Breiðablik - 01.11.1906, Síða 6

Breiðablik - 01.11.1906, Síða 6
90 BREIÐABLIK. land, en eiga að stjórna því og heita herrar, þegar yfirráðin væri eigi orðin nema skug-gi. Að fá danskan prinz fyrir lands- stjóra, búsettan í Reykjavík, gæti verið o-læsileg- tilhug'san. En í vorum huga yrði það að eins tilað draga landið enn betur undir dönsk yfirráð og gjöra enn fleiri íslendinga dansklundaða en nú eru. Það væri læðingur, sem örð- ugt yrði að slíta. Að fá nafni íslands bætt inn í konungs- titilinn danska, sýnist að sumu leyti býsna eftirsóknarvert. Og sumir eru þegar farnir að hlakka til, að það verði náðar- gjöfin, er þjóð vorri verði veitt mildri konungshendi á komanda sumri. En —- timeo Danaos et dona ferentes. Vér hræðumst náðargjöfina þá ! Vér óttumst svo mjög, að enn torveld- ara verði að ná því út aftur. Vér óttt- umst, að með því væri innsigli fengið fyrir ósjálfstæði þjóðar vorrar um ókomn- ar aldir. I Noregi er allmikið talað um ísland og íslenzka stjórnarbaráttu, enda er það ekki að furða svo mikil viðskifti sem nú eru orðin milli landa og svo hlýjan hug sem Norðmenn bera til vor, öðrum þjóð- um fremur. En vér höfum það fyrir satt, að þar sé brosað að því, hve lítilþægir íslendingar sé í kröfum. Þeir verþi himinglaðir, fái þeir ráðgjafa. Þeir haldi, þeir munihim- in höndum taka, fái þeir landstjóra. Alt fari þeir frarn á, nema það að verða frjálsir, sjálfstæðir menn ! Vér efumst um, að nokkur tími verði heppilegri til að fara fram á full- kominn aðskilnað við Dani en einmitt nú. Dæmi Norðmanna, frænda vorra, er öllum minnisstætt. Það hefir vakið von- ir og sjálstæðisþrá smáþjóðanna um heim allan Danir veittu Norðmönnum að málum. Þeir studdu málstað þeirra af alefli bæði með samhug danskrar þjóðar og áhrifum sínum við hirðir annarra landa. Kröfur Norðmanna álitu þeir öldungis réttmætar og þrýstu innsigli sínu á þær með því að gefa þeim danskan prinz að konungi. Hvernig gæti nú sarna þjóð neitað ann- arri smáþjóð, er líkt stendur á fyrir, sama réttar ? Hvernig gæti Danir verið svo óbilgjarnir að neita íslendingum um sjálf- stæði í sömu mund og þeir hafa hjálpað Norðmönnum til að öðlast það ? Konungi Norðmanna gengum vér á hönd í fornöld, en eigi konungi Dana. Rangsleitni tímanna hafði það í för með sér, að vér urðum dönsk hjálenda. Svefni og sinnuleysi var það að kenna, að vér gengum eigi Dönum úr greipum um leið og Norðmenn. Svefni og sinnuleysi verður um að kenna ef íslenzk þjóð öðlast eigi frelsi sitt og sjálfstæði aftur. En hvert er skilyrðið ? Skilyrðið er það, að þjóðin rísi upp öld- ungis samhuga og konii fram með kröfu um algjörðan aðskilnað við Dani. ,,Sú þjóð, sem veit sitt hlutverk, er helg'ast afl um heim, eins hátt sem lágt má falla fyrir kraftinum þeim“. Samhuga þjóð lætur réttlátri kröfu verða framgengt. Réttlátur málstaður og samhuga þjóð, hversu smávaxin sem hún er, og við hve mikið ofurefli seni hún á að etja, hlýtur að bera sigur úr býtum. Löng barátta er að líkindum fyrir hendi þangað til þeirri samheldni er náð. Þjóð, sem svo lengi er búin að vera ósjálfstæð, áttar sig ekki á því í bili, að hún fái stað- ið á eigin fótum. Hún skoðar það sem barnaskap, fífldirfsku, uppreist. En svo er málstaður réttlátur og mála- efni góð, að vekja myndi það aðdáan heims, ef vér hefðum hug til að halda honum fram. Ótal góðir menn um heim allan myndi leggja oss liðyrði í orði og almenningsálitið myndi hvarvetna verða oss í vil.

x

Breiðablik

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.