Alþýðublaðið - 23.10.1962, Qupperneq 13
Eiturlyíjanautn.
Framh. af 5. síðu
liljóta að réttlæa tafarlausa rann-
sókn og síðan viðeigandi aðgerðir.
íslenzk blöð hafa öðru hvoru
gert eiturlyfjaneyzlu hér á landi
að umtalsefni og þá ýmist greint
frá einstökum dæmunt eða rætt
hana almennt. Þar hefirr þeirri
skoðun verið haldið fram, að eitur-
lyfjaneyzla breiðist hér mest út
meðal ungs fólks og þá einkum
meðal kornungra stúlkna.
í fórum lögreglunnar munu vcra
til all mikil gögn, er saerta þetta
óhugnanlega vandamál, enda ekki
einsdæmi, að hún hafi verið íengin
til að skakka leikinn á he'milum
og í hófum eiturlyfjaneytenda á
ýmsum aldri. Þá er og vitað um
mörg lögbrot framin i því s!:yni
að afla nautnalyfja og koma þeirn
út.
Læknar og iyfjafræðtngar verða
daglega varir við ásóhn fóks í
nautnalyf, og er sú ásókn talin
hafa aukizt verulega á síðari ár-
um. Virðist þar vera um að ræða
fólk á öllum aldri og af báðum
kynjum. Læknar hafa einnig á
annan hátt kynnzt þessu vanda-
máli, því að til þeirra er leitað um
hjálp handa hinum ógæfu irmu eit
urlyfjaneytendum, — hjáip. sem
alla jafna gengur erfiðlega að
veita, enda aðstaðan hér á landi
eins slæm og hún getur frekast
verið.“
Brottflutningur
Framh. af 5. síðu
Kanada 132
Svíþjóð 113
Noregur 96
Þýzkaland 36
Bretland 29
Önnur lönd eru með færri en 10 hvert, þar á meðal Frakkland 9,
Spánn 5, Indland 5, o. fl. o. fl. Thailand 5,
Hagstofan hefur lagt mikla
vinnu í söfnun þessara upplýsinga, sérstaklega um ástæður fýrir brott flutningi fólksins. Til samanburðar
er fróðlegt að athuga eldri tölur,
sem sýna aðeins rnismun á lít- flutningi fólks frá tslandl og inn-
flutningi til landsins, sem hér segir: en þær eru
1870-80 «274
1880-90 6 302
1890-00 2 732
1900-10 1 812
1910-20 -f- 791
1930-40 402
1940-50 -f- 204
1950-60 355
• Þar sem mínus er framan við
tölu hefur innflutningur verið
meiri en útflutningur, sérstaktega
fyrst eftir fyrri styrjðldina og þá
síðari.
Kristniboðsvikan
Kristniboðssamkoma í húsi
K.F.U.M. og K. í kvöld kl. 8,30.
Margrét Hróbjartsdóttir, kristni-
boði og Gunnar Sigurjónsson,
guðfræðingur, tala. Tvísöngur,
hlj óðfærasláttur og söngur.
Allir velkomnir.
Kristniboðssambandið.
IÞROTTIR
Framh. af 10 síðu
deildarlið Vals, en það er bara
ennþá lélegra. Víkingar höfðu yfir
allan ieiktímann, í hálfleik var
staðan 7—6, en leiknum lauk með
sigri Víkings 11—9. Karl Jóhanns-
son dæmdi leikinn með prýði.
Leikur Fram og Ármanns var
næstur og þar fengum við að sjá
allgóðan handknattleik, sérstak-
lega kom geta og baráttuvilji Ár-
manns á óvart.
Hörður skoraði fyrsta markið
fyrir Ármann, en Ingólfur jafnaði.
Enn ná Ármenningar forystu, og
er Hörður aftur að verki, en Karl
Ben. jafnar fyrir Fram og Guðjón
gefur Fram forystu í leiknum með
ágætu skoti. En þessi dýrð stóð
ekki lengi hjá Fram, Jakob jafnar
skömmu síðar dr vítakasti, og Ar-
mann kemst yfir með góðu marki
Harðar, Fram gekk illa að átta sig
á skotum hans. Leikurinn var
mjög skemmtilegur næstu mínút-
ur, Ármann hefur annað hvort
mark yfir, eða það er jafnt. Þetta
virðist allt fara dálítið í taugamar
á íslandsmeisturunum og 3 víta-
köst fóru i vaskinn, markvörður
Ármanns varði eitt, en hin fóru í
stöng. Síðustu mínútur hálfleiks-
ins tókst Áimenningum að ná
tveggja marka forskoti, 7—5 í
hléi.
Á fyrstu mfnútum síðari hálf-
Ieiks tekst Ármenningum að auka
forskotið í 3 mörk og „sensasjón”
virtist í uppsiglingu, en þá tók að
síga á ógæfuhlið fyrir Ármenning-
um, þeir spila og skjóta í tvisýnu,
en Fram nær boltanum. Sex sinn-
um i röð varð liinn ágæti mark-
i vörður Ármanns að hirða boltann
úr netinu og sigur Fram er tryggð-
ur, 12 gegn 10.
Hinn kunni handknattleiksmað-
ur FH, Einar Sigurðsson sér um
þjálfun Ármannsliðsins í vetur og
lítill vafi er á því, að hann mun fá
það bezta úr liðinu. Lið Ármenn-
inga er jafnt og ekkert gat í því,
en markvörðurinn vakti sérstaka
athygli.
Frammarar verða að sýna meiri
getu í leiknum gegn Skovbakken
í Evrópubikarkeppninni eftir tæp-
an mánuð, ef þeir ætla að komast
áfram. Það kom á óvart, að Fram
skyldi ekki sýna betri leik, en
kannski eru þeir orðnir þreyttir á
erfiðum æfíngum undanfarnar
vikur. Ingólfur Óskarsson vakti
mesta athygli, hann hefur létzt
mikið og er mun harðskeyttari en
áður. Daníel Benjamínsson
dæmdi þennan erfiða leik, og
tókst ekki sem bezt upp.
Síðasti leikur kvöldsins, og jafn-
framt sá lakasti, var milli KR og
Þróttar. Þróttarar unnu verð-
skuldaðan sigur 11—10 og hcfðu
yfirhöndina mest allan leikinn.
Það er langt sfðan KR hefur teflt
fram jafn lélegu liði. Dómari var
G.vlfi Hjálmarsson.
IBendeikt G.
Waage boðið |
til Mexico
Heiðursforseti ÍSÍ, Bene- !>
dikt G. Waage er lagður af j |
stað til Mexico City, en þang < j
að var honum boðið, sem heið J!
ursgesti á mikið iþróttamót. j!
Ekki er vitað hre lengi Bane- ! j
dikt dvelur í Mexikó. <[
iwwwwmtwwwwwwwM
EIPSPÝTUR
ERU EKKI
BARNALEIKFÖN&!
Hiselgendafélag RiyKiavtknr
★ Lögfræðistörf.
★ Innheimtur
★ Fasteignasala
Hermann G. Jónsson, hdl.
Lögfræðiskrifstofa
Fasteignasala
Skjólbraut 1, KópavogL
Síml 10031 kl. 2—7.
Heima 51245.
Bátasala:
Fasteignasala:
Skipasala:
Vátryggingar:
V erðbréf aviðskipti:
Jón Ó. Hjörleifsson,
viðskiptafræðingur.
Sími 20610 — 17270.
Tryggvagötu 8, 3. hæð.
Heimasími 32869.
degi.
Gólfteppi i„
Gangadregíar
fallegar tegundir.
Gólfmottur
margar tegundir.
Gúmmímottur
Baðmottur
Teppafílt
GEYSIR H.F.
Teppa- og dregladeildin.
Æskulýðsráð Reykjavíkur
Tómstundaiðja
fyrir unglinga 12 ára og eldri hófst mánudaginn 22. október.
LINDARGATA 50:
Ljósmyndaiðja, bast-, tága- og perluvinna, bein- og horna-
vinna, leðuriðja, tafiklúbbur, málm- og rafmagnsvinna, flug-
módelsmíði. Frímerkjasöfnun og fiskiræktarkynning (fyr-
ir 9 ára og eldri). Kvikmyndasýningar fyrir börn. — Upp-
lýsingar og innritun daglega kl. 2—4 og 8—9 e. h. —
Sími 15937. !
BRÆÐRABORGARSTÍGUR 9, 5. hæð:
Ýmiskonar fönduriðja, leiklistaræfingar, kvikmyndafræðsla,
skartgripagerð o. fl. — Upplýsingar og innritun á staðnu**
þriðjudaga og föstudag frá kl. 4 e. h.
HÁAGERÐISSKÓLI (kjallari):
í samvinnu við Sóknarnefnd Bústaðasóknar. — Bast-, tága-
og leðurvinna, upplýsingar og innritun á staðnum mánudaga
og miðvikudaga kl. 8,30 e. h. — Kvikmyndasýningar fyrit
börn, laugardaga kl. 3,30 og 4,45 e. h.
AUSTURBÆJARSKÓLI (kvikmyndasalur):
Kvikmyndasýningar fyrlr börn sunnudaga kl. 3 og 5 e. h.
VIÐGERÐARSTOFA RÍKISÚTVARPSINS
Sænska frystihúsinn:
Radíóvinna miðvikudaga kl. 8,15 e.h.
ÁHALDAHÚS BORGARINNAR:
Trésmíði pilta, uppl. og innritun á staðnum
miðvikudaga kl. 8 e.h.
KLÚBBAR:
Leikhús æskunnar, leiklistarklúbbur.
Fræðafélagið Fróði, málfundafélag.
Ritklúbbur æskufólks.
Vélhjólakiúbburinn EldingT^
Kvikmyndaklúbbur æskufólks. -<
Ýmsir skemmtiklúbbar.
Upplýsingar um klúbbana að Lindargötu 50.—
Sími 15937.
Æskulýðsráð Reykjavíkur, skrifstofa að
Lindargötu 50. - Súni 15937.
Alþýðublaðið
vantar unglinga til að bera blaðið til áskrif-
enda í þessum hverfum:
Miðbænum,
Laugarási,
Ásgarði,
Borgarholtsbraut,
Langagerði,
Eskihlíð.
Afgreiðsla Alþýðublaðsins
Sími 14-900.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 23. október 1962 J3