Alþýðublaðið - 13.01.1963, Qupperneq 9
STÚLKAN hérna fyrir ofan heitir Catarine Robertson og
er frá Aberdeen í Skotlandi. Árið 1961 kom hún hingað ásamt
fleiri skozkum ungmennum, sem störfuðu hér á vegum vinnu
búða þjóðkirkjunnar. Eftir nokkra mánaða dvöl fór hún til
Skotlands aftur, en í sumar birtist hún á ný ásamt stöllu sinni
á íslenzkri grund. ísland hafði þá svona mikið aðdráttarafl.
Þessar stúlkur hafa með dvöl sinni hér verið landi sínu til
sóma, þær hafa hvarvetna komið vel fram, og ávallt sýnt stuðn
ing þeirri stofnun, sem fyrst leiddi þær til íslands: Þjóðkirkj-
unni.
FJAÐRAHÚS
í TURKMENIAS, höfuðborginni
í Asjkhabad, hefur verið byggt
þriggja hæða hús, sem á að vera
varið gegn jarðskjálfta. í undir-
stöðu hússins eru massívar fjaðrir.
Venjulega varir jarðskjálfta-
kippur aðeins í 10-20 sekúndur, en
það er nægilegur tími til að jafna
traustleg hús þar í landi við jörðu.
Hin nýja byggingaraðferð á að
leiða til þess, að jarðskjálfti á
engin áhrif að hafa á hús, sem
byggð eru eftir þessu fyrirkomu-
lagi, jafnvel þótt jarðskjálftinn
standi yfir í allt að 36 klukku-
stundir, en slíkt er talið nánast
óhugsandi.
DREYMDI FYRIR
2V2 MILLJÓN
AÐFARANÓTT aðfangadags
dreymdi brezkan kaupsýslumann,
að hann hefði unnið í getrauna-
keppni. Þegar hann vaknaði, var
hann algjörlega öruggur í þeirri
sök, að hann hlyti vinning. Ekki
þurfti hann lengi að bíða, því að
um daginn kom í ljós, að hann
hafði unnið. Vinningurinn reynd-
ist 22.600 sterlingspund — eða
tæpar 2t£ milljón ísl. króna. —
Meginhluta þessa fjár hefur kaup-
sýslumaðurinn gefið til sjúkra-
húss í London, sem tekur á móti
j sjúklingum með ólæknandi sjúk-
! dóma.
j Karachi: Lögreglan hefur nýlega
sótt 50 manns til saka fyrir að
hafa veðjað allt að 400 pundum
um hvor tveggja hana myndi
vinna slag, sem þeir voru í fyrir
i utan hótel eitt þar í borg.
SIGGA VIGQA OG TILVERAN
„Skítt meS hárlitinn. Hvaða botnfarva hefur hún?“
Útsala
Á morgun, mánudaginn 14. janúar
hefst hin árlega
vetrarútsala á
kvenkápum og drögtum.
Mikil verðhækkun.
Bemharð Laxdal
Kjörgarði.
Golden glide
fyrir flesta híla.
Verð frá kr. 332.—
Höfðatún 2
Sími 24485.
Orðsending fil
viðskiptavinú Póld hf.
Frá 1. janúar er öll hleðsla og viðgerðir raf*
geyma afgreidd ÞVERHOLTSMEGIN *
(Þverholt 15 A) en EKKI Einholtsmegin
eins og áður.
*þinvholt /S
Afgreiðsla flutningabifreiða utan af landi
er hinsvegar áfram í Einholti 6.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 13. jan. 1S63 <$