Alþýðublaðið - 01.09.1962, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 01.09.1962, Blaðsíða 13
Hermaður úr Útlending-ahersveítinni með herdeildarfána: Á fán- anum er kjörorð Útlendingahersveitarinnar „Honneur et Fidélité“ (Heiður og trúmennska), en þriðja hugtakið í kjörorði franska hers ins vantar: „Patrie“ (Föðurlandið). SÍÐAN í júnímánuði hafa um 200 hermenn frönsku út- lendingahersveitarinnar á Kors- íku - mest megnis ungir nýliðar gerzt liðhlaupar. Náðst hefur í um það bil þriðjung þeirra, en um 60—70 hafa komizt undan til Elbu eða Sardíníu á sundi eða í bátum. Hermenn frönsku útlendinga- hersveitarinnar á Korsíku liafa valdið eyjarskeggjum miklum á- hyggjum, og það ekki af á- stæðulausu. Ein helzta tekju- lind þeirra eru skemmtiferða- menn, en í sumar hefur þeim fækkað ískyggilega mikið á eyj- unni, vegna ótta Við liðhlaup- ana. Það voru um það bil tvö þús- und hermenn úr hersveitinni, sem fluttir voru til Korsíku frá Alsír i júnímánuði. Eyjaskeggj- ar vilja fyrir hvern mun losna við þessa óboðnu gesti. Eyjaskeggjar hafa orðið fyrir barðinu á hermönnunum eins og fregnir af líkamsárásum bera vott um, og það eru einmitt þessar fregnir, sem fæla skemmliferðamennina burtu. Um 60 til 80 hermenn útlend- ingahersveitarinnar leynast á eyjunni. Til þess að fá peninga og vistir á flóttanum þaðan hafa þeir gert árásir á heimili og á verzlanir og þau hafa stolið bát um Talið er a.m.k. 12 hafi drukkn að á sundi til Elbu eða Sardiniu. Skæðastir hafa þeir verið á norðanverðri eyjunni, skammt frá bænum Bastia, en á strönd- inni þar hafa margir ferðamenn slegið upp tjöldum. Lögreglu- stjórinn í Bastia hefur kvatt liðsforingja úr leyniþjónustu út- lendingahersveitarinnar á sinn fund til þess að ræða aðgerðir gegn liðhlaupunum. Ýmsar sögur hafa borizt af á- rásum liðhlaupanna á tjaldbúðir ferðamanna. Fyrir nokkru var t. d. ráðizt á þrjá menn, sem höfðu komið sér fyrir í tjaldi, og beið einn þeirra bana. Skipulagðar leitir að liðhlaupunum hafa yfir leitt enn ekki borið árangur. Þó fundust tveir liðhlaupar nýlega í búðum ,,nakninga.“ Ástæðan : Nakningarnir voru brúnir á stöðum, þar sem liðhlauparnir voru ekki hvítir. Áður en þessi deild útlendinga hersveitarinnar var flutt til Kor- síku í júní bárust nær daglega fregnir af því, að hermenn úr hersveitinni hefðu gerzt lið- hlaupar. Flestar þessara fregna bárust frá Egyptalandi, þar sem liðhlauparnir - báðust hælis, en þangað komu þeir með frönsk- um skipum. Áhafnirnar reyndu ekkert til þess að koma í veg fyrir að þeir strykju frá skipun- um. í Egyptalandi fengu þeir peninga og siðan voru þeir sénd ir til föðurlanda sinna. Næstu mánuði á undan korn- ust nokkur þúsund þýzkra lið- hlaupa úr Útlendingahersveit- inni til Þýzkalands um Ítalíu. Þeir fóru eftir hinum undar- legustu krókaleiðum. Margir lið- hlaupar gengu í lið mcð OAS í Alsir. Útlendingahersveitin er mikið vandamál fyrir Frakka'. Svo virð ist sem 130 ára blóðugri og glæsilegri sögu hennar sé senn að ljúka, en þó mun de Gaulle Frakklandsforseti því andvigur, að hersveitin verði algerlega leyst upp, enda mundi það vekja mikla mótspyrnu í Frakklandi. Ýmsir. Frakkar munu þó vera þess fýsandi, að hersveit- in verði leyst upp. Ástæðan til þess, að höfuð- stöðvar útlendingahersveitarinn- ar hafa verið fluttar frá Sidi Bel Abbes í Alsír til Korsíku, en ekki til Frakklands, er sú, að samkvæmt lögunum frá 1831 um stofnun útlendingahersveit- arinnar má hún aldrei vera stað- sett á franskri grund. Þess vegna hafa hinar ýmsu deildir hennar verið sendar til Franska Soma- lilands, Madagaskar, „Djöfla- eyjar,“ í Frönsku Guyana — og annarra nýlendna, sem enn lúta Frökkum. Þó má geta þess, að lítil deild úr útlendingahersveitmni var flutt til Riviera í Frakklandi. Þar hafa hermenn hennar gert mikinn óskunda og margir þeirra hafa strokið. í Alsírstríðinu fékk útlend- ingahersveitin í hendur erfið- ustu og ógeðfelldustu verkefn- in. Hersveitin varð miðstöð OAS hryðjuverkanna og hreiður upp-* reisnartilrauna. Sá maður, sem raunverulega stjórnaði hryðju-1 verkastarfsemi OAS, Jean Gar- j dy, var áður fyrr hershöfðingi | í útlendingáhersveitinni. Belg-1 inn Rogcr Degueldre úr útlend- ingáhersveitinni stjórnaði morð- sveitum OAS, og þannig mætti lengi telja. Útlendingahersveitin varð skiljanlega að hverfa frá Alsír áður en landið öðlaðist sjálf- stæði. Við það hefur ljóminn, sem hvílt hefur yfir hersveit- inni, horfið að mestu. Mennirn- ir, sem gengu í hersveitina til þess að berjast í eyðimörkinni gegn Berbum og Kabýlum, vilja hverfa þaðan. Þeir geta ekki sætt - sig við venjuleg störf hermanna á friðartímum. Hinn helgi bær hersveitarinnar, Sidi Bel Abbes, geymist nú aðeins í minningu þeirra. Safnið fræga þar með gömlum vopnum, fánum og myndum af frægum herforingj- um hersveitarinnar, hefur verið flutt burtu. , Um það bil 60% hermann- anna eru Þjóðverjar. Þar á með- al eru margir fyrrverandi SS- menn, sem leitað hafa hælis í lCífXSSHi . 'y' IPlll • - ? - JS| !gfiba« '.jí -pt.'- J. Utlending’ahersveitin á göngu. hersveitinni. Þetta var meðal annars ástæðan til þess, að deildir úr hersveitinni voru ekki sendar til Þýzkalands, en franskir ráðamenn munu hafa íhugað þann möguleika. Edinborg Framhald af 1 síðu. „pörtum", eins og kemur fram, þegar menn skrifa orðin, hvort sem er með venjulegum stöfum eða hljóðritunarkerfum. Þeir ,,partar“, sem hægt er að greina frá hverjum öðrum, væru þá jafnmargir og í sömu röð, eins og maður þarf marga stafi eða hljóðtákn til að koma því, sem sagt er ,með skiljanlegu móti niður á blað. Með Pat, og senni- lega með öðrum slíkum vélum, hefur verið sannað, að þetta er ekki rétt. Þvert á móti hefur komið í ljós, að það sem skrif- að 'er niður sem venjulegt tal, er ekki í sérlega nánum tengsl- um við þau hljómburðaratriði, sem koma til skjalanna í tali manna. Það, sem gerzt hefur því hérna er það, að sannað hefur verið, að mannlegt tal er framleitt með tiltölulega mjög fáum atriðum (sbr. að framan), en þau atriði eru tengd saman á fjölmarga vegu til að mynda hin ýmsu hljóð. Þetta hefur verið sannað með hinni „parametrísku" að- ferð, sem notuð er í Pat. Með grundvallarhljóðum, styrkleika, hæð o. s. frv., hefur reynzt kleift að láta vél tala næstum þvi eins vel og venjulegan mann. Ég hef reynt að gera hér stuttlega, og sjálfsagt mjög ófull- nægjandi grein fyrir vélinni Pat, sem getur talað næstum hvaða mál, sem er, ef hljómburðarrann- sóknin er rétt gerð. Hitt er svo annað mál, að Pat hefur ekki mikið erindi í blöð. Mér fannst þó rétt að segja örlítið frá henni, þó hún sé ekki í baðfötum og ekki líkleg til að taka þátt í fegurðarsamkeppni á Langasandi. En kvenkynsverurn- ar eru nú ekki einu sinni bara skrokkar, þær taka líka (ein ef til vill full mikið) og stundum er það allgáfulegt, sem af þeirra vörum gengur. Það er þó svo með Pat litlu, að ekkert gengur fram af hennar vörum, sem ekki hefur fyrst veriö sett í hana, venjulega af karlmanni. i 1 ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 1. sept. 1962 13

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.