Alþýðublaðið - 18.01.1963, Blaðsíða 5
Mannekla tefur í
baráttunni gegn
krabbameininu
FLEIRI sérmenntaðir læknar og
starfsmcnn í rannsóknarstofum
mundu geta hindrað dauða margra
þcirra, sem nú deyja af völdum
krabbamcins. Sú var niðurstaða
ráðstefnu sérfræðinga, sem Evrópu
deild Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unarinnar (WHO) kvaddi saman ný
lega í Kaupmahnahöfn.
Ráðstefnan fjallaði um notkun
„cytologi" í baráttunni við krabba
WASHINGTON: Forseti italíu
hefur boðið Kennedy forseta í op-
inbera heimsókn til ítalíu. Það er
nú gert ráð fyrir, að Kennedv
þyggi þetta boð og noti tækifærið
Um leið til að heimsækja London
og París og e.t.v. fleiri höfuðborgir
í Evrópu.
bein. „Cytologi", sem byggist á því
að rannsaka sellur úr hinum ýmsu
vefum líkamans, er beitt til að
finna krabbamein, áður en það nær
að \breiðast út. Aðferðinni er beitt
i flestum löndum Evrópu, en að-
eins í mjög takmörkuðum mæii
enn sem komið er.
Á árunum 1958—1959 létust
20.000 evrópskar konur af krabba-
meini í leghálsi. Helmingur þess-
ara kvenna fékk sjúkdóminn áður
en þær náðu 55 ára aldri. Ráð-
stefnan komst að þeirri niðurstöðu,
að stór hluti þessara kvenna væri
cnn á lífi, hefði sjúkdómurinn ver-
ið uppgötvaður í tæka tíð og kon-
urnar teknar til aðgerðar.
,,Cytologi“ er nú einnig beitt til
að finna krabbamein í öðrum líf-
færum, t. d. blöðru, lungum, bein-
um, maga, munnvatnskyrtlum og
skjaldkyrtli. '
Ástæðan til þess, að aðferðinni
er ekki beitt í ríkari mæli í Evrópu,
er sú, að tilfinnanlegur skortur er
á læknum með nauðsynlega sé,r-
menntun og á starfsfólki í rann-
sóknarstofum. Ráðstefnan beindi
þeirri áskorun til heilbrigðisyfir-
valda í Evrópu, að líta á ,,cytologi“
sem viðurkennda aðferð til að finna
krabbamein og undanfarandi sjúk-
dómseinkenni þess og jafnframt að
taka upp þessa aðferð í hinni al-
mennu baráttu gegn krabbameini.
Var lögð rík áherzla á hlutverk
WHO að því er snertir sérmenntun
lækna og annars starfsliðs og heit-
ið á stofnunina að leitast við að
vinna bug á manneklunni. Forseti
ráðstefnunnar var Hans Kottmeier
dósent við Karolinska Institutet í
Stokkhólmi, og meðal annarra þátt
takenda var Jens Nielsen prófessor
við radíum-stöð Kaupmannahafnar.
í sunnudagsmatinn:
HAFNARFJÖRÐUR: \
Verzlunin SIGRÖN
Nýjar vörur teknar fram
Kápur, nftirmiðdagskjólar,
kvöldkjólar og pils.
Dömupeysur í miklu úrvali.
konar undirfatnaður kvenna.
Slæður, hanzkar og veski.
tíma og fé og
verzlið í Hafnarfirði.
AHsj
Strandgötu 31. Sími 50038.
SIGGA VIGGA OG TSLVERAN
„Auðvitað gætum við reynt að kaskótryggja hana“
Nýsviðin dilkasvib
BÚRFELL
Sími 19750.
Sjómannafélag Reykjavíkur ‘
Aðalfundur
Sjómannafélags Reykjaivíkur verður haldinrí
sunnudaginn 20. jan. 1963 í Iðnó (niöri) og;
hefst kl. 13,30 (1,30 e. h.).
Fundarefni:
1. Félagsmál *
2. Venjuleg aðalfundarstörf
3. Lagabreytingar.
4. Önnur mál.
t
Fundurinn er aðeins fyrir félagsmenn er sýn$
félagsskíreini við dyrnar.
Reykjavík, 18. jan. 1963
Stjórnhi. |
......................... - -----■—
Sendisveinn óskast nú þegar
t
Skipaútgerð ríkisíns
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 18. janúar 1963