækt í háskólabænum. Þá er
þess og að geta, að sá starfs-
maður háskólans, sem mest hef-
ur með vélina að gera, Mr. J.
Anthony, hefur endurbætt hana
á ýmsan hátt, enda er hann al-
mennt talinn einhver reyndasti
og hugmyndaríkasti sérfræðing-
ur í Bretlandi í allri tækni, er
varðar tilraunir í sambandi við
hljóðfræði og slíkan „gervitil-
búning“ hljóða. Smíðaði hann
vélina sjálfur oftir teikningum
Lawrence og hefur endurbætt
hana mjög síðan, eins og fyrr
getur.
Vélin heitir fullu nafni a
Paranutric Artifical Talking de-
vice, sem er alltaf í daglegu tali
stytt, PAT, og alltaf er talað um
vélina í kvenkyni, eins og stytt-
ingin krefur.
Ég var svo óheppinn, þegar ég
kom til að skoða vélina í Minto
House, að Mr. Anthony var í
Kaupmannahöfn á einhverju
málvísindaþingi og enginn þeirra,
sem viðstaddir voru, höfðu „kó-
keterað" ríóg' við Pat til þess, að
þeir gætu komið henni til að
tala. Ég fékk hins vegar' að
hlusta á segulbandsupptöku af
hljóðunum, sem hún framleiðir.
Fyrst hverju hljóði fyrir sig og
síðan las hún upp heilt ævintýri.
Það er sannarlega ævintýri
líkast að heyra þetta. Það verð-
ur ekki greint, nema á einstaka
hljóði, að það er ekki maður.
sem er að lesa. Og það hef ég
eftir mönnum, sem kynntust Pat
1958 fyrst, að þær endurbætur,
sem Anthony hefur gert á henni
síðan, séu stórkostlegar.
Ef við lítum snöggvast á að-
ferðina, sem notuð er, þá er það
svo, að vélin getur apað eftir
átta atriði í tali manna. Helztu I
atriðin eru þessi: „grundvallar-1
tónn“, „hávaði“, „hávaði blást- i
urs“ og „tónhæð sveiflufjölda \
lægstu sérhljóða“.
Það, sem gert er þegar Pat á |
að tala, er í stuttu máli, að gerð
er hljómburðarrannsókn á hverju
því, sem hún á að segja. Er
niðurstaðan síðan sett inn á gler
þynnu með sérstakri tegund af1
málningu og þá tekið tillit til |
fyrrgreindra atriða (sjá teikn. 2). j
Þynnan er síðan sett í vélina,
þar sem stjórnunar-mekanism-
inn lítur yfir“ hana. Þau átta
atriði, sem tekið er tillit til,
breytast síðan við „yfirlitið" i
rafmagnsstraum, mismunandi
sterkan, er stjórnar „hljóðfram-
leiðslunni“, svo að vélin hermir i
eftir þeim hljóðum, sem voru í j
upphaflegu setningunni, sem j
maðurinn sagði og síðan var1
gerð hljómburðarrannsókn ó. At-
riðin koma samsíða inn í vél-
ina (parametriskt), þ. e. a. s.
grundvallartónn hljóðsins „há-
vaði þess“, hávaði blísturs (ef um
blísturshljóð er að ræða o. s.
frv.).
Þegar Pat er látin tala fyrir
ókunnuga, þá er það aðeins til
að leyfa henni að „taka sig út“,
enda er hún kvenkyns. Aðalstarf
hennar er að sjálfsögðu allt ann-
að. Það er að segja, að gera
hljóðfræðingum kleift að gera
sér grein fyrir því hvernig menn
mynda hljóð.
Fram til þessa hafa ýmsir
haldið, áð tal sé samsett af
í
Framkald á 13. síðu. J
MARGA fýsir að vita, hver
höfundurinn að smíði rússnesku
Vostok geimskipanna er, en
enginn hefur þorað að geta sér
til um hver hann kunni að vera.
Á blaðamannafundinum á
þriðjudaginn, er géimfararnir
Nikolajev og Popovich tóku þátt
i, talaði prófessor M. V. Keld-
ysh um „vin sinn, manninn, sem
smíðaði Vostok-geimförin“ Þessa
dularfulla manns hafði áður ver-
ið getið í skýrslum um geimferð
þeirra Nikolajevs og Popovichs.
★ EF TIL VILL ÞJÓÐVERJI ?
Valdhafarnir í Kreml hafa
gætt þess stranglega, að nafni
„yfirsmiðsins“ sé haldið leyndu.
Hins vegar hafa aðrir helztu sér-
fræðingar Rússa í geimferðum
og eldflaugasmíði oft haldið fyr-
irlestra, talað í útvarp og komið
fram í sjónvarpi.
Að sumu leyti hafa þó Rússar ★
reynt að koma í veg fyrir, að sú
manns um, hvort skoða mætti
geimferð Nikolajevs skref í átt
til tunglferðar, á þessa leið:
„Já, að vissú leyti, á sama hfitt
og allt annað, sem við gerum.
Leið okkar liggur frá rannsókn-
um okkar á neðri lögum hins
ytra geims til skilnings á hinum
fjarlægu slóðum. Tunglið verðbr
án efa framtíðar takmark uþp-
götvunarferða geimfara okkar.'*
7Í illllTII' M| . — v—— *I
í
★ SEX NÖFN.
I
Vísindafréttaritari „Daily Te-
legraphs” nefnir sex menn, cr
mikilvægu hlutverki hafa að
gegna í geimferðaáætlun Rússa :
★ S. P. Koroslev Að sögn vai'
hann einn af helztu mönnum
þeím, er smíðuðu Sputnik ogi
Vostok flugskeytin. Ári5
1934 samdi hann bók umi
flugskeyti og flug þeirra; í
háloftunum.
V. P. Gluskho er annar.
Ilann var annar af tveim höf*
Svona er talið, að Vostok líti út.
hugmynd gerði vart við sig, að
afrek Rússa í geimvísindum væru
einhverjum ákveðnum afreks-
mönnum að þakka. Alltaf hefur
verið mikil áherzla á það lögð,
að sérhvert geimskot væri sov-
ézkt vísindaafrek.
Vegna þessarar leyndar er
hvilir yfir manninum, sem stjórn
ar smíði Vostok-geimfaranna,
hefur getum verið að því leitt,
hvort hann sé ef til vill Þjóð-
verji.
★ „RÚSSNESKT ANDLIT."
Hins vegar kom það fram í
Viðtali einu, að þessi dular-
fulli maður hefði „rússneskt
andlit," og þetta er það eina, sem
vitað er um hann. Talið er, að
þessi athugasemd hafi átt að
eyða orðróminum um, að „yfir
smiðurinn" væri einn hinna
þýzku vísindamanna, er Rússar
tóku til fanga í lok síðustu heims
styrjaldar.
Fréttir frá Moskvu hermdu, er
þeir Nikolajev og Popovich voru
enn í geimferð sinni, að „yfir-
smiðurinn" hefði faðmað Niko-
lajev að sér og kysst hann, áður
en hann steig upp í geimfarið
..Vostok 3." Því næst svaraði
hann spurningu rússnesks blaða-
undum bókar um flugskeyti
er út kom 1935.
★ M. K. Tikhonravov heitir
hinn höfundur bókarinnar.
Hann smíðaði flugskeyt*
1934.
★ A. G. Kostikov smíðaði litla
hemaðarflugvél, sem var
mikið notuð á rússnesku víg-
stöðvunum í síðustu styrjöld.
★ Y. A. Pobedonostev hafði
eftirlit mejð þýzku verkfragð-
ingunum frá V2-bækistoð-
inni í Peenemúnde.
★ L. S. Dushkin smíðaði • fltíg-i
skeyta-hreyfil, sem reyncíur
var árið 1941.
j
★ HULUNNI SVIPT.
Fréttaritarinn segir, að aHir
þessir menp hafi haft áhuga A
flugskeytum frá upphafi. En yf-
irleitt hafi nöfn þeirra verið
nefnd í sambandi við drifkrafts-
tækni. Þegar smíði flugskeyta
hófst var það eina tæknin.
Enginn gat byrjað sem geim-
hylkja-smiður, flugskeytin u^ðu
að koma fyrst. Þess vegna er
mjög sennilegt, að einhvcr þ<?ss-
ara manna sé maðurinn að baki
Vostok-geimfaranna. Ef til vill
kemur bráðlega í ljós hver haim
er.
ALÞÝÐUBLAÐIB - 1. sept. 1962
: ‘öl' Ája ,1 *f