Alþýðublaðið - 16.09.1962, Qupperneq 16
rz*f.vj */*
UPPDRÁTTUR AF HINNI NVJU BYGGINGU.
43. árg. — Sunnudagur 16. sept. 1962 - 203. tbl.
Mai Zetterling fer á
f und gangnamanna
Vinna hafin við
hús Loftleiða á
flugvellinum
MAI Zetterling, sænska kvik-
myndaleikkonan, sem dvelst á ís-
landi um þessar mundir til að
kynnast landi og þjóð, áður en
hún tekur heimiidarkvikmynd um
Island fyrir brezka sjónvarpið, hef-
ur fengið Guðmund Jósafatsson
fyrrum bónda í Austurhlíð í Húna-
vatnssýslu og Þorgeir Þorgeirsson
kvikmyndatökumann úr Reykjavík
til að fylgja henni og amcrískri
vinkonu liennar norður um fjöll
um næstu helgi. í ferð með frú
Zetterling er amerísk vinkona
hennar, Slieila la Farge rithöfund-
ur. Kvikmyndaieikkonan mun ætla
að hitta gangnamenn á fjöllum
uppi bæði sunnanmcnn og norðan-
inenn og fara síðan í réttir í Húna-
vatns- og Skagafjarðarsýslum.
andi sunnudag. Verður farið á
jeppa leiðina norður Kjöl. Hug-
myndin er að hitta gangnamenn af
Suðurlandi við Hvítá fyrir neðan
Hvítárnes og taka þar myndir af
gangnamönnum og safninu. Áætl-
að er að gista á Hveravöllum, en
halda síðan áfram norður á mánu-
dag og hitta norðanmenn við
fremri afréttargirðinguna á heið-
inni.
Á þriðjudaginn fer kvikmynda-
tökufólkið í Skrapatungurétt í
Skagafirði og síðar um daginn í
Vatnsdalsrétt í Húnaþingi. Á mið-
vikudag og fimmtudag er haldin
Stafnsrétt í Svartárdal í Húna-
vatnssýslu. Þangáð mun ferðinni
einnig heitið, en þar kemur fé og.
fólk bæði úr Húnavatns- og Skaga-
fjarðarsýslu. Mai Zetterling mun
hafa hug á að ná myndum af öllu
þessu en Þorgeir Þorgeirsson mun
einnig taka kvikmyndir og þá sér-
staklega af íslenzka hestinum.
Guðmundur Jósafatsson frá Aust-
urhlíð mun verða leiðsögumaður
kvikmyndatökufólksins, eo hann
er þaulkunnugúr á þessum slóðum,
enda alvanur göngum á Eyvindar-
staðaheiði.
FYRSTA skóflustungan fyrir
errunni hinnar nýju byggingar
Lðftleiða á Reykjavíkurflugvelii
var tekin I gær. Það gerðu þeir
Alfreð Elíasson framkvæmda-
stíóri og Kristinn Olsen flug-
delldarstjóri, sem stofnuðu Loft-
leiðir. Samtímis lýsti formaður
Loftleiða, Kristján Guðlaugsson,
|»ví yfir, að verkið væri hafið.
Binn 31. jan. sl. sótti stjórn
Gautur dró
hilaðan bát
til Hafnar
VARÐSKIPIÐ Gautur kom í
nótt með bilaðan bát í togi tii R-
víkur. Þetta var vélbáturinn Flosi
Sem orðið hafði fyrir vélarbilun
í Faxaflóa seint í gærkvöldi.
Loftleiða um byggingarlóð á R-
víkurflugvelli, þar sem gert var
ráð fyrir að fá húsrými fyrir alla
starfsemi félagsins í Reykjavík.
Hefur nú verið samþykkt, að út-
liluta Loftleiðum 10 þúr. ferm. lóð
á bæjarlandinu við Reykjavíkur-
flugvöll. Lóðin er norðan flug-
turnsins við veg þann, sem nú
liggur að afgreiðslu Loftleiða. —
Fyrirhugað er, að í framhaldi af
Sóleyjargötu komi aðalbraut með-
fram Öskjuhlíð og Fossvogi, og
verður byggingarlóð Loftleiða við
hana, en vegna þess mun húsrými
það, sem nú er fyrirhugað að
reisa, engu Iakar staðsett í nýju
bæjarhverfi en við flugvöll, ef til
þess ráðs verður síðar horfið, að
flytja alla flugstarfsemi1 frá höf-
uðborginni. Byggingarnefnd hef-
ur nú samþykkt teikningu þá af
fyrirhuguðu húsnæði Loftleiða,
sem gerð var af Gísla Halldórs-
syni arkitekt í samráði við Stef-
án Ólafsson verkfræðing.
Framhald á 15. síðu.
Óvenju þurr
ágústmánuður
SAMKVÆMT fregnmn frá veð-1 í meðalári eða 29 mm., en í meðal-
Mai Zetterling.
Að öllu forfallalausu verður lagt
upp í þennan leiðangur næstkom-
urstofunni höfum við haft óvenju-
þurran ágústmánuð hér í Reykja-
vík í sumar. Meðal úrltoma í ágúst-
mánuði í Reykjavík er talin vera
66 mm., en síðastliðinn ágústmán-
uð var hún ekki neina 27 mm.
Annars hefur sumarið í sumar
verið ákaflega hversdagslegt og
eðlilegt 'að dómi veðuriræðinga.
Júnímánuður var heldur í kaldara
lagi, og úrkoman þá heldur meiri
en venjulegast er. Júlímánuður
var aftur á m'óti mjög venjulegur,
meðalhiti mældist 11.0 stig, en í.
meðalárferði er 11,2 stig hiti í
júlímánuði í Reykjavík. Úrkoman
var aftur á móti nokkuð minni en
júlímánuði er úrkoman 48 mm.
Framh. á 5. síðu
Bílvelta -
barn slasast
LÖGREGLU og sjúkraliði barst
tilkýnning. um að bíll hefði oltið
á Kjalamesi, móts við Kiðaberg
rétt eftir hádegi í gær.
Þegar komið var á staðinn
fannst bíllinn mannlaus. Fólkið
Framh. á 15. síðu
tWWmWHWMMWWWWWWWWWWWWWWMiWiW
Harður árekstur
Harður árekstur varð skömmu eftir hádegi í gær á móts við
búsið númer 19 við Fornhaga. Svo liarður var áreksturinn, að
aniiar blllinn, Wolkswagen blreið fór alveg á hliðina. Þrátt fyr-
Ir það hve liarður áreksturinn var urðu engin slys á mönnum,
Ljósmyndari Alþýðublaðsins, Rúnar Gunnarsson, kom á staðinn
rétt í því er þetta gerðist og tók meðfylgjandi mynd af bílnum,
sem valt.
jBAW
vWVWVvt * ■* iifcV