Alþýðublaðið - 13.11.1962, Blaðsíða 13
Tilboð óskast í innanhússrríði á húsinu Háabarð 14 Hafnar-
firði. Teikningar og útboðslýsing sækist að Laugavegi 24
Reykjavík. Skilatrygging 300.00 kr.
Húsnæðismálastofnun ríkisíns.
Orðsending til viðskiptavina
h
!•
Höfum flutt lager okkar frá Hjarðar-
haga 24 að
Ármúta 16 Slmi 38401
Múlalundur
LÖGTAK
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undangegnum úr-
skurði verða lögtökin látin fram fara án frekari fyrirvara,
á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum
liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, fyrir eftirtöld-
um gjöldum:
Ógreiddum söluskatti 3. ársfjórðungs 1962, svo og van-
greiddum söluskatti og útflutningssjóðsgjaldi eldri ára, á-
föllnum og ógreiddum skemmtanaskatti og miðagjaldi,
gjöldum af innlendum tollvörutegundum og matvælaeftir-
litsgjaldi, skipulagsgjaldi af nýbyggingum, útflutnings- og
hlutatryggingasjóðsgjöldum og tryggingaiðgjöldum af lög
skráðum skipshöfnum ásamt skráningargjöldum.
Borgarfógetinn í Reykjavík, 12. nóvember 1962.
Kr. Kristjánsson.
Alþýðublaðið
vantar unglinga til að bera blaðið tíl ásikrif-
enda í þessum hverfum:
Framnesvegi,
Laugavegi neðri.
Afgreiðsla Alþýðublaðsins
Sími 14-900.
Prentarar
.
Viljum ráða nú þegar 2 prentara.
Mikil eftirvinna getur komið til greina.
ICassagerð Reykfavíkur h.f.
volkswagen
VELIN:
Legur
Ventlar
Sveifarás
Vélarhús
Undirlyftur
Undirlyftuásar
Pakkningarsett
Skiftivélar (compl).
GÍRKASSINN:
Kambnr og keiluhjól
Skiptiöxlar
Öll leg
Öll tannhjól
ÖIl þétti
Allar stilliskífur
Skiftigírkassar (compl.)
UNDIRVAGNINN:
Grindur
Grindarnef
Fjaðrir
Höggdeyfar
Jafnvægisstanglr
Bremsuborðar
Bremsuskálar
Bremsudælur
Bremsubarkar
STÝRISGAN GUR:
Spindiiboltar
Slitboltar
Stýrisendar
Stýrisstangir
Stýrishjól
BODYHLUTAR:
Frambretti
Afturbretti
Hurðir
Framlok
Afturlok
Svuntur
Toppar
Stuðarar
ÝMISLEGT:
Farangursgrindur
Felguhringar
Mottur
Sætahjúpar
Aurhlifar
Brettahlífar
Rennulistar
Vindlakveikjarar
Verkfærasett
Útispeglar
Öryggisbelti
Útvarpsstangir
Snjóbarðar
Bafgeymar
o. fl. o. fl.
P. Stefánsson
Hverfisgötu 103. Sími 13450.
HART í BAK...
Framh. úr opnu
Brynjólfur Jóhannesson, Jóna-
tan, strandkapteinninn af „óska-
barni þjóðarinnar,“ blindur og
ónýtur vesalingur — lék af
þeirri fíngerðu tækni, sem aS-
eins fæst með langri reynslu og
nákvæmri innlifun í hlutverkið.
Hann vann hlutverkið af frá-
bærri trúmennsku, miklum skiln
ingi og eins Óbrynjólfskt og
unnt var. Það er að segja, hann
vann sig að mestu út úr sínum
einkastíl, svo að hann kom al-
gjörlega á óvarL Eftirminnileg
túlkun.
Helga Valtýsdóttir, Áróra, spá
kerlingin, gleðikonan, móðirin,
sem brást öllum, vegna þess, að
allt hafði brugðist henni, lék
sitt hlutverk mjög vel. Hún bjó
yfir mikilli reisn á örlagastund-
um, trúverðugum harmi, harð-
neskjulegri gleði. Raddbeiting
hennar var forláta góð, en lök-
ust í smjaðri og skyndigróða-
von.
Sterkt hlutverk frá hendi höf-
undar og vel unnið.
Birgir Brynjólfsson, Láki, —
unglingurinn, flustráið, sem átti
á hættu að krókna í lífsnepjunni
en bjargaðist að lokum, átti
þarna sinn bezta leik til þessa.
Hann kömst stundum mjög ná-
lægt því að vera hinn dæmi-
gerði „gæi“ hvar sem vera skal,
skeljaður utan, opin kvika innan.
Birgir er mjög vaxandi leikari
helzt er það raddbeitingu, sem
enn er ábötavant. Þegar hann
hefur náð valdi á henni, er hann
kominn í hóp okkar góðleikara.
Steindór Hiörieifsson, Stfgur,
Guðsorðasnakkurinn, leiðandi
alla með illu eða góðu fram fyr-
ir „stól lambsins“ var kostulegur
og unninn af þeim tilþrifum, sem
við mátti búast af Steindóri, svo
góður leikari, sem hann er. —
Gerfi hans var líka afar gott.
Gísli Halldórsson, Finnbjörn,
skranpjakkurinn, sem verzlaði
með skran og var sjálfur óhugn-
anleg skranhrúga, lék hlutverk
sitt trúverðuglega, en ekki geðj-
aðist mér þó vælutónn hans og
eymd með öllu, rödd Gísla átti
því sinn þátt í því að honum
tókst mjög vel að gera per-
sónuna það skítmenni, sem til
var ætlast.
Um persónumar Pétur og Ás-
dísi hef ég áður farið orðum
Þau eru leikin af Guðmundi Páls
svni og Guðrúnu Ásmundsdótt-
ur. Guðmundur heldur sterkt á
frjálsíþróttadeíld
Miðvikud. 14. okt. n.k. kl. 21,
15 sýnir Bsnedikt Jakobsson og
útskýrir, í kennslustofu nr. 3 í
Háskóla íslands, kennslukvik-
myndir af ýmsum fremstu frjáls-
íþróttamönnum heims.
Sýndar verða eftirtaldar grein-
ar:
Spretthlaup (viðbragð),
grindahlaup,
hástökk og
stangarstökk.
Félagar, fjölmennið og takið
með ykkur nýja félaga.
Mætið stundvíslega.
Stjómin.
hlutverki sínu, en það er ekki
vel innfellt frá höfundarins
hendi.
Guðrún fer og mjög hlýlega
með hlutverk sitt, hún má þó
gæta sín á brosinu, sem hún
notar of mikið.
Öll framganga leikaranna har
það með sér, að leikritið er vel
æft og unnið af skilningi og al-
úð.
Aðstandendum leikritsins var aS
lokum frábærlega vel tekið og
var það að vonura.
Leikfélagi Reykjavíkur skal
innilega óskað til hamingju með
áfangann í starfi sínu, bæði leik-
rit Jökuls, úrvinnslu þess, svo og
þær breytingar, sem gerðar hafa
verið í gömlu Iðnó til stórfelldra
bóta.
Högni Egilsson.
.•tiiii.tiiiu
I Breytum mið-
| stöðvarklefum
I fyrir þá, sem búnir ern að fá
| hitaveitu og gemm þá að björl
- um og hreinlegum geymslum
eða öðru. eftir því sem óskað er
eftir.
Ennfremur getum við bætt
við okkur nokkrum verkefnnm
á ísetnlngu á TVÖFÖLDU
GLERI.
Vinsamlegast sendið nafn eg
símanúmer yðar á afgreiðsln
blaðsins merkt, ákvæðis- eða
tímavinna.
SKIPAllTGCRÐ RiKISlNS
M. s. Es|a
fer austur um land í hringferð
18. þ. m.
Vörumóttaka á þriðjudag og
miðvikudag til Fáskrúðsfjarðar,
Reyðarfjarðar, Eskifjarðar, Norð
fjarðar, Seyðisfjarðar, Raufar-
hafnar, Húsavíkur, Akureyrar
og Siglufjarðar.
Farseðlar seldir á föstudag.
Herjólfur
fer á morgun til Vestmanna-
eyja og Hornafjarðar.
Vörumóttaka til Homafjarðar
í dag.
Bíla og
búvélasalan
Selur:
Austin Gipsy, 62, benzín.
Austin Gipsy, 62, disel, með spill.
Báðir sem nýir.
Opel Carvan, ‘61 og ‘62
Opel Reckord ’60 — ’61 og ’62.
Consul ’62, 2ja og 4ra dyra.
Bíla- &
búvélasalari
vlð Mlklatorg, sími 2-31-38.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 13. nóv. 1962