Alþýðublaðið - 13.11.1962, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 13.11.1962, Blaðsíða 9
hrif. í þessu leikriti um mann- legan breiskleika, veikleika og skipbrot, verkar hún stundum eins og kóngsdóttir í einhverju œvintýri. Hún er einum um of heil en í stað þess að benda með því enn gleggra á bresti "hinna, veikir hún leikritið. Sá andi sem svífa á yfir vötnum þessa leiks á ekki að vera hennar, að því er mér finnst, en hann er það. Eins er það með Pétur, vininn, sem aldrei bregst. Hann er ein- um um of ævintýrakenndur, til þess að vera eðlilegur og sannur. Svo er fyrir að þakka, að slík- ar persónur eru til, en fyrir þeirra tilstilli verður leikritið einum of líkt ævintýri og það er áreiðanlega ekki ætlunin. — Leikritið hefði orðið sterkara með meiri átökum hinna íáu að- alpersóna. Það eru Láki, Áróra og Jónatan, sem berjast, þau eru þjóðin, hrösul, brokkgeng og barnaleg, en átök þeirra verða að koma innan frá, í þeirra eig- in brjósti bera þau sigurinn eða dauðann, eins og þjóðin sjálf. Ekki vegna áhrifa álfameyj- anna úr þjóðsögunum eða kóngs- sonarins úr ævintýrunum, — og komi þeirra áhrif til, verða þau að vera með óbeinni hætti en hér var sýnt. Þessi er mín bjargföst sann- færing, en hún bendir aðeins á leið, sem er önnur að sama marki og Jökull hefur náð, og farizt mjög vel. Áður en vikið er að leikurun- um og þeirra þætti, verður að geta þess, að Steinþór Sigurðs- son hefur gert forláta góð leik- tjöld fyrir leikritið. Þau juku gildi leiksins að mun. Jón Þór- arinsson hefur og samið tónlist við leikritið, sem var hugnan- leg. Ljósastjórn Gissurs Pálsson- ar varð líka yfirleitt til bless- unar, en hin daufa lýsing var þó ýkt á köflum, — óþarflega sterk undirstrikun á anda leiksins. — Gísli Halldórsson hefur haft leikstjórnina með höndum og unnið það verk af miklum skiln- ingi og vandvirkni. Þá er komið að hlut leikar- anna. Tólf leikendur alls fara með hlutverk. Tvær ungar stúlk- ur, Hrafnhildur Guðmundsdótt- ir og Gerður Guðmundsdóttir fara með smáhlutverk og gera þeim þokkaleg, en lítt umtalsverð skil. Theódór Halldórsson og Guðmundur Ingimundarson fara og með smáhlutverk, án orða. Þeim er vel skipað af leik stjóranum. Rukkara leikur Karl Sigurðsson skemmtilega. Önnur hlutverk eru stærri og gefa öll tilefni til nokkurrar um- sagnar. Framh. á 13. síðv Barna- fatnaður UngbarnRgallar, verð 282.00 kr. Úlpur, verð 245.00 kr. — Kjólar, ný sending. Drengjabuxur og blússur — Barnanáttföt með sokkum — Prjónaföt á drengi. — Peysur Ullargammosíur, verð frá kr. 95.00. Gallabuxur, verð frá kr. 104,00. Hrannarbúðin Blönduhlíð 25 — Grensásvegi 48 — Nesveg 39 sem áSur var SKESFAN AUGLÝSIR DAGLEGA NÝJAR VÖRUR HRANNARBÚÐIN, Blöndhlíð 35. HRANNARBÚÐIN, Grensásveg 48. HRANNARBÚÐIN, Nesvegi 39. Pökkunarstúlkur wyjHBWgw1'1"1"---- ir — og fyrst og fremst fyrir baráttu Alþýðuflokksins og verkalýðshreyfingarinnar. En nýir tímar bera í skauti sér nýjar hugsjónir. Eg efast ekki um, að Félag ungra jafnaðar- manna er fullkomlega því hlut verki vaxið, sem framtíðin ætl ar því að vinna að. VSV. ★ i Á 35 ára afmæli Eélags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík vil ég færa því árnaðaróskir og þakklæti Sambands ungra jafnaðarmanna. Það hefur um áratuga skeið staðið í farar- broddi unghreyfingarinnar, úr röðum þess hafa komið svo margir forystumenn Alþýðu- flokksins fyrr og síðar og á þessu merkisafmæli þess á Samband ungra jafnaðar- manna ekki aðra ósk heitari en þá, að það megi eflast mjög og vaxa í framtíðinni, Alþýðuflokknum og jafnaðar- stcfnunni til heilla. 35 ár eru langur tími og þó fer það eftir því hvernig á það er litið og við hvað miðað er. Ef miðað er við aldur Al- þýðufiokksins og annarra starfandi stjórnmálaflokka í landinu, þá er það sannarlega gamalt félag. Alþýðuflokkur- inn er 46 ára gamall í ár, en félagið er 35ára, elzt alþýðu- flokksfélaga i Reykjavík og líklegast eitt elzta, ef ekki elzt starfandi alþýðuflokksfélaga í landinu. Og það ber aldurinn vel. Það hefur nýskeð kastað ellibelgnum og færzt í fang endurnýjun lifdaganna. Það vill vera ungt félag ungs fólks en ekki gamalt og staðnað fé- lag, sem fáir vilja vera í. Ungir jafnaðarmenn um allt land eru stoltir af Félagi ungra jafnaðarmanna í Reykja vík. Það á'sér stærsta og bezt búna félagsheimili stjórnmála- félaga reykvískrar æsku, og heldur þar uppi mestu starfi. Ósk þeirra og von er sú, að félagið megi enn færast í auk- ana svo að það megi sem allra bezt vinna að tilgangi sínum. Bjg. Guðmundsson. óskast strax. Hraðfrystgfiúsið Frost h.f. Hafnarfirði — Sími 50165. Hörplötur 4x8 fet. þykktir 8 m/m., 12 m/m., 22 m/m og 26 m/m. Væntanlegar þykktir: 8 m/m. 16 m/m, 18 m/m og 20 m/m. Trétex 4x8 og 4x9 fet, þykkt: W‘. Þilplötur 4x8 fe.t, 4x9 fet 210x160 cm og 514x12 fet. Einnig 4x9 fet gataðar. Þykkt: V6”. Plastplötur 120x279 cm. Verð kr. 663,75 pr. plata. Einnig fyrirliggjandi: Palisander harðviður og spónn, eik 3" þykkt, mahognispónn o. fl. ÁSBJÖRN ÓLAFSSON H.F Grettisgötu 2 — Sími 24440. •i .y í ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 13. nóv. 1962 <}

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.