Alþýðublaðið - 18.10.1962, Blaðsíða 11
Húsmæöraskólinn
Ósk 50 ára 1. okt.
í ÁR eru fimmtíu ár liðin síðanfiutti núverandi formaður skóla-
kvenfélagið Ósk á ísafirði stofn-
aði húsmæðraskólann þar. Skól-
inn var stofnaður 1. október árið
1912. í tilefni afmælisins var hal(l-
ið veglegt afmælishóf í húsmæðra-
skólanum 5. þessa mánaðar. Skóla-
stjórinn, Þorbjörg Bjarnadóttir,
stjórnaði hófinu, en margt gesta
var þar.
Afmælishófið var haldið í húsa-
kynnum húsmæðraskólans. Gestir
í hófinu voru m. ». bæjarstjórn
ísafjarðar, núverandi stjórn kven-
félagsins Ósk, fyrrverandi kennar-
ar og ýmsir velunnarar skólans.
Þarna voru viðstaddir ýmsir eldri
nemendur skólans, þeirra á meðal
Elín Jónsdóttir, ljósmóðir og Karl-
inna Jóhannesdóttir, sem voru í
fyrsta nemendahópnum fyrir 50 ár
um. Sigríður Jónsdóttir, kaup-
kona, var sérstaklega heiðruð í
hófinu, en hún hefur átt sæti í
stjórn skólans í 37 ár.
Skólastarfið lá niðri árin 1917 —
1924 og einnig árið 1947. Skólinn
hefur því ekki starfað nema í 42
ár, þótt 50 ár séu liðin frá stofn-
Un hans. Kvenfélagið Ósk rak skól-
ann með styrk frá ísafjarðarkaup-
stað og ísafjarðarsýslum til ársins
1941, en síðan hefur hann verið
rekinn af ríki og bæ, samkvæmt
lögum um húsmæðrafræðslu. Árið
1948 flutti skólinn í nýtt og vand-
að hús, þar sem hann hefur starfað
síðan, og var þá ákveðið að skíra
hann Húsmæðraskólann Ósk. í
hófinu í gær var sérstaklega
minnzt nokkurra kvenna, sem
mestan þátt áttu í því að móta
skólann og afla honum álits, en
það voru Kamilla Torfason, sem
átti frumkvæði að stofnun hans
1912: Fyrsta forstöðukonan Fjóla
Stefánsdóttir Fjeldsted, Gyða
Maríasdóttir, sem var skólastjóri
í 12 ár, Kristín Sigurðardóttir og
Anna Björnsdóttir, sem störfuðu
árum saman í skólanefnd. Þessar
konur eru allar látnar. í hófinu
stjórnar, Marías Þ. Guðmundsson
aðalræðuna og rakti ýtarlega sögu
skólans. Auk hans töluðu Þor-
björg Bjarnadóttir, skólastjóri,
Sigríður Jónsdóttir, Bjarni Guð-
björnsson, forseti bæjarstjórnar,
Anna Sigfúsdóttir, formaður kven-
félagsins Ósk og Lára Eðvarsdótt-
ir. Ragnar H. Ragnar stjórnaði
söng og Anna Ragnarsdóttir lék
einleik á píanó. Skólanum bárust
margar góðar gjafir í tilefni af-
mælisins, þar á meðal vandað seg-
ulbandstæki frá kvenfélaginu Ósk
og 10 þúsund krónur til sjóðs-
stofnunar til minningar um Gyðu
Maríasdóttur frá nemendum 1932
og auk þess peningar, bækur og
blóm. Að þessu sinni var hús-
mæðraskólinn settur 23. septem-
ber. Eins og jafnan áður er hann
er fullskipaður nemendum. Þar
eru 34 námsmeyjar í vetur. Þor-
björg Bjamadóttir hefur verið
skólastjóri í 14 ár, en auk hennar
eru 3 fastráðnir kennarar við skól-
ann og nokkrir stundakennarar. —
Skólastjórn er þannig skipuð: For-
maður Marías Þ. Guðmundsson,
Sigríður Jónsdóttir, Sigríður Guð-
mundsdóttir, Lára Eðvarðardóttir
og Margrét Bjamadóttir.
ÍÞRÓTTIR
Framh. af 10. síðu
íslandsmót innanhúss 1962.
íslandsmót (karla og kvenna) ut-
anhúss.
Heimsókn Esslingen.
Afmælismót H.K.R.R.
Afmælismót Í.S.Í.
Auk þess vora dæmdir nokkrir
aukaleikir og 4. fl. mót.
Leikjafjöldi alls 374 samtals
10025 mín.
Nú verður sú nýbreytni tekin
upp að skipaðir verða markdómar-
ar á alla leiki í mfl. karla og
ÚT80Ð
Þeir sem gera vilja tilboð um að byggja dælustöð Vatns-
veitu Reykjavíkur við Háaleitisbraut vitji uppdrátta og út-
boðslýsingar í skrifstofu vora Tjarnargötu 12, III. hæð gegn
2.000,— skróna skilatryggingu.
kvenna. Er það gert til að tafir
komi ekki til greina milli leikja.
Starfandi eru nú 13 landsdóm-
arar og 33 héraðsdómarar, en þar
af útskrifuðust 13 héraðsdómarar
á sl. ári.
Fráfarandi stjórn gaf kost á sér
til endurkjörs, en í hina nýju
stjórn voru kjörnir:
Gunnlaugur Hjálmarsson form.
Gylfi Hjálmarsson ritari
Gunnar Jónsson gjaldkeri
Frúarleikfimi
í Langholtsskóla
í kvöld
EINS og áður hefur verið skýrt
frá hafa nokkur af íþróttafélögun-
um gengizt fyrir frúaleikfimi víðs-
vegar um bæinn.
í kvöld hefst slík starfsemi á veg
um ÍR og verður hún í leikfimisal
Langholtsskóla og hefst kl. 8.30.
Verður kennt á mánudögum kl.
9,20 og fimmtudögum kl. 8.30.
Hefur aðsókn að þeim
stöðum, sem frúarleikfimi
hefur verið tekin upp, verið mjög
mikil, og geta konur, sem búsett-
ar eru í Langholti og Vogahverfi,
sótt hressingarleikfimi í hverfinu;
í Langholtsskóla.
stílabækur
reikningsbækur
teikniblokkir
rúðustrikaðar blokkir
rissblokkir
skrifblokkir
vasablokkir
blýantar
y d d a r a r
plastbindi
skólatöskur
kúlupennar
skólapennar o. ni. fl.
Bátasala:
Fasteignasala:
Skipasala:
Vátryggingar:
V erðbréf aviðskipti:
Jón 6. Hjörleifsson,
viðskiptafræðingur.
Sími 20610 — 17270.
Tryggvagötu 8, 3. hæð.
Heimasími 32869.
degi.
Bíla og
M U N C KS
RAFMAGNS TALÍUR
til allra lyftinota
Vélaverkstæöi Sigk
Sveinbjörnsson h.f.
Reykjavík
búvélasðlan
Simca Ariane. Nýr, óskráður
Superluxc.
Opel Reccord '60-01.
Opel Caravan 60’-61’.
Consul 315. ekin 8. þús. ’62.
Opel Caravan ’55.
Chevrolet ’55, góður bill.
Chevrolet ’59, ekin 26. þús.
Verkamenn
HafnfirÖingar — Reykvíkingar
Okkur vantar verkamenn, í steypuvinnu á
Keflavíkurvegi. — Upplýsingar í síma 51233.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
Atvinna
Vierkamenn óskast í fasta vinnu.
LÝSI HF.
Grandavegi 42.
Bíla- &
búvélasalan
við Miklatorg, sími 2-31-36.
Járnsmiðir
m
'inningary>/o
SJjRS.
Æ
Lesið Alþýðublaðið
og menn vanir járnsmíðavinnu óskast
stíax.
Vélaverkstæði
Sig. Sveinbjörnsson hf.
Skúlatúni 6. — Sími 15753.
I
|
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 18. október 1962 1|,