Alþýðublaðið - 05.12.1962, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 05.12.1962, Qupperneq 9
í GÆR varð sjötugur Þorgils Guðmundjsson jfulltrúi _ hjá fræðslumálaskrifstofunni. í til- efni þessa merkisafmælis skruppum við og röbbuðum við Þorgils um ýmislegt sem á daga hans hefur drifið. — Ég er fæddur 4. desember 1892 að Valdastöðum í Kjós, og hétu foreldrar mínir Guðmund- ur Sveinbjamarson og Katrín Jakobsdóttir. Á Valdastöðum var ég þangað til ég fór á Hvanneyr- arskólann árið 1913, en þaðan útskrifaðist ég t.veimur árum seinna 1915. Næsta vetur eftir var ég heima, en réðist síðan til enska kaupsýslumannsins Georg Kópland, og hjá honum vann ég í tæp tvö ár. Kópland var mik- ill áhugamaður um laxveiðar og reyndi meðal annars að koma upp klakstöð á annarri jörðinni sem hann átti í Kjósarsveit, Laxa nesi. Hin jörðin hans hét Neðri Háls. — Og svo, hvert lá leiðin síð- an? — Þar næst er það að ég legg leið mína til Danmerkur á íþrótta skólann í Ollerup, þar sem ég dvaldi við íþróttanám í tvö ár. Til Danmerkur fór ég mest fyr- ir eggjan eins góðvinar míns, Halldórs Vilhjálmssonar, skóla- stjóra á Hvanneyri, og samdist svo með okkur, að eftir nám er- lendis kæmi ég sem kennari að Hvanneyri og kenndi þar piltum leikfimi og búsmíðar. Einn vet ur dvaldi ég líka í Svíþjóð á stað, sem mörgum íslendingum er að góðu kunnur, Nesi í Sví- þjóð. Nú þegar heim kom aftur ár- ið 1922, varð eins og umsamið hafði verið, að ég fór að Hvann- eyri, þar sem ég var fyrsta vet- urinn heimiliskennari hjá skóla stjórahjónunum, en síðar kenn- ari við skólann. Á þessum árum fóru menn að hugsa um að reisa héraðsskóla i Borgarfirði, eða nánar sagt að Reykjum. Að þessum skóla var ég ráðinn kennari, og árið áður en hann tók til starfa, fór ég aft ur til Norðurlandanna til að kynna mér betur íþróttalíf þar og kennslumál. Árið síðar, 1930 kem ég svo aftur til landsins og sezt að I Reykholti, þar sem ég var síðan bóndi og kennari jafnframt til ársins 1947 að ég flutti til Reykja víkur. — Ha, bóndi og kennari í senn. Var það ekki all umfangs- mikið? — Nei, það fannst mér ekki. Ég hafði að vísu mann til að hirða búpeninginn að vetrarlagi, en á sumrin vann ég sjálfur að mínu búi, bjó að Reykholti. Það er mjög gaman að vera bóndi. Nú, eins og ég sagði, fluttist Þorgils Guðmundsson ég hingað í bæinn árið 1947, og hef starfað á fræðslumálaskrif- stofunni nær óslitið síðan, nema hvað ég hef sinnt öðrum verkefn um sem fyrir mig hafa verið lögð, eftir megni. — Þú hefur verið mikið í í- þróttum? — Já, ég var við þetta framan af ævinni. Ég glímdi mik ið. Árið 1920 fékk ég fegurðar- verðlaun fyrir glímu á íslands- glímunni. Og á sínum tíma þá var ég valinn í konungsglímuna svokölluðu. Við glímdum mikið á Hvanneyri, þar hefur alltaf ver ið mikið íþróttalíf. Fyrr á árum þegar ég var þar viðloðandi, var glíman aðal íþrótt piltanna, en nú á síðari árum er þar mikið iðkuð knattspyrna.. — Þú hefur nú iðkað fleira en glímu? — Já, ég var töluvert í hlaup- um og stökkum, og vann hér víða vangshlaupið 1919. Einu sinni var ég skráður methafi í langstökki. Það met var sett upp í Borgar- firði á keppnismóti ungmennafé laganna þar árið 1919, og var 5.70, Það þætti ekki langt núna. — Hvernig fannst þér að kenna íþróttir? — Það er alveg yndislegt. I Reykholti kenndi ég bæði sund og leikfimi, líkaði hvort tveggja vel. — Það hefur mikið verið synt í Reykholti? — Já, enda aðstaða þar með á- gætum. Annars gera menn mik- inn feil nú til dags með því að kenna sund í svona heitum laug um. Sund er fyrst og fremst til að bjarga manninum, ef með þarf að halda, og ef hann drukknar á annað borð, þá drukknar hann í köldu vatni. Það á að venja fólk á að synda í köldu vatni. Þá er sundið því fyrst til gagns. — Ungmennafélagshreyfingin hefur verið að vakna á þínum yngri árum. Þú hefur tekið þátt í henni? — Já, það gerði ég. Var einn af stofnendum ungmennafélags- ins Drengur árið 1915, og er nú heiðursfélagi þess. Ég starfaði að almennum félagsmálum ung- mennafélaganna í fjölda ára, var meðal annars fjórðungsstjóri fyr ir Sunnlendingafjórðung áður en héraðssamböndin komu til sög- unnar. í Borgarfirði starfaði Ung mennafélagið íslendingur þegar ég kom að Reykholti árið 1930, og var ég formaður þess í nokkur ár, svo og sambandsstjóri ung- mennafélaga Borgarfjarðar. Þá var mikil gróska í ungmennafé- lagahreyfingunni. — Ungmennafélögin eru ekki eins sterk nú eins og þau voru áður fyrr. Hverju kennir þú því? — Tímarnir eru breyttir og nú er fleira sem gleður í sveitunum. Ungmennafélögin eru þess vegna ekki eins einvöld um hugi fólks og hér áður fyrr. — Ekki hefur þú hætt að starfa að þínum áhugamálum við komuna til borgarinnar? — Nei, ég kenndi í þó nokkur ár glímu hjá Ármanni, og fór með al annars tvær ferðir út með pilt ana, aðra á Olympíumótið í Finn landi 1952. Svo var ég löngum í stjórn í. S. í. og er núna heið- ursfélagi sambandsins, en það þykir mér ákaflega vænt um. — En eitthvað um þín einka- mál. Þú er giftur sé ég. — já, 1924 giftist ég Halldóru Sigurðardóttur frá Fiskilæk í Melasveit, og höfum við átt þrjú börn. — Sem heita? — Óttar heitir annar sonur .minn, sem hefur skrifstofu hér í borg á vegum NATO, einu al- þjóðlegu skrifstofuna í landinu. Hinn sonur minn heitir Birgir og hann er nú framkvæmdastjóri Flugfélags íslands í Kaupmanna höfn. Dóttir mín heitir Sigrún og er gift Matthíasi Á. Matthíassyni alþingismanni í Hafnarfirði. — Þú ert enn við beztu heilsu. Þykir þér ekki miður að þurfa nú að leggja niður vinnu? — Formlega heitir það nú að ég leggi niður vinnu, en samt á ég margt ógert ennþá, og býst við að gera þó áratugirnir séu orðhir sjö. Og við óskum Þorgils til ham ingju með afmælið og höldum á brott. GREIÐSLUSLOPPAR Hollenzkir Amerískir Enskir og Þýzkir Greiðslu- sloppar í úrvali , Nýkomnir hollenzkir greiðslusloppar á telpur 6—12 ára. Marieinn Einarsson & Co. Fata- og gardínudeild Sími 12816, Laugav. 31. ' FINNSK MASONIT 4x8 fet og 4x9 fet SKÚLASON & JÓNSSON S.F. Síðumúla 23. Sími 36500. BAÐKER Fyrirliggjandi 170x75 cm. Verð með öllum fittings aðeins kr. 2485,00. Ennfremur Trétex og harðtex Mars Trading Company hf. Klapparstíg 20. — Sími 17373. Þýzkir og hellenzkir INNISKÓR fyrir kvenfólk fýrir karlmenn fyrir unglinga fyrir böm. Stórglæsilegt úrval. SKÓVAL Austurstræti 18 Eymundssonar-kjallara. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 5. des. 1962 §

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.