Alþýðublaðið - 01.02.1963, Síða 8

Alþýðublaðið - 01.02.1963, Síða 8
SIGGA VIGGA 0G TILVERAN efnum þessa aðalfundar að fjalla um þau vandamál, sem nú steðja að útgerðinni . . . “ Hafrannsóknarskip frá banda- Þrjátíu og fjórar útvarpsstöð«ar ríska flotanum fann á sl. ári geysi í Chile sendu út 12 kennslustundir mikinn neðansjávarfjallgarð í á viku fyrir meira en 1000 skóla í kyrrahafi norðanverðu. Fuindustlandinu. 34 tindar, sem eru allt frá 1000 ^ metrar upp í 2000 metra hæð. KNUT Wang, ritstjóri Dagblaðs- j ins í Færeyjum var hér á ferð fyr-1 ir skömmu. Alþýðublaðið átti tal við hann og spurði hann frétta af frændum okkar og nágrönnum, Færeyingum. Knut Wang er lögþingmaður auk þess, sem hann er ritstjóri og 'enn má það telja, að hann er mik- ill áhugamaður um leiklist og hefur leikið heima í Þórshöfn í ýmsum leikritum, m. a. í leikrit- inu Mýs og menn eftir Steinbeck, sem Erna Sigurleifsdóttir sétti á svið í Þórshöfn. Knut Wang sagði m. a.: — í Færeyjum eru sex flokkar, sem eiga fulltrúa á lögþinginu. Jafnaðarmenn hafa 8 fulltrúa, Fólkaflokkurinn 6, Þjóðveldisflokk urinn 6, Sambandsflokkurinn 6, Sjálfstæðisflokkurinn (gamli) 2 og Framburðsflokkurinn 1. Fólkaflokkurinn á einn fulltrúa í landsstjórninni, — það er lög- maðurinn Hákon Djuurhus, Þjóð- veldisflokkurinn á tvo fulltrúa, Sjálfstæðisflokkurinn einn full- trúa, en stjórnin nýtur stuðnings Framburðsflokksins, þótt flokkur- inn eigi þar engan fulltrúa. — Allir þeir flokkar sem nú sitja í landsstjórninni eru „þjóðemis- flokkar”. Þeir vilja, að Færeying- ar taki smám saman í sínar hend- ur stjórn allra sinna mála, en tok4takmarkið hlýtur að vera al- gjört sjálfstæði. En Ijóst er, að því íverður ekki náð é einum degi -| Málum er nú þannig háttað, að ÍFæreyingar hafa heimastjórn og |vo fulltrúa á þingi Dana. Mál- iim É'æreyja er skipt niður í þrjár aðaldeildir, sem eru sérmál, félags mál og rikismál. Sam- kvæmt lögum eiga Færeyingar að ráða sjálfir í sérmálum, Danir og Færeyingar ráða sameiginléga £ Ifélagsmálum, en ríkismálin eru í höndum Dana. En stefnan er sú, að Færeyingar fái fleiri og fleiri Knut Wong (t. v.) og vinur sans Sámal Davidsen (t. h.). Sámal er 61 frá því hann var 16 ára. Hann er nú stýrimaður á dönsku skipi, — e ferð til íslands. . mál sem sérmál. Til dæmis má nefna, að skólamál eru enn félags- mál, en Færeyingar vilja taka þau í sínar hendur. Landhelgismál Færeyja eru ríkismál. Danir sömdu fyrir nokkr um árum við Breta þannig, að Bret um leyfðist að fiska allt inn að sex mílum undir vissum kringum- stæðum, en landhelgi Færeyja er nú 12 mílur, — frá strönd. Þessi samningur rennur út 27. apríl og er þá búizt við, að Bretar vilji end urnýja samninginn, — en Fær- eyingar vilja að landhelgin verði færð út í 12 mílur frá annesjum, (þ.e. bein lína), — og ennfremur að Bretar lúti sömu lögum og aðr- ar þjóðir varðandi fiskveiðar við Færeyjar. — Segja má, að Danir hafi lengi vanrækt Færeyjar, — en síðustu árin hefur þetta mikið breytzt og miklar framfarir hafa orðið. Mikið hefur bætzt við skipakost Færey- inga síðustu árin og það er nóg vinna í þorpum og bæjum. Þar af leiðir að fólkið þyrpist úr byggðunum inn til bæjanna og svo úr bæjunum til útlandsins, — einkum til Danmerkur Það er þó ekki sökum atvinnuskorts heima fyrir heldur er það ævintýraþrá- in, sem dregur. i i I j j Í I Á ÞESSU ári er ráðgert að gerðar verði tilraunir í Þýzkalandi með að beita „fiskamáli" við fiskveiðar. Frumrannsóknir á þessu sviði voru gerðar fyrir tveim árum, en nú hafa verið fengin til ný hjálpar- tæki, sem auðvelda þær. Vísindamaður, dr. Freytag að nafni, veitír þessum rannsóknum forstöðu í Þýzkalándi. Hann gerði fyrst tilraunir sínar úr gúmmíbát, til að koma í veg fyrir ónauðsyn- legan hávaða. Tilraunirnar vorr gerðar í Norðursjó, á Eystrasalti og jafnvel á Norður-Atlantshafi, þar sem þýzki úthafsflotinn stund- ar veiðar sínár. í dág getur dr. Freytag gert greinarmun á „grunn- hljómi" hinna ýmsu sjávarsvæða. Það eru bylgjurnar, brotsjóir og bergmál frá botngrjóti og þangi, sem myndar þessi hljóð. ! j Dr. Freytag hefur einnig getað fært sönnur á, að þau hljóð, sem fiskamir við strendur Þýzkalands gefa frá sér, eru mjög lík þeim hljóðum, sem fiskar undan strönd- um Bandaríkjanna gefa frá sér. Hljþðin skiptast í tvo megin flokka. í fyrsta lagi „urghljóð“, sem mynd- ast þegar tveim hörðum hlutum er núið saman. Þessi hljóð heyrast einkum frá skel- og krabbadýrum. í öðru lagi er svo „fiskblöðruhljóð“ fiskanna. Hægt er að greina mis- munandi „mállýzkur“ hjá fiskum undan ströndum mismunandi landa. Til þess að geta greint milli hinna ýmsu „talenda" hafa vís- ! indamenn orðið að fylgjast með hverjum þeirra fyrir sig. í kjall- ara hússins, sem er miðstöð þess- ara rannsókna í Hamborg, eru fiskabúr, sem klædd hafa verið hljóðeinangrandi gúmmottum. — Þannig geta vísindamennirnir raan sakað hljóð hverrar fiskitegundar fyrir sig. Stundum hefur tilviljun- in komið visindamönnunum til hjálpar við að greina hin mismun- andi hljóð. Er þeir voru að rann- sóknum í Eystrasaltinu heyrðu þeir eitt sinn „urghljóð", sem virtist koma frá kröbbum. Það var fyrir hreina tilviljun, að visindamenn- irnir komust að því að hljóðin komu frá 1 cm löngum fleytikröbb- um, sem þorskur hafði gleypt. Þrátt fyrir þessar rannsóknir hefur enn ekki verið unnt að á- kveða uppruna margra hljóða, sem heyrast úr hafinu. Ennfremur eru ekki til hljóðrituð hljóðin, sem spendýrin í hafinu við Evrópu- strendur gefa frá sér,' til dæmis sæljón, selir og hnísur. Það hefur ekki verið unnt að taka hljóð þess- ara dýra upp, þegar þau hafa verið í sínu eðlileg umhverfi, og þegar það var reynt í dýragörðunum við -sæspendýr, sem þar voru fædd og uppalin, reyndust þau hafa meiri áhuga á að leika sér að hljóðnem- unum er, að „tala“ í þá. Það er aðeins stutt síðan byrjað var að túlka þessi hljóð á líffræði legan máta, og rannsaka vísinda- lega þær upplýsingar, sem fyrir hendi voru. Til dæmis hafa fund- ist eðlilegar skýringar á blístur- hljóðinu, sem stundum heyrist frá síldartorfum. Sönnur voru færðar á, að hljóðið myndaðist, þegar síld artorfan breytti um stefnu, og það virtist verða þannig til að vatnið næst bol, síldarinnar titraði lítið eitt. Uppruni hljóðsins er því svip- 8 1. febrúar 1963 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.