Alþýðublaðið - 18.12.1962, Síða 10
jslandsmótið í handknattleik hafið:
Víkingur sigraði Fram
26:27 / ágætum leik
1ÍSLANDSMÓTIÐ í handknatt-
Ipik 1963, I. deild karla hófst 1
íþróttahúsinu að Hálogalandi s. I.
sunnudag. Ásbjörn Sigurbjörnsson,
fþrmaður HSÍ setti mótið með
ræðu, en að því búnu hófst keppn-
in.
t
★ KR—ÍR 35:29 (18:13).
í Þessi leikur, sem fyrirfram var
álitið að gæti orðið spennandi,
varð það aldrei, sigur KR virtist
liggja í loftinu mestallan tímann.
Áð vísu skoraði Gunnlaugm: fyrsta
enark leiksins með ágætu skoti,
eji það var í eina skiptið, sem ÍR
v/ir yfir í leiknum. Karl jafnar
fijótlega fyrir KR og bætir tveim
öðrum við. Ólafur Adolfsson bæt-
irrfjórða markinu við fyrir KR, en
síðan tekst ÍR að jafna, Hermann
skorar eitt mark og Matthías bæt-
Ir tveim við, það síðara var mjög
fallega gert. Eftir þetta nær KR
öruggri forystu, sum mörkin voru
garð á næsta auðveldan hátt, var
ein4 og ÍR-ingar væru í hálfgerðri
leiðslu, í einstaka tilfellum gáfu
þeir KR-ingum boltann og auðvit-
að þökkuðu þeir gott boð og sendu
hann í netið. Það var eins og ÍR-
ingar væru komnir í jólaskap.
★ JAFN SÍÐARI HÁLF-
LEIKUR.
Síðari hálfleikur var jafn, en
sigur KR virtist innsiglaður, mun-
urinn varð aldrei meiri en þrjú
mörk og mest sex. Varnir beggja
liða voru lélegar og ÍR-vörnin þó
mun slappari, stundum galopin.
64 mörk í klukkutíma leik segir
líka sína sögu. Eins og fyrr segir
voru lokatölurnar 35:29 fyrir KR,
| verðskuldaður sigur.
Hægt væri að skrifa langt mái
um dæmalausan dóm Magnúsar
Péturssonar í Ieik þessum, en
Magnús var vægast sagt úti á
þekju mestallan leikinn. Fyrst í
stað tóku bæði leikmenn og áhorf-
endur dóm hans með undrun og
sumir hafa sennilega orðið vondir.
en er líða tók á leikinn var þetta
eins og hvert annað grín. Þetta
er dálítið leiðinlegt, því að Magnús
er yfirleitt góður dómari, einn af
okkar betri. Eitt má Magnús til
með að athuga, það er ófært að
hrinda leikmönnum út af, þegar
þeim er vikið brott af leikvelli
vegna háskaleiks. Ekki fleiri orð
um dóminn, en vonandi verður
Magnús betri næst.
Eins og fyrr segir var leikur
þessi lélegur, bæði liðin sýndu
margt lélegt, en fátt gott og verða
bæði að herða sig, ef þau ætla að
halda sæti í I. deild áfram.
★ FH—ÞRÓTTUR 34:13 (12:6>.
Þetta var ójafn leikur, það var
aðeins fyrstu mínúturnar, sem
Þróttur veitti hinum snjöllu Hafn-
firðingum eitthvert viðnám. Ragn-
ar skoraði .fyrsta markið, en Þórð-
ur jafnar fyrir Þrótt, aftur skorar
Ragnar en nú jafnar Axel. FH nær
enn forystu, er Páll Eiríksson
skorar með góðu skoti. Þróttur
nær síðan góðu spili, sem endar á
ágætu skoti Hauks aftur er jafnt
3:3.
í síðari hálfleik fór að halla á
ógæfuhlið fyrir Þrótti og var um
að ræða algjöran einstefnuakstur
í mark Þróttar, leiknum lauk með
sigri FH 34 mörk gegn 13.
FH lék ágætlega og allt virðist
benda til þess að Hafnfirðingar
hafi fullan hug á að flytja íslands-
bikarinn aftur í Fjörðinn. Allir í
liðinu áttu góðan leik, en drýgstur
var Einar eins og oft áður. Pétur
Antonsson meiddi sig í pressu-
leiknum og gat ekki leikið með að
þessu sinni.
Það vantar tilfinnanlega meiri
kraft í Þróttarliðið, þeir leika lag-
lega, en skot þeirra eru máttlaus
og vöm oftast auðvarin fyrir
Hjalta. Hannes Þ. Sigurðsson
dæmdi þennan leik og tókst það
allvel.
★ VÍKINGUR—FRAM 26:21
(13:7).
Úrslitin komu á óvart, þrátt fyr
ir frammistöðu Víkings í nýaf-
stöðnu Reykjavíkurmóti, en þá
vann Fram Víking með 14—13.
Leikur þessi var fjörugur og spenn-
andi frá byrjun, þó að Víkingur
hefði yfirhöndina allan tímann'.
Pétur Bjarnason skorar fyrsta
markið, en Guðjón jafnar fyrir
Fram, Pétur skorar enn og eftir
það hafði Víkingur forystu allan
leikinn. Víkingar náðu mjög góð-
]um tökum á leiknum, skutu sjald-
an í vonlaust færi, en Framliðið
var eitthvað hikandi og óákveðið
og Víkingi tókst alveg að halda
hinu fræga línuspili liðsins í skefj
mn. Aftur á móti skoruðu Víkingar
nokkur ágæt mörk af línu og sjald
an hefur vörn Fram verið eins op-
in og stöð og í fyrri hálfleiknum.
Síðari hálfleikur var geysispenn
andi frá byrjun. Víkingur eykur
forystu sína í upphafi hálfleiks-
ins og kemst í 17:10, en þá fer
Fram að vinna á og tvisvar mun-
aði fjórum mörkum, 19:15 og 20:16,
en Víkingar voru harðir og ákveðn-
ir og léku taktiskt rétt, tefldu
ekki í neina tvísýnu og skutu ekki
nema liðsmaður væri í færi. Um
tíma hljóp töluverð harka í leik-
inn, en dómaranum, Gunnlaugi
Hjálmarssyni tókst að halda leik-
mönnum í skefjum og slapp vel
frá þessum erfiða leik.
Sigur Víkings, 26:21 var sann-
gjarn og verðskuldaður, þeir voru
betra liðið, á því var enginn vafi.
Aftur á móti verður að segja það,
að langt er síðan Fram hefur átt
svona lélegan leik. í liði Víkings
var Pétur Bjarnason driffjöðrin
og hann var einnig markasæll. Ann
ar leikmaður, sem vakti athygli í
Víkingsliðinu, var nýliðinn Þór-
arinn, sem átti athyglisverðan leik
og er hörkuskytta. Annars var lið
Víkings óvenjuvel samstillt og
skemmtilegt.
íslandsmeistararnir, Fram, urðu
nú að bíta í það súra epli að hef ja
íslandsmótið með tapleik, en ein-
hvers staðar stendur, fall er far-
Framh. á 14. siðn
ip 18. des. 1962, - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Jón Þ. Ölafsson
JÓN Þ. Ólafsson, ÍR setti
met á innanfélagsmóti í ÍR-
húsinu. Hann stökk 3,38 m. í
langstökki án atrennu. sem
setur nýtt met
er 1 sm. betra en gamla met-
ið, sem hann átti sjá’fur og
setti fyrir nokkrum dóguni.
Jón hefur nú sett eða jafnað
10 íslandsmet á þessu ári.
Ritstjóri: ÖRN EIÐSSON
Portúgal vann
Búlgaríu 3:1
LISSABON, 16. dcsemfcer,
(NTB-Reuter).
PORTÚGAL sigraði Itúlgaríu
3:1 í síðari leik landanna í Evr-
ópubikarkeppni landsliða í knatt-
spyrnu. Fyrri leiknum lauk með
sigri Búlgara, 3:1, svo að löndin
verða að leika aukaleik um það,
hvort heldur áfrm keppní.
NYTT NYTT NYTT
catalin
DRENGJASKYRT U R
Ef þér vitio um hálsmál og ermalengd drengsins
er valið auðvelt, því að málin standa á umbúðunum
C A T A L I N A J U N I O R drengjaskyrtan er
jólaskyrtan í ár
4 daga Skíða
skóli I.R.
Skíðadeild ÍR hefur ákveð
ið að efna til skíðanámskeiðs
í hinum stórglæsilega skíða-
skála sinum í Hamragili
milli jóla og nýárs. Dvalið
verður i skiðaskálanum dag-
ana 27.-30. des. Tveir góð-
kunnir skíðakennarar munu
sjá um kennsluna alla dag-
ana og auk þess verða kvöld-
vökur og fleira til skemmt-
unar,
Tekin verður í notkun í
fyrsta sinn við skálann skíða
lyfta, einnig verða brekkurn-
ar flóðlýstar eftir að skyggja
tekur. Þátttakendum verður
séð fyrir fæði og gistingu ef
þeir óska. Ferðir verða
kvölds og morgna og munu
Kjartan & Ingimar sjá um
þær.
Þátttökuskírteini verða
seld í Verzlun L. H. Múller
frá og með miðvikudeginum
19. desember.
Guðmundur
hefur enn sett
10 met
Á SUNDMÓTI Reykiavík-
urfélaganna í Sundhöllinni
voru sett þrjú íslandsmet.
Tvö þeirra setti Guðmundur
Gíslason, ÍR og hefur hann
nú sett 10. met sitt á þessu
ári. Er þetta því fimmts ár-
ið í röðj sem Guðmundur
hlýtur metmerki ÍSÍ úr gulli
og er það einstakt afrek. Guð
mundur setti met í 100 m.
baksundi, synti á 1:06,1 og
50 m. baksund á 30,6 mín.
Fyrri metin, sem hann átti
ÍÁsjálfur voru 1:07,6 og 30:9.
‘jlj Þriðja metið setti Hörður
B. FiUnsson, ÍR í 50 m.
c bringusundi, sýnti á 37,4 sek.
Gamla met Harðar var 32,9
sek. Hörður hefur seít 9 ís-
landsmet á árinu.