Breiðablik - 01.11.1906, Síða 1

Breiðablik - 01.11.1906, Síða 1
BREIÐABLIK. Mánaöarrit til stuönings íslenzkri menning. FRIÐRIK J. BERGMANN RITSTJÓRI. I. Ár. NÓVEMBER 1906. Nr. 6. SJÁLFSTÆDI ÞJÓDAR VORRAR. Ý T T umtalsefni í stj órnmálabaráttu Islands er fram komið, er vissu- lega á það skilið, að því sé eftirtekt veitt. Það er merkara mál og meiri örlögum þrungið en nokurt mál annað, er verið hefir á dagskrá með þjóð vorri um langan aldur. Það er spurt : Hvert er mark- mið íslenzkrar stjórnmálabaráttu ? Hvað er það eiginlega, sem ís- lenzk þjóð ætlar sér ? Hvað þyk- ir henni að ? Og hvað ætlar hún sér að verða ? Þessu er nú á tvo vegu svarað. Aðrir segja : Vér höfum á því engan ímugust að standa í sam- bandi við Dani og hafa með þeim sameiginlegan konung, ef vér fá- um að ráða oss sjálfir í einu og öllu. Vér viljum ráð hafa yfir landi voru og íslenzkum málum öllum. Konungur Danamásetja hér landstjóra, er sé fulltrúi hans og staðgöngumaður með þingi og þjóð á líkan hátt og konungur Breta setur landstjóra yfir Kanada. En að öðru leyti viljum vér skil- yrðislaust vera herrar í voru 'eigin húsi, og ráðaeinir öllum íslenzk- uni málurn. Að því ráðherrafyrirkomulagi, sem nú er,verði breytt í landstjóra- fyrirkomulag á líkan hátt og í Kanada og öðrum löndum Breta, er næsta krafan, sem fylgja verður fram í stjórnmálabaráttu íslands. I þann strengtekur nú eitt helzta blaðið í Reykjavík, Fjallkonan. Annað blað, er sama flokki fylgir, tekur í annan streng. Það er blaðið Norðurland á Akureyri eða einkum einn maður, sem í það ritar, Guðmundur Hannesson, læknir. Hann heldur því fastlega fram, að ekkert stjórnar-fyrirkomulag'sé

x

Breiðablik

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.