Alþýðublaðið - 13.01.1963, Page 3

Alþýðublaðið - 13.01.1963, Page 3
TIL skamms tíma hefur þótt myndarlegt að gefa út hátíð- arrit á stórafmælum helztu stofnana þjóðarinnar. Nú er hlaupinn vöxtur í slíka út- gáfú eins og annað, og ekki dugði minna en heill bóka- flokkur á nýafstöðnu afmæli Máls og menningar. Varla eru allir jafnhrifnir af vali manna í þá a.kademíu íslenskra kommúnista, en þó verður að játa, að þar situr úrvalslið úr þeirri sveit. Sú bók, sein mesta athygli hlýtur að vekja í afmælis- flokknum, er ljóðabók Jó- hannesar úr Kötlum. Nýít .verk frá hans hendi vekur jafnan forvitni, en nú hefur hann trakterað þjóöina á bók, sem hefði mátt kalla „Játn- íngar félaga Jóhannesar”, þótt hann af lítillæti kalli liana að 'eins „Óljóð.” Hér er á fer.ð hvorki meira né minna en allsherjar uppgjör - skáldsins við mannkynið út af þess pólitísku óáran — bæði vestan tjalds og austan. Fyrsti flokkur bókarinnar nefnist Dægurlagatextar og í fyrsta kvæði hittir skáldið sjálfan drottin á förnum vegi og fagnar lionum vel. Skapar- inn er á hraðri ferð, en fé- lagi Jóhannes segir honmn þau tíðindi, að nú sénm „ . . . við íslcndingar hættir við byltinguna / við græddum svo mikið í síðasta stríði / held- urðu að þú gefir okkur nú ekki eitt enn / eða kannski þú sendir okkur nýjan frelsara”. Þegar drottinn er hlaupinn, fær lesandinn ítarlega lýsingu á ástandi mannhclma. Skáld- ið hefur góð sambönd og hef- ur komizt á snoðir um, að „þeir í helvíti segja að vor kristni heimur sé kleppur þessarar plánetu”. Það upplýs- ir, að á rólegu deild þessa allslierjarklepps sé margt stór menna, aðalsmenn, forsetar, kardinálar, biskupar, ráðherr- ar, herforingjar, kvikmynda- stjörnnr „og svo náttúrlega allir kratarnir”. Á órólegu deildinni eru hins vcgar ofdrykkjumenn og at- vinnuleysingjar, tukthúslimir og tötralýður „og svo náttúru- 'lega allir kommarnir”. Sjálf- ur segist félagi Jóhannes vera á órólegu deildinni, því hann langi til að umturna heimin- um, en hann þráir kristilegan bata og heldur, að hann yrði hæfur á rólegu deildina, ef hann fcngi stórriddarahross fálkaorðunnar lielzt með stjörnu og háttvirt úthlutunar- nefnd listamannalauna vildi tífalda ölmusu hans. Síðan magnast lýsingarnar ljóð eftir ljóð. Landið er selt í fjórða versi og i hinu fimmta kemur trúarjátning barnanna um atlantshafs- bandalagið, bandaríkjaher og efnahagsbamlalagið, glæsilega þrenningu, þegar miðað er við fólksfjölda. Annar flokkurinn eru Þjóð- vísur, þar sem djöfullinn glottir við tönn, þegar heilag- ur andi kann ekki að opna fallhlífina, andinn og steinn- inn heyja úrslitaglímu, sál- irnar ærast og rykkja í tjóðr- ið. Síðan koma Draumkvæði, þar sem tóan mun gagga / og hrafninn krunka / og íslandið sökkva £ fyrirlitaingu. Dúfun- um er ráðlagt að flýja. Það er eyðimörk í vestri og frum- skógur £ austri. Fram að þessu er skáldið vökumaður að slá trumbur, eins og lesandinn liefur heyrt það gera áður. En það sleppur ekki sjálft kvalalaust gegnum tilveruna, þótt það hafi unað sér allsæmilega á órólegu deildinni. Á blaðsiðu 93 hefj- ast Hrakningarimur félaga Jó- hannesar og segir hann sinar farir ekki sléttar. Allt í einu er hin göfuga hugsjón farin að gráta í brjósti hans af því að veru- leikinn kemur með rýting milli tannanna og vill samein- ast Iiugsjóninni nakinn og blóðugur. Skáldið spyr hina göfugu hugsjón: „getur ekki hugsast að ég snúi valdinu gegn þér sjálfri / um leið og verule;kinn afhendir mér rýt- ing sinn”. Það minnir á leiö- togana miklu, sem „ . . . eru nú dökkir skuggar yfir fyrirheitna laridinu / vofur í augum þeirra sem eru á leiöinni þangað”. Það spyr, hvort hugsjónin muni sífellt visna upp í brjósti liins sterka. Svo kemur að aðalefninu. I þriðja þætti þessarar hrakn- ingarímu gerir félagi Jóhann- es upp sakir við Kínverja fyrir meðferð þeirra á hug- sjóninni. Hann segir við sína kæru ló og lilju: „ . . . ég veit ekki ennþá hvað kom yfir mig í stóru borginni þar sem skeljar voru einu sinni mynt þegar ég einn átti að búa í fimm sölum í sjálfu öreigaríkinu nema ég hef aldrei á ævinni orðið eins hissa ég hélt ég væri allt £ einu orðinn keisari þarna í kína og bað marx almáttugan að hjálpa mér og síðan æddi ég fram og aftur um dúnmjúk gólfin til að leita að henni öskubusku minni en eins og við mátti búast hafði hún engan tíma til að dansa við mig þann daginn því hún var strax farin að glíma við bláa fljótið sitt og loksins hneig ég niður í silkimjúkt öndvegið og fékk mér duglega í nefið ég veit það ekki” Jóhannes segist ekki liafa vitað, af liverju hann hneigði sig ekki dýpra um leið og hann tók í þykkja. mjúka búmanns- Iiönd skáldsins (Mao Tse-tung), en segist kannski hafa vcrið feiminn eða „ . . . kannski hefur mig órað fyrir bölvun persónudýrkunarinnar . . .” Hann segist stundum vera hárviss í trúnni — en stund- um flögrandi eins og fiðr- ildið. Þegar hann spurði, "livort nokkuð strið sé réttlátt, þá var hvæst í eyrað á honum: „heigull þú ert smitaður af borgaralegri mannúð”. Jóhannes segist ekki vita, livers vegna hann, sem hcfur verið talinn „ . . . blóðrauður bolsi hér norður á islandi skuli vera kallaður huglaus smá- borgari austur í friðsælum kín verskum skógi . . .” Hann seg- ist vera villuráfandi smali uppi í ódáðahrauni með skjálf- andi barnsfir.gur eins og hag- mæltur sveitapiltur. Stefið í þessu ljóði kemur aftur og aftur: ég veit það ekki, ég veit það ekki. Og félagi Jóhannes segir meira: „ég veit ekki einu sinni hvort ég get haldið jafnvægi á þessari rauðu silkilínu ykk- ar því spuninn þinn er svo fínn og fóturinn minn svo grófur . . .” Og ennfremur: „ég veit Jóhannes spyrs Af hverju for- lierfisf Stalín? ekki livort maður má segja það en ég er logandi hræddnr um að ég gangi með duliíla endurskoðun í heilanum og dulitla kreddu í hjartanu . . .” Hann veit ekki, hann veit ekki. Undir lokin spyr liann: „hvers vegna bregöast guðfræð- ingarnir svona / hvers vcgna gafst séra sigurður upp / hvers vegna forhertist félagi stalín / hvað segir mogginn hvað segir pravda / mogginn það þýðir morgunblaðið / eigum vér þá að segja upp morgunblaðinu / pravda það þýðir sannleikur- inn / eigum vér þá að hætta að leita sannleikans”. • í Iokin segir skáldið: „þa3 er svo skrýtin staðreynd / að vera til og þó ekki . . .” Bókinni er lokið. Aftan á er mynd af brosandi höfunð- inum, sem orti lofkvæðið mikla um Stalin. Nú veit hann ekki. Hann er tekinn að efast. Fyrst og fremst um Kína og Stalin. Ef til vill um enn meira. Við vitum það ekki. ýSfát. l' ■ * * 5 „Kannski hefur mig órað fyrir bölvun persónudýrkunarinnar41. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 13. jan. 1963 3

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.