Alþýðublaðið - 01.09.1962, Blaðsíða 16
■<yW»WWtWMWWWWvMV/AtWMWWVWMW
ÞESSI myad er tekin er
Jón G. Sólnes, forseti bæj-
arstjórnar Akureyrar kvaddi
forseta íslands, herra Ás-
geir Ásgeirsson á Akureyrar
flugvelli í gærmorgun. For-
setinn kom til Akureyrar á
þriðjudag með varðskipinu
Óðinn og var viðstaddur há-
tíðahöldin á miðvikudag og
fimmtudag. Hann flutti Ak-
ureyringum ávarp á miðviku
dag, og var við staddur opn-
un iðnsýningarinnar, sögu-
sýningarinnar og hins nýja
byggðasafns.
280 MILLJÚNUM
JAFNAÐ NIÐUR
NHJURJÖFNUN útsvara í
Reykjavík er nú lokið og var út-
svarsskráin lögð fram í gærmorg-
on. í allan gærdag var ös í Iðn-
skóianiiin gamla og á Skattstof-
unni en á þeim stöðum liggur
skráin frammi .Þetta er í síðasta
skipti, sem niðurjöfnunarnefnd
leggur útsvörin á, því samkvæmt
nýju skattalögunum verður skipuð
framtalsnef nd og ákveður hún1
fekju og eignastofna, en síðan
tekur skattstjóri við.
Skattskráin mun liggja frammi
í 14 daga og er kærufrestur jafn-
langur.
Samkvæmt fjárhagsáætlun borg
arinnar hefði átt að leggja á 281,-
191.-900 kr. Ekki var þó lagt al-
veg svo mikið á, því samanlögð út
svör og aðstöðugjöld í Keykjavík
nema 280.767.600 kr. Skiptist sú
tala þannig, að 225.953,200 kr. eru
útsvör, en 54.814,400 kr. eru að-
stöðugjöld.
í fyrra var alls jafnað niður
4 ára drengur mjaðmagrindarbrotnar
Alvarlegt slys
í Blesugrófinni
ALVARLEGT slys varð í Blesu
gróf rétt fyrir hádegi I gær. —
Lárus Kristjánsson, 4 ára drengur
varð fyrir bifreið með þeim af-
lei'ðinguin að liann mjaðmárbrotn.
aði og hlaut fleiri meiðsli.
Láruc hafði ásamt fleiri börn-
tim verið að leika sér í bifreið,
sem stóð mannlaus í brekku í
Clesugrófinni. Tóku þau kubba, er
voru fyrir hjólum bifreiðarinn-
ar og einn 11 ára gamall dreng-
ur, sem var inni í bílnum, mun
hafa losað hemlana.
i Skyndilega fór bíllinn af stað,
! og hlupu krakkarnir út. Einhver
jtók í Lárus og dró hann út, en
j missti af honum. Lárus litli féll
viö og undir afturhjól bílsins og
fór það yfir hann.
Hann var strax fluttur á sjúkra-
liús Hvítabandsins, og þar voru
mciðsli hans rannsökuð. Hann
reyndist vera mjaðmarbrotinn og
mun hafa slasast eitthvað meira.
Honum leið vel eftir atvikum í
gærkvöldi.
rúmlega 248 milljónum, en 49,7
milljónir af því voru veltuútsvör
á fyrirtæki.
Aðstöðugjald kemur eins og
kunnugt er í stað veltuútsvarsins,
sem fellt var niður á síðastliðnu
ári. í fyrra var gefinn 11% afslátt
ur frá útsvarsstiganum, en í ár
voru fyrst dregnar frá 800 kr. og
síðan 15,5%.
Gjaldendur í Reykjavik eru í ár
24.614, en voru í fyrra 23.719. Fé-
lög eru 974, en voru í fyrra 1132.
Fækkunin á félagatölunni stafar af
þeirri breytingu, er veltuútsvar-
ið var fellt niður og aðstöðugjöld
kom í staðinn. Eins og áður er sagt
hættir niðurjöfnunarnefnd nú
störfum og við tekur framtalsnefnd
jog skattstjóri. Niðurjöfnunarnefnd
hefur verið starfandi í Reykjavík
í 90 ár. Þegar hún var sett á lagg-
irnar var svo kveðið á, að hún
slcyldi „jafna niður gjöldum eftir
efnum og ástandi." Framvegis
verður nær eingöngu farið eftir
hinum lögbundna skala.
Frederik IX. Danakonungur
hefur sæmt Ármann Snævarr há-
skólarektor, kommandörkrossi
Dannebrogsorðunnar. Hinn 28. ág-
úst afhenti ambassador Danmerk-
ur, Bjarne Paulsen, háslcólarekt-
or heiðursmerkið.
(Frá Danska Sendiráðinu).
43. árg. - Laugardagur 1. september 1962 - 298. tbl.
GÓÐ síldveiði var í fyrradag og
fyrrinótt út af Hvalbak og fengu
49 skíp samtals 43.050 mál og
tunnur. í gærmorgun var einnig
góð veiði á svipuðum slóðum, og
í gærkvöldi var vitað um 16 skip,
með mikinn afla. Þá voru mörg
skip að veiðum norður af Langa-
nesi i gærkvöldi og öfluðu vel.
Neskaupstað í gær.
Síðastliðinn sólarhring hafa
1G-17 bátar komið hingað mcð
síld. Arnarfell er hér að taka salt
síld og annað skip er hér að taka
600 tonn af síldarmjöli.
Bræðslan hér hefur nú tekið við
um 200 þús. málum og saltað
hefur verið í 24 þús. tunnur.
Annars hefur lítið verið salt-
að hér síðasta sólarhring.
Útlit mun vera sæmilegt fyrir
áframhaldandi vciði. G.Á,
Seyðisfirði í gær.
SALTAÐ hefur verið á öll-
■um stöðvum liér siðan í gær-
kvöldi. Síldin er mjög sæmileg til
söltunar og koma sum skipin með
ágætis síld. Aðal veiði er suð-
austur af Hvalbak, 8-10 tíma sigl
ing liéðan. Ekkert lát virðist vera
á veiðinni þar, því skipin liafa
verið að veiða í allan dag.
Bókbindar-
ar fengu
14% hækkun
BÓKBINDARAR samþykktu á
fundi í gær samningsuppkast, sem
hafði verið undirbúið af stjórn
Bókbindarafélags íslands, Félagi
Bókbandsiðnrekenda og forstjóra
Gutenberg.
Aðalákvæði nýju samninganna
eru þau, að allir kauptaxtar
hækka um 14%. Stúlkur vinna sig
upp í fullt kaup á fjórum árum,
í stað fimm áður. Nokkrar smá-
lagfæringar voru og gerðar á
samningunum.
Bókbindarar höfðu boðað til
vinnustöðvunar frá og með deg-
inum í dag, hefðu samningar ekki
tekizt.
Bræðslan hér hefur tekið við
85 þúsund málum. Verið er a8
lesta flutníngaskipið Baldur meff
síld til Siglufjarðar. í sumar hafa
vcrið flutt liéðan yfir 250 þús.
mál af síld með flutningaskipunv
til vinnslu annars staðar.
G. B.
Eskifirði í gærkvöldi:
í NÓTT og í morgun komu
eftirtaldir bátar með síld hingað;
Dofri með 600 tunnur, Vattar-
nes 450, Seley 1200, Guðfinnur
400, Hólmanes 1000. Vattarnes
kom svo aftur í kvöld með 900.
Hér hcfur nú verið saltað í 1140
tunnur í dag, og alls 9-10 þús.
tunnur. Þá hafa 3300 tunnur far-
ð í frystingu og bræðslan tekið
i móti 50 þús. tunnum. A.J.