Alþýðublaðið - 16.09.1962, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 16.09.1962, Blaðsíða 2
Ritstjórar: Gísli J ÁstþórsMOn (áb) og Benedikt Gröndal.—Aðstoðarritstjóri Björgvin Guðmundsson. — Fréttaritstjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. — Símar: 14 900 - 14 902 - 14 903. Auglýsingasími: 14 906 — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prenismiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu 8-10 — Áskriftargjald kr. 55.00 á mðnuði. í lauí *.'sölu kr. 3 00 eint. Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. — Fram- kvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson. Bændur og bátasjómenn BLÖÐ framleiðendaflokkaxina fagna ákaft þeirri niðurstöðu, að sexmannanefndin skyldi ná samkomulagi um verð landbúnaðarafurða. Má lesa j dag eftir dag ritstjórnargreinar, þar sem vegsömuð ' er sú gæfa, að samningar skyldu takast og ekki koma til þeirrar sölustöðvunar, sem Framsókn hafði æst bændur upp í að hóta. Alþýðublaðið getur tekið undir það út af fyrir sig, að samkomulag er að jafnaði farsælla en illdeilur. En mikill og einkennilegur munur virðist vera á af stöðu framleiðendablaðanna til þessa máls eða til bátasjómanna. Það þykir sjálfsagt að bæta bænd- um dóm, sem þeir voru óánægðir með. En þessi blöð ininnast ekki orði á, að bæta þurfi bátasjómönnum dóm, sem þeir telja ganga óeðlilega á sinn lilut og vera útgerðinni óþarflega hagstæður. Hvað veldur því, að hin blöðin gera þennan mun á bændum og bátasjómönnum? Framsóknarflokkurinn hefur í þessum málum homið fram í sínu rétta Ijósi. Hann gerir hosur sínar grænar fyrir neytendum bæjanna, en á sama tíma æsir hann bændur til að gera stórfelldar kröfur um . verðhækkanir, sem neytendur verða að borga. Þeg- ar á hólminn kemur er Framsókn alltaf á móti neyt endum þéttbýlisins og getur því aldrei orðið þeirra flokkur. Hefur sagan staðfest þetta og tímabundin fylgisaukning Framsóknar í bæjunum hefur alltaf horfið aftur, þegar hið rétta eðli flokksins hefur komið vel í ljós. Það hefur verið mikið áróðursmál Framsóknar- flokksins, að ríkisstjórnin fari illa með bændur og þrengi hag þeirra. Nú verður ógerlegt að halda þessu lengur fram, þar sem fulltrúar bænda hafa sjálfir skrifað undir samkomulag um verðlagsgrund völl sinn. í sambandivið breytingarnar, sem nú verða á bú- vöruverði, hefur ríkisstjórnin ákveðið að auka nið- urgreiðslur á kjöti um 18 milljónir króna. Hefur n:ð urgreiðsla á kartöflum nýlega verið afnumin, þar sem m'kil spilling hafði þróazt í skjóli hennar og heimaræktun á kartöflum að miklu leyti lagzt nið- ur. Neytendur fá nú aftur það fé, sem af þeim var tekið með hærra kartöfluverði, þar sem um svip- ‘ aðar upphæðir er að ræða. Vantar fræðslustarf EITT AF ÞVÍ, sem kommúnistar í stjórn Alþýðu- : sambands Islands hafa gersamlega vanrækt, er fræðslustarf. Þeir hafa að vísu fengið bækur og málverk að gjöf, en félagsleg fræðsla hreyfingar innar er í molum, þótt aldrei hafi hennar verið meiri þörf en nú. Er rétt að verðlauna stjórnendur Alþýðusambandsins fyrir að sofa í þessu þýðing- armikla máli? 2 16. -sept- 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIB SENDILLINN sem síðasf bregsi VOLKSWAGEN SENDIBÍLLINN ER EINMITT FYRIR YÐUR Heildverzlunin HEKLA HF. I ALLTAF FJÖLGAR Hverfisgötu 103 — Sími 11275 VOLKSWAGEN HANNES Á HORNINU 4r Frjáls samkeppni eða svikamál. ÍK Innflutningur tækja og " varahlutir. 4r Nauðsyn á nýjum regl- um. NEYTANDI SKRIFAR: „ÞaS er . mikið talað um. frjálsa samkeppni. Ilún er víst góð innan vissra tak- marka, en hún er ekki góð þegrar liún miðast við áð níðast á neyt- endunum. Postular frjálsrar sam- keppni tala mjögr um það, að hún skilji hismið frá kjarnanum, að sá, sem ekki dugir í samkeppninni verði að hætta, hinn, sem dugir vel standi af sér stormana. Það getur verið rétt, en dæmin sýna það þó ekki nema að nokkru leyti. Innflytjandi, sem er duglegur nær kannski betri innkaupum en hinn óduglegi — og ef sá dugnaður verður til þess að neytandinn fái betri og ódýrari vöru þá er til- ganginum náð, en annars ekki. ÉG SKRIFA þér þetta bréf af á- kveðnu tilefni, sem ég hirði þó ekki að geta beinlínis heldur að- eins almennt, enda er þetta al- mennt mál og ekki til sóma fyrir stétt kaupsýslumánriá óg' irinfly.tj-- enda. Dugnaður sumra þeirra hef- ur gengið út á það, að ná sér í ný sambönd, við skulum segja, í sam- bandi við vélar og tæki. Þeir hafa flutt vélarnar og tækin inn í landið, auglýst það mikið í blöðum, lofað vöruna — og selt hana. 4 ÞEGAR KAUPENDUR hafa spurt um varahluti til þessara tækja, er það segin saga, að full- yrt er, að þeir muni koma bráð- lega, það hafi verið gerð pöntun, en afgreiðslutími sé nokkur, en hlutirnir muni koma með fyrstu ferðum. í góðri trú hefur neytand- inn svo fest kaup á tækinu, en landið, auglýst þau mikið í blöðum eru til að tækin hafa bilað innan tíðar — og engir varahlutir verið fáanlegir og tækin því ónothæf. ÞAÐ VÆRI IIÆGT að nefna fjölda dæma um þennan óhæf^ verzlunarmáta, en það skal ekki gert að sinni. En af þessu tilefni vil ég segja þetta: Það verður að setja á, einhvern hátt skorður við svöna verzlunarháttum. Það ér Frh. á 5. síðn. ,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.