Alþýðublaðið - 13.11.1962, Síða 3
oregur
samvmnu
Briissel, 12. nóvember
(NTB)
NORÐMENN skýrðn ráðherra-
nefnd Efnahagsbandalagsins svo
frá í dag, að þeir samþykktu hina
pólitísku samvinnu í Evrópu og
þeir væru fúsir til að taka þátt í
mótun þessarar samvinnu.
Ilalvard Lange, utanríkisrád
Iierra Norfegs, lýsti þessu yfir að
loknum ráðherrafundi í Briissel
í dag. Fundurinn stóð í 35 minút-
ur. Lange kvað viðræðurnar hafa
verið rnjög viðunandi.
Dönum var skýrt frá því á fundi
ráðherranefndarinnar í dag, að
viðræðnum um fulla aðild yrði
haldið áfram og lokið yrði viö'
þær strax og eygja mætti lausn á
viðræðunum við Breta.
Per Hækkerup, utanríkisráð-
herra Dana lýsti því yfir að lokn-
um fundinum, sem stóð í eina og
hálfa klukkustund, að fundurinn
hefði verið jákvæður. Hann kvaö
góðan grundvöll fyrir framhald
viðræðnanna hafa myndazt.
í Briissel er sagt, að ótvírætt
sjónarmið Norðmanna sé athyglis
vert og gleðilegt og rutt hafi verið
úr vegi hugsanlegum misskiln-
ingi meðál ríkjanna í EBE varð-
andi áform Norömanna.
Á fundinum var staðfest, að
ekki hefðu orðið neinar breyting-
ar á samskiptum efnahagsbanda-
lagsins og Noregs óg haldið verði
áfram samningaviðræðum um
fulla aðild.
Norska sendinefndin hefur feng
ið ítarlegan spurningalista, sem
einkum fjallar um sérstök land-
búnaðarvandamál, fiskimál og
vandamál í sambandi við að sam-
ræma félagsmálalöggjöfina, og
verður spurningum þessum svarað
fyrir áramót. _
Ekki hefur verið ákveðið, hve-
nær næsti ráðherrafundur Noregs
Adenauer óánægð-
ur með Kúbumálið
BONN, 12. nóvember, (NTB-
Reuter).
Adenauer, kanzlari sagði í dag,
að í rauninni hefði Krústjov, for-
sætisráðherra komizt vel frá Kúbu
málinu. Bandarikin vita ekki með
vissu hvort Sovétríkin fjarlægja
allar eldflaugar sínar fá Kúbu,
sagði kanzlarinn við bandariska
blaðamenn, sem buðu honum til
Framliald á 14. siðu.
og EBE fer fram, en samþykkt
hefur verið að halda hann fyrir
páska.
Mikilvægasti árangurinn af við-
ræðum Dana við EBE er loforðið
um að Ijúka samningunum um
fulla aðild er eygja má lausn á
viðræðurium við Breta.
Þar með er ljóst, að EBE mun
ræða við Dani jafnhliða Bretum
og að ákveða megi svo að ségja
samtímis á hvaða grundvelli rík-
in geti orðið aðilar að bandalag-
inu.
Af hálfu EBE var á það lögð á-
herzla í viðræðunum, að engin
breyting hefði orðið á samband-
inu milli samningsaðilanna og að
því verði haldið áfram að semja
um fulla aðild Dana að EBE.
Lange sagði í útvarpsviðtali í
dag að norsk aðild að kol- og
stálsamsteypunni og Euratom
hlyti að verða eðlileg afleiðing af
aðild að EBE. Norðmenn hefðu
lýst yfir, að þeir hygðust sækja
um aðild að þessum samtökum,
en Stórþingið hefði ekki fjallað
um málið.
í viðtali við fréttaritara NTB
sagði hann, að fiskimálin hefðu
ckki beinlínis borið á góma á
fundinum í dag. Lofað hefði ver-
ið, að Norðmenn, Danir og Bret-
ar fengju að senda fyrirhugaöri
fiskimálaráðstefnu EBE greinar-
gerð um sjónarmið sín. En enn sé
ekki ljóst hvort ríkin þrjú fái einn
ig að senda áheyrnarfulltrúa til
ráðstefnunnar.
INDLAND-KÍNA:
Barizt á báð-
um vígstöövum
Refsiaðgerðir
gegn Katanga
í undirbúningi
Leopoldville og New York,
12. nóv. (NTB—Reuter)
MIÐSTJÓRNIN í Kongó fór þess
á leit við U Thant, aðalfram-
kvæmdastjóra SÞ, að SÞ bindu
strax enda á árásir Katangaflug-
hers í Norður-Katanga. Bent er á
fregnir um, að flugher Katanga-
manna hafi á laugardag varpað 70
sprengjum á ýmsa staði á hinu um-
deilda landssvæði í Norður- Kat-
anga.
í dag vísaði Katangastjórn
fregnum þessum á bug og kvað
þær lið í undirbúningi undir nýj-
ar liernaðaraðgerðir af hálfu SÞ
gegn hersveitum Katangamanna.
Stjórnin í Leopoldville skýrði
jafnframt svo frá, að hún hefði
gripið til vissra ráðstafana til þess
að vera viðbúin ef eitthvað kynni
út af að bera.
Hún staðfesti, að hún styddi á-
ætlun U Thants um sameiningu
Katanga og annarra hluta Kongó
og hélt því fram, að árás Tshombe
væri gerð rétt áður en frestur sá,
scm settur hefði verið fyrir fram-
kvæmd áætlunarinnar, rennur út.
Þetta sýni, að Katangamenn séu
staðráðnir í að framlengja ástand
sem Tshombe geti hagnast á.
Sagt er, að fyrstu fregnirnar
um loftárásirnar hafi verið ýktar.
SÞ-læknir, sem kom til bæjarins
Sentery í Kasai-héraði, segir, að
hann hafi aðeins rekizt á þrjá
lítt særða menn, sem fluttir væru
þangað.
Fréttamenn í aðalstöðvum SÞ
telja, að sennilega verði stungið
upp á efnahagslegum refsiaðgerð-
um gegn Katanga, ef héraðið held
ur áfram að reisa skorður við
sameiningu Katanga og Kongó.
Allt á huldu
um viðræöur
við Sovétríkin
LONDON, 12. nóvember (NTB-
Reuter).
VESTURVELDIN ráðfæra sig
enn um ástand þaö í alþjóðamál-
um, er risið hefur upp eftir Kúbu-
deiluna og bráðabirgðarlausn
hennar, en enn hefur ekki verið
tekin ákvörðun um það, hvort þau
skuli eiga frumkvæðið að nýjuni
samningaviðræöum við Rússa, að
því er haft var eftir áreiöanleguin
heimildum í London í dag.
Af opinberri hálfu er talið, að
Rússar hafi enn ekki látið í ljós
vilja til alvarlegri samningavið-
ræðna um Berlín, afvopnun, bann
við tilraunum með kjamorkuvopn
o. fl.
Bazar
Bazar kvenféiags Alþýðu-
flokksins: Konuv eru beðnar
að mæta í kvöld kl. 8 á skrif-
stofu Alþýðuflokksins í AI-
þýðuhúsinu við Hverfisgötu
MtWUUMWmMMVmVMMUI
Nýju Delhi, 12. nóv-
(NTB^Reuter)
Síðastliðinn sólarhring hafa bloss
að upp bardagar að nýju með
indverskum og kínverskum her-
sveitum, bæði á austur- og vestur-
vígstöðvunum, að því er segir í
fréttatilkynningu frá indverska
landvarnaráðuneytinu í dag. Fimm
menn hafa særst í liði Indverja.
Fréttastofan Nýja Kína hermdi
samtímis þessu, að indverskar her
sveitir hefðu hreiðrað um sig á
Walong-svæðinu austur árinnar
Tawang á austurvígstöðvunum og
skotárásir þungvopnaðs stórskota-
liðs þeirra á vígstöðvar Kínverja
héldu áfram.
Kínverjar segja, að indverskar
flugvélar hafi flogið í kínverskri
lofthelgi, og mikið magn vopna
hafLverið flutt til Walong svæð-
isins, þar sem nýjar árásir séu
sennilega i undirbúningi.
Nehru hefur frá þvi skýrt, að
Indverjar hafi beðið Bandaríkin
um meiri vopn og vélar til vopna-
framleiðslu. Frá því var skýrt á
þingi í dag, að yfirvöldin hefðu
nánar gætur á kínverskum stjórn
arerindrekum á Indlandi og stjórn
mála sambandið við Peking-
stjórnina sé í athugun hjá stjórn-
inni.
Nfehru endurtók í viðtali við er-
lenda blaðamenn í dag, að Rúss-
ar hefðu lofað að senda þotur af
gerðinni MIG-21 til Indlands og
reisa verksmiðju til framleiðslu á
slíkum flugvélum. Aðspurður
kvað Nehru Rússa augsýnilega
vera komna í erfiða aðstöðu þar
sem Kínverjar væru bandamenn
þeirra og Indverjar vinir.
Matvælaráðherra Indlands, S.
K. Patil skoraði í útvarpsræðu í
dag á bændur landsins að auka
framleiðslu matvæla til þess að
tryggja sigurinn.
Kennedy ræðir
Kúbu-deiluna
Washington, 12. nóv.
(NTB —Reuter)
KENNEDY) forseti ræddi við
helztu ráðunauta sína í þjóðar-
öryggisráðinu, þ. á m. Adlai Ste-
venson og John Mc Cloy, um
Kúbudeiluna. Ekki var gefin út
tilkynning um fundinn. Rætt var
um gang viðræðna Stevensons og
Mc Cloys við fulltrúa Rússa hjá
SÞ.
Talið er, að fyrst og fremst hafi
Kennedy og ráðunautar hans rætt
um brottflutning sovézkra eld-
flauga frá Kúbu og hvernig mið-
að hefði í viðræðunum um áætl-
unina um, að Alþjóða Rauðikross-
inn skuli hafa eftirlit með skip-
um, sem flytja farm til Kúbu. —
Einnig mun hafa verið rætt um
kröfu Bandaríkjamanna um eftir-
lit með eldflaugastöðvunum.
Bandaríkjamenn halda fast við
þessa kröfu til þess að úr því fá-
ist skorið, hvort brottflutningur
árásareldflauga Rússa og sprengju
flugvéla af Iijusjin-gerð sé fram-
kvæmdur.
Adenauer ver enn
Spiegel-aðgerðir
BONN, 12. nóvember, (NTB-
Reuter).
Konrad Adenauer, kanzlari,
sagði blaðamönnum í dag að hann
væri ánægður með að sjá Volk-
mar Hopf, ráðuneytisstjóra í land-
varnarráðuneytinu aftur á skrif-
stofu sinni.
Hopf var vikið úr embætti um
óákveöinn tíma fyrir viku, þar eð
hann hafði tekið á sig ábyrgðina
á því, að Wolfgang Stammberger,
dómsmálaráðlierra, var ekki fyrir
fram skýrt frá lögregluaðgeröjjm
gegn tímaritinu Der Spiegel.
Adenauer varði aðgerðir lög-
reglunnar í Spiegel-málinu, en
játaði, að Vestur-Þjóðverjar hefðu
beðið álitshnekki erlendis vegna
málsins.
Formælandi ríkisstjórnarinnar í
Karlsruhe sagði í dag, að búast
mætti við, að fleiri hermenn yrðu
liandteknir í sambandi við Spie-
gel-málið, en alls hafa sex menn
verið handteknir, ofursti, útgof-
andi tímaritsins og fjórir starfs-
menn þess, grunaðir um landráð.
Ofurstinn, Adolf Wicht, starfaöi í
leyniþjónustunni, sem heyrir beint
undir kanzlarann.
Stammberger, dómsmálaráð-
herra ræddi í 4 tima við Gerhard
Westram, saksóknara f dag.
Rudolf Augstein segir S grein,
sem hann skrifaði í fangelsinu og
birtist í Der Spiegel í dag, að
hann krefjist þess enn, að Franz-
Josef Strauss, landvarnaráðherra,
segi af sér.
Hann sakar hann um að fórna
öðru fólki, til þess að koma scr
sjálfum áfram í stjórnmálum. Þá
er staðhæft, að ráðherrann hafi
ekki komið rétt fram í mörgum
tilvikum.
Formælandi flokks Frjálsra
demókrata sagði í kvöld, að um-
mæli kanzlarans um Hopf kynnu
að merkja að ástandið hefði
breytzt. Útskýra yrði þctta mál í
viðræðnm milli aðilanna að sam-
steypustjórninni hið fyrsta.
FLOKKURINN
Stokkseyri
Alþýðuflokksfélag Stokkscyrar
heldur aöalfund í kvöld kl. 8:30.
Auk aðalfundarstarfa verður kos-
inn fulltrúi á flokksþing.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 13. nóv. 1962 3