Alþýðublaðið - 23.02.1963, Blaðsíða 9
stæðu til að ætla, að hóstarkirtill-
inn sé einmitt lykillinn að ýmsuni
í ágústmánuði 1962 skýrði Nó-
belsverðlaunahafinn, prófessor Al-
bert Szent-Gyorgyi, við læknarann
sóknarstofuna í Woods Hole, Mas-
sachusetts, svo frá, að sér og að-
stoðarmönnum sínum, hefði tek-
izt, eftir tíu ára samfelldar rann-
sóknir, að aðskilja eilítið magn að
tveimur veigamiklum efnum úr
hóstarkirtlum kálfa. Er annað
þessara efna hið svokallaða „pro-
mine“, sem framleiðir vöxt
manna, en hitt er kallað „retirne"
og stemmir stigu við vextinum.
Á ráðstefnu, sem haldin var í
læknaskólanum í Minneapolis í
Minnesotafylki í Bandaríkjunum
í nóvember sl. um starfsemi hóst-
arkirtilsins, sagði Próf. Szent-Gy-
orgyi fram nýja skýrslu um rann-
sóknir sínar. Skýrslurnar gáfu til
kynna að efni þau. sem hóstarkirt-
illinn hefur að geyma hafa mikil
vægu hlutverki að gegna í barátt-
unni gegn sjvíkdómum, auk þess J
leyndardómum í starfsemi líkam- scm þau vinna onnur storf fynr
ans. Rannsóknir þessar hafa þeg-
ar leitt í ljós, að hóstarkirtillinn
hefur að geyma svarið við ónæm-
inu, sem ver líkamann gegn herj-
un sýkla, og kemur sér því sér-
lega vel við tilfærslu líffæra úr
óskildum mönnum. Standa því
jafnvel vonir til, að hægt verði að
holdgræða heil líffæri, ef hóstar-
kirtill þess, sem líffærið er tek-
ið úr, er látið fylgja með, til þess
að framleiða samræmingu í ónæm-
iskerfinu. Vísindamenn telja á-
stæðu til að ætla, að hóstarkirtill-
inn sé lykillinn að ýmsum órann-
sakanlegum lömunarsjúkdómum,
þar á meðal liðagigt.
LO Á
líkamann.
Talsvert niagn af „retine“ efn-
inu þrífst i hóstarkirtlinum. Það
hefur vakið athygli vísindamanna,
að æxlavöxtur í músum hefur al-
gjörlega stöðvast eftir inntöku
þessa efnis. Þetta mikilvæga efni
er þó ekki einkaeign hóstarkirtils-
ins og er það að finna í öðrum
hlutum líkamans. Hér virðist vera
um nokkurs konar almennan vef ja
samsetning að ræða: eins konar
fúkalyf, sem líkaminn framleið-
ir til þess að tefja fyrir vexti ill-
kynjaðra æxla. Efnismagn það,
sem finnst í hóstarkirtlinum þykir
þó gefa sérlega góðar vonir sem
vopn gegn krabbameini í fram-
tíðinni.
Promine efnið hefur hvergi
fundist í líkamanum nema í hóst-
arkirtlinum, og bendir allt til þess
að það. sé einkaeign hans. Vöxtur
kirtilsins nær hámarki, þegar vöxt
ur líkamans er örastur, og styrkir
bað þá skoðun manna, að efni
þetta standi í einhverju sambandi
við æskuna, enda hefur það kom-
ið í ljós, þegar gömlum dýrum er
gefin inntaka, að þau haga sér þá
eins og „unglingar."
Auk hinna tveggja ofangreindi’a
(efna hefur annað mikilvægt efni
þessum vettvangi. Soralegum frá-
sögnum hefur aldrei verið ætlað
rúm í tímaritinu SATT. Þar hefur
þess hins .vegar verið vandlega
gætt, að frásagnirnar hefðu upp á
að bjóða sögulegt eða listrænt
gildi. Margar hinar íslenzku frá-
sagnir tímaritsins hafa verið frá-
bærar frá þjóðlegu og réttarsögu-
legu sjónarmiði. | verið einangrað frá hóstapkirtlin-
Fjölmargir hafa lesið tímaritið um. Engin þessara efna innihalda
sér til fróðleiks og skemmtunar á hvítur (prótein), og er sameindar-
liðnum árum. Frá því hafa margir b.vngd þeirra lág. Um þessar mund-
menntamenn þjóðarinnar greint ir standa yfir rannsóknir á öllum
opinberlega. efnum hóstarkirtilsins og sambandi
Haldi tímaritið SATT áfram á beirra við starfsemi líkamans. —
þeirri braut, sem það hefur mark-
að sér, orkar ekki tvímælis, að
hinn tryggi lesendahópur ritsins
stækkar stórlega á næstu áratug-
um. J.P.E.
Verða efnin krystölluð og efna-
greind, og bíða vísindamenn með
óþreyju eftir árangrinum. Virðist
; svo sem hóstarkirtillinn sé ekki
allur, þar sem hann er séður.
AÐ SÓPA
GÖTUR
ÞEGAR vorveður er lun vetur geta göturnar litið
eins hreinlega út og ura hásumar. Og þá ferðast götu
sópararnir með vagnana sína, og sópa öllu rusli,
smáu og stóru, upp af götunni. Það er mikill ys í kring
um þá en sjálfir eru þeir kyrrlátir eins og spekingar.
BANDARÍSKA ríkisstjórnin á
um þessar mundir í miklu ann-
ríki með ákvörðun þess, hvaða
meginstefnu hún eigi að taka með
tilliti til stjórnmálanna í Evrópu.
í þessum efnum koma til greina
tvö gagnstæð sjónarmið. Á öðru
leitinu eru menn, sem líta á
stjórnmálastefnu de Gaulles sem
hvatvíslega árás á stefnu Banda-
ríkjanna í utanríkismálum, og
vilja svara þessari árás með full-
kominni. einangrun á de Gaulle.
Ilinn flokkurinn — en til hans
teljast flestir reyndari stjórnar-
erindrekar og ráðgjafar Kennedys
forseta, er þeirrar skoðunar, að í
afstöðu Bandaríkjanna til þessa
stórmáls megi ekki rasa að neinu
um ráð fram. Það er álit þessai’a
manna, að Bandaríkin eigi að hafa
jvinsamlega sambúð við de Gaulle,
eins lengi og það reynist unnt,
en hins vegar hika ekki við að
taka afstöðu gegn honum, þegar
nauðsyn krefur. í andstöðu við
franska forsetann eigi og að gæta
þess vandlega, að taka tillit til
hagsmuna annarra þjóða í Evrópu.
Er þar einkum átt við, að afstaða
Bandaríkjanna megi ekki vera
með þeim hætti, að hætta skap-
ist á tortímingu Efnahagsbanda-
lagsins eða að Atlantshafsbanda-
lagið bíði alvarlegan hnekk.
Það er greinilegt, að í Washing-
ton er síðari flokkurinn í miklum
meirihluta. Þetta sjónarmið kom
fram í síðustu viku, þegar Kenn-
edy lýsti yfir, að það væru hræði-
legir atburðir, éf hin vinsamlega
samvinna Bandarikjanna og Evr-
Ópu aetti eftir að rofna. í sama
streng tók Robert Schaetzel, en
hann er sérfræðingur bandaríska
utanríkisráðuneytisins í málefnum
Atlantshafsríkjanna. Schaetzel
hélt nýlega ræðu í Kaliforníu, þar
sem hann lagði áherzlu á, að Ev-
rópulöndin yrðu að taka til yfir-
vegunar sameiningu Evrópu og
samstöðu Atlantshafsríkjanna. Sér
1 staklega er þetta mikilvægt vegna
1 þeirra erfiðleika, sem risið hafa á
! síðustu tímum. Og sé það skoðun
| manna, að fyrir hendi séu næg
' efnisrök til slíkrar þróunar mála,
þá á að láta hendur standa fram
úr ermum til framkvæmda í
þessu stórmáli. Sérfræðingurinn
leit svo á, að áreksturinn í Bi’Uss-
el á dögunum hefði enga úrslita-
þýðingu á þessu sviði. Hann hefði
Framh. á 13. síðu
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 23. febrúar 1963 $