Alþýðublaðið - 05.12.1962, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 05.12.1962, Blaðsíða 4
Við drögum á föstudaginn kemur um 15 eitt þúsund króna vinninga Guðni Gu'ðmnds son skrifar ERLEND TfÐINDI KOSNINGARNAR í Frakk- landi á dögunum og hinn mikli sigur de Gaulle í þeim, hafa valdid' miklum vangaveltum um hugsanlega framvindu í frönskum stjórnmálum. Það Ieikúr ekki minnsti vafi á þvl, að de Gaulle liefur að undan- förnu reynzt sjálfráður í meira lagi og ekki látið liggja í lág- inni, að hann hefði lítið álit á gömlu flokkunum. Ilann hef- ur hins vegar gert sér lítið fyr- ir og unniö tvennar meiri-- háttar kosningar á skömmum tíma, þjóðaratkvæðið um stjórn arskrárbreytinguna og þing- kosningarnar, og sýnt með því, að hann nýtur stuðnings þjóð- arinnar. Kemur það raunar engum á óvart, sem komið lief- ur til Parísar og heyrt t. d., hvernig orð leigubílstjórum þar hefur legið til þingmanna allt fram á síðustu ár. Það, sem mönnum finnst ef til vill ugg- vænlegast við þróunina, er þó fyrst og fremst það, hve mjög hefur vænkast hagur kommún- ista við þróunina undanfarið. Það skal þó tekið fram strax, að sigur kommúnista í þing- kosningunum, var tölulega séð ekki neitt til þess að hrópa húrra fyrir. Þeir eru enn langt frá því, að ná uPP tapi sínu frá 1958 og þá vantar enn rúma milljón atkvæða til að ná upp þeirri atkvæðatölu, sem þeir liafa náð hæstri eftir stríð. Ár- angri þeirra mætti helzt jafna til árangursins á dögum Þjóð- fylkingarinnar 1936, en þó koma þeir miklu verr út núna. Nú juku þeir þingmannatölu sína úr 10 í 41, en 1936 fóru þeir úr 10 sætum í 72. Annað atriði bendir til kosn- inganna 1936, en það er sú samvinna, sem átti sér stað í ýmsum einstökum kjördæm- um milli jafnaðarmanna radí- kala og kommúnista. Ekki var hér um neina allsherjarsam- vinnu að ræða, eins og 1936, þegar þessir flokkar tóku höndum saman, vegna hættunn- ar af nazistískum samtökum eins og Eldkrossinum, heldur bundust flokkarnir nú sam- tökum á stöku stað, þar sem slík samsta'ða gat fellt gaull- ista frá þingsæti. (Til dæmis féll Debré, fyrrverandi for- sætisráðherra og „arkítekt" fimmta lýðveldisins, fyrir slíkri samstöðu, er jafnaðarmenn og kommúnistar drógu frambjóð- endur sína til baka í Loire og beindu fylgi sínu að frambjóð- enda radíkala, sem var kjör- inn.) Annars ber að gæta þess, að þessi „taktík“ var ekki að- Framh. á 12. siðr 4 5. des. 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.