Alþýðublaðið - 18.12.1962, Page 7
TVÆR GLÆSILEGAR JÓLABÆKUR
AUGAELDAR
Þegar þið veljið jólabókina í ár þá gleymið ekki
Haugaeldum, bók Gísla Jónssonar, ritstjóra frá Há-
reksstöðum í Jökuldalsheiði, nú ritstjóra í Winnipeg
í Canada. í bókinni birti'st fjöldi æivisagna um sam-
tíðarmenn lífs og liðna, austan hafs og vestan, auk
margra merkra ritgerða og þátta. Má þar fyrst og
fremst nefna þátt Gísla um æskuheimili sitt á Há-
reksstöðum, sem mun jafnan verða talin hin merk-
asta beimiid um líf liðinna kynslóða í einni afskekkt-
ustu byggð á íslandi.
Stefán Einarsson prófessor í Baltimore, skrifar ævi-
ágrip Gísla í ýtarlegri ritgerð.
Bókin HAUGAELDAR er 416 bls. prentuð á mynda-
pappír og prýdd 93 myndum og teikningum. Verðið
er þó aðeins 273.00 með söluskatti' og því engin jóla-
bók svo ódýr, miðað við stærð og frágang.
Þetta er tilvalin JÓLABÓK hinna vandlátu.
FERÐABÓK
►
Á iaugardaginn kom á markaðinn bók eftir Sigríði og Birgi Thorlacius. Eru það 18 þættir ur
ferðalögum þeirra hjóna víðs vegar um heiminn, enda hafa þau ferðazt meira en flestir íslend-
ingar, um fjórar álfur heims og hafa því frá mörgu og skemmtilegu að segja. Má nefna ferða-
þætti frá Suður-Rússlandi, Indlandi, Spáni, Hawaii-eyjum, Utáh og sivo framvegis. Sigríður
og Birgi'r Thorlacius eru landskunn fyrir erindi í útvarpi og greinar í blöðurn og tímaritum,
enda bæði ritfær í bezta lagi. Ferðabók þeirra er á þriðja hundrað blaðsíður, prýdd 37 glæsi-
legra mynda úr ferðalögum þeirra hjóna og útgáfan öll hin vandaðasta. Þetta verður vaflítið
ein skemmtilegasta og hugðnæmasta bókin, sem bemur út í ár, og því tilvalin jólagjöf.
EFNI BÓKARINNAR: Á Spáni. — Dans við dauðann. — Svipmyndir úr Indlandsferð. — Gönguferð um Delhi. — Kjör
indverskra kvenna. — Góðir gestgjafar. — Feneyjar. — Vordagar og vorhugur í Uzbekistan (Suður-Rússlandi). —
Drottningu liðinna daga. — Hawaii. — Hjá Indíánum. — Vika í Washington. — Fjallbúar í Kentucky. — Barrskógaskóli.
— í höfuðborg Mormónaríkis. — Eyðimerkur og undralönd. — Á búgarði í Californíu. — Á humarveiðum í IVIaine.
Afgreiðsla í Reykjavík á Grundarstíg 11, sími 15392.
Garðar S. Gíslason kaupm.
Minningarorö
Garðar S. Gíslason.
í D A G er kvaddur hinztu
kveðju einn af merkisberum
frjálsra íþrótta á íslandi, Garð-
ar S. Gíslason kaupmaður, sem
lézt fyrir aldur fram 9. þ. m., 56
ára að aldri. Fæddur var hann
20. sept. 1906, sonur merkishjón-
anna Gísla Helgasonar kaup-
manns í Reykjavik og Valgerð-
ar Freysteinsdóttur, sem var
þremenningur að frændsemi við
móður Halldórs Kiljan, en hún
lézt sl. sumar hátt á tíræðlsaldri.
Var Garðar heitinn því bróðir
þeirra Ingólfs Gislasonar kaup
manns og Vals Gíslasonar leik-
ara.
Snemma hneigðist hugur Garð-
ars til íþrótta, fyrst knattspymu
og síðar frjálsra íþrótta og var
hann stöðugur keppandi á íþrótta
mótrum í nærfellt 20 ár, á tíma-
billnu 1918—1938 og ávallt í
fremstu röð. Annars hófst frægð-
arferill Garðars í Vesturheimi
(Winnipeg), en þangað sigldi
hann árið 1922 og lagði stund á
verzlunamám í 4 ár. Hins vegar
fóm frístundirnar þá sem oftar
í íþróttaæfingar og keppni, enda
átti hann þar kost á því að vera
undir handleiðslu úrvalsþjálfara.
Er skammt frá því að segja, að
hann tók svo örum framförum,
að liann bar brátt af flcstöllum
keppinautum sínum þar vestra
og kom heim vorið 1928 hlaðinn
ótal sigurlaunum, aðeins 19 ára
gamall. Á Alisherjarmótinu hér
heima það sama sumar vakti
hlaupahraði hans og framganga
öll svo mikla athygli, að fólk
ætlaði varla aff trúa sinum eig-
in augum, enda stakk Iiann
keppinauta sína hreinlega af í
100 og 200 m. og bætti ísl. metin
það sumar um 7/10 og 1,5 sek. á
hvorri vegarlengd.
Því miður meiddist hann á
fæti ári eða svo eftir heimkom-
una og dró það nokkuð úr eðli-
legum framförum hans. Þetta
Framhald á 14. síðn.
Þrjár
skáldsögur
eftir frægustu
kvenrithöfunda
Norðurlanda
Mærin gengur
á vaíninu
eftir Eevu Joenpelte
— Stórbrotin finnsk skáldk
r
saga.
Herra-
garðslíf
eftir norsku skáldkonuna 1
Anitru \
— Framhald skáldsögunnas*
„Silkislæðan", sem seldis^.'
upp í fyrra.
Fríða
á Súmötru
eftir Helenu Hörlyek
— Hrífandi skáldsaga, senct
gerist á Austur-Iridlands-*
eyjum.
★
Tvær nýjar
Jack London-bækur:
Sonur
sólarinnar
og I
Snædrottningin
— Hreinræktaðar Jact;
London sögur, sem gerast $
fjarlægu, en heillandi, um»
hverfi.
★
Barna- og
unglingabækur
eftir íslenzka höfunda:
Katla þrettán ára
eftir Ragnheiði Jónsdóttnir>
Skemmtilegir
skóladagar
eftir Kára Tryggvason
A£ hverju er
himinninn blár?
eftir Sigrúnu Guðjónsdóttusv
Bókaverzlun ísafoldar
ALÞ-ÝÐDKLAðffi. tr 18. dés. 18621 ^ íj: