Alþýðublaðið - 03.01.1963, Side 4

Alþýðublaðið - 03.01.1963, Side 4
Og ðllt í einu var hann orðinn heimsfrægur! MARGOT Fonteyn, brezka dansmærin heimsfræga, dans- aði í Washington fyrir hátíðarnar. Mótdansari hennar forfali- aðist á síðasta augnabliki að heita, og varð það úr, að sent var eftir ungverskum dansara til Búdapest, ungum og glæsi- legum manni að nafni Viktor Rona. Er skemmst frá að segja, að Ungverjinn vann mikinn danssigur, og er nafn hans nú á allra vörum í ballettheiminum. — Myndin er tekin við það tækifæri, þegar bandaríska forsetafrúin heilsar upp á Fon- í blaði Varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli, The White Falcon, muMwuwMM Fyrir fimm árum sendi ættingi manns að nafni Björn Holmstrand honum jólapakka en Holmstrand var þá og er enn farmaður á skipi sem er gert út frá Osló. Nú rétt íyr- ir jólin fékk sendandinn aft- ur pakkann í hendur, og hafði hann þá verið fimm ár á flæk ingi, án þess að komast nokk urn tíma í hendur réttum aðila. Þaö þarf ekki að spyr.ja að því að pakkinn liafði elt Holmjstrand liöfn úr höfn umhverfis allan hnöttinn — og innihaldið var óskaddað. TIL STEFANS JÓNSSONAR er þess getið, að íslenzkur sjómað- ur, sem síasáðist um miðjan des ember, eigi líf sitt að launa blóðs gjöfum er hann fékk frá þ?em Bandaríkjamönnum og einum ís- lendingi. Fréttin fer hér á eftic 'auslega þýdd: íslenzkur fiskimaðiír á líf sitfi að launa þrem bandarískum sjó- liðum og íslenzkúm tollverði. Laug ardaginn 15. desember slasaðist Jón Ólafsson, 32 ára gamall sjó- maður frá Reykjavík er skip hans var að veiðum undan Snæfellsnesi Slysið vildi til ineð þeim híetti, að þung blökk slóst í höfuð Jóns. Skipið lagði þegar af stað með Jón til Keflavíkur. Um það bil fimm klukkustund- um eftir að slysið vildi til var kom ið með Jón á sjúkrahúsið í Kefla- vík. Hafði hann þá fengið lost vegna blóðmissis. Ennfremur var hann höfuðkúpubrotinn og lamað- ur hægra megin. Það eina sem bjargað gat lífi hans var að gera þegar í stað á honum skurðaðgerð. Á sjúkrahúsinu var ekki til mik ið blóð, svo læknirinn þar Jón Jó- hannesson snéri sér til yfirvalda á Keflavíkurflugvelli um aðstoð'. Spítalinn á Keflavíkurflugvelll setti tilkynningu í útvarp hersins um að blóðgjafa vantaði. Nokkrum mínútum síðar höfðu eftirtaldir menn gefið sig fram: Howard Riley, Marshall Tedford, Dale A. Telgenhoff og Egill Þor- steinsson. í lok fréttarinnar segir, að Jón Ólafsson muni nú úr allri hættu. Björguðu sjómann- inum með blóðgjöí ÞÚ ÞYKIST mikill maður, og Tnikill rithöfundur. En það eru einmitt ritstörf þín, sem ég vil ræða við þig. Þú sendir frá þér t>ók, sem þú kallar „Mínir menn.“ Kg efast um, að þeir menn, sem fiú þykist gera að mikilmennum *neð skrifum þínum, séu þér á nokkurn hátt þakklátir, því þú gerir þá ekki þannig úr garði, að «okkrum sé sómi að. Það er ein saga í áðurnefndri Uók, sem er það soralegasta, er •ég hefi heyrt lengi. Hún er að vnestu leyti staðlausir stafir, og ■fiað, sem hefur einhverja stoð, er jrangtúlkað og umsnúið. Mér -virðist það eina, sem þú hefur í liuga, vera að draga saklaust fólk niður í lítilsvirðingu. Fyrirsögnin á kaflanum er „Eöram er forneskjan" XIV. kafli, ®em hefst á blaðsíðu 185. Þar -dregur þú mál fram í dagsljósið, sem er viðkvæmt fjölskyldumál. 35kki fimmtíu ára gamalt, heldur -aðeins 16 ára. Þar gerir þú heið- wirðan mann, sem allir þekkja, -að -slíkum aumingja, að allir eru liræddir um hann, — en þann, jsem sekur er, ef um sekt er að ræða, að píslarvætti illsku og xanglætis. Þorkell sá, er um ræðir í sög- -unni, er ekki 90 ára gamall, — lieldur tæpra 69 ára að aldri. Hann átti dóttur, er varð fyrir fiví að verða þunguð á barns- .aldri, því að hún er ekki nema rösk lega þrítug nú, en ekki komin um cða yfir sjötugt eins og má ætla eftir sögunni. Ekki heldur trúlof- uð manninum eins og þú segir. Hvað við kemur draug þeim, sem uppvakinn var að því er seg- ir, þá er það rétt. En draugur sá er verkfæri í hendi lifandi manns — sem sagt — penni þinn, Stef- án Jónsson! Hvað við kemur hinum miklu og tíðu slysum, sem þú talar um, vil ég leiðrétta nokkuð. Fyrst skal ég taka sjóslysin. Þorkell hefur að vísu lent útbyrðis, en I ekki á þeim tíma né stað eða í jlíku veðri, sem þú lýsir. Er það ' gerðist, voru börn hans, þau er fædd voru, kornung, því það var einhvern tíma á árnnum 1920-’26, og stundaði Þorkell sjó í mörg ár eftir það, því hann var til sjós allt til 1930-40. Slysið bar þannig að, að hann var á bát sunnan úr Reykjavík eða Hafnarfirði. Gerð- ist það í vitlausu veðri suður við Reykjanes, að bára kom á skipið, en hann var að vinna á dekki. Báran gekk yfir skipið, hreif hann með sér og skolaði honum fyrir borð. Var talin mikil mildi, að hann náðist aftur. Hitt skiptið, sem þú talar um, hefur aldrei gerzt. Eins er með slysið, sem á að liafa gerzt á rjúpnaveiðum. Það hefur heldur ekki komið fyrir. Vegna þess, að maðurinn stundar ekki rjúpna- veiðar. En ef þú færir eins vel með sannleikann og hann fer með byssu í dag, þá myndir þú ekki hafa sent frá þér þessa bók. Hvað viðvíkur slysi því, er gerð- ist á bryggjunni, er ekki líkt nein um göldrum. Hefðir þú reynt að kynna þér málið, þá sæir þú það sjálfur, að svo er. Slysið bar þannig að, að maðurinn var að vinna niður á bryggju ásamt fleirum í hálfgerðu myrkri, því slysið varð seinni hluta nóvember mánaðar, síðdegis. Veður þann dag var krepjuhríð og því hálka mikil, en lítil sem engin ljós á bryggjunni. Mönnnnum var sagt að stúga síldartunnum eins utar- lega og hægt var. Það hagar bannig til á bryggjunni, að röra- lögn frá olíutönkum olíufélag- anna liggur eftir öðrum kantin- um og varð Þorkell að standa á rörunum. Við að stúga tunnum eru notaðir þar til gerðir krókar til að færa tunnurnar til með og krækt er í laggimar á tunnunum. Krókur sá, er Þorkell notaði, slapp af lögginni. Vegna þess hve utarlega maðurinn stóð og við það, að krókurinn losnaði, kom kast á manninn með þeim afleið- ingum, að hann rann til á rörun- um og datt fram af. Hlaut hann af þessu slysi brotið viðbein, brákun á hendi og skurð á höfði. Önnur meiðsli, er þú getur um, eru hugarfóstur þitt og þinna manna. Þegar þú ferð að laga til söguna, er þetta orðið yfirnáttúr- legt og eina skýringin, sem þú finnur, er galdur (draugagangur). Hvað viðkemur slysaskotinu í slátuihúsinu, virðist þú, Stefán Jónsson, eini maðurinn, sem veizt hvernig það bar að. Draugur þinn tekur byssuna ofan af hillu, lætur hana í hendi Þorkels og lætur hann missa hana í gólfið. I Eg vildi ráðleggja lögreglunni að fá þig með þína miklu hæfileika í sína þjónustu til að upplýsa þau mál, er taka mikinn tíma og mikla fyrirhöfn, fyrst þú getur sagt livemig slys ber að höndum vest- ur í Grundarfirði, en þú sjálfur einhvers staðar langt í burtu. En þeir, sem þar voru að vinna, vita ekki hvernig byssan hrökk fram úr hillunni. Það eina, sem menn hafa látið sér detta í hug, að ein- hver hafi óvart rekið sig í byss- una. En sem sagt, þetta veit eng- j inn fyrir víst nema þá Stefán Jónsson. Hvað viðkemur öðrum slysum, sem þú í bók þinni lætur skína í, get óg sagt þér með sanni, að Þor- kell hefur aldrei legið veikur að undanteknum þessum tveim slys- um, nema einu sinni, er hann var skorinn upp við botnlangabólgu. Þú gleymdir að geta þess, eða hefur draugurinn ekki komizt að botnlanganum? Alveg rétt, draug- ar þola ekki suma lykt, sennilega sama með botnlangann, eftir því sem gömlu þjóðsögurnar segja. Eftir sögu þinni er merkilegt, hvað maðurinn hefur mörg líf, úr því hann hefur orðið fyrir bana- slysi árlega eða því sem næst. Það er meiri forneskjan að drep- ast fimmtíu sinnum en lifa þó við góða lieilsu. Samkvæmt því, sem þjóðsögumar segja, tóku góðir Framh. á 12. síðu Hann kemst ekki á prent Endurmmningunum, sem Adolf Eichmann skrifaði í „dauðaklefa“ sínum. verður haldið leyndum, að því er haft er eftir góðuni hcimild um í Jerúsalcm. Það mun vera forsætisráð- herrann sjálfur, Davið Ben- Gurion, sem hefur mælt svo fyrir um. . 4 3. janúar 1963 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.