Breiðablik - 01.11.1906, Blaðsíða 11

Breiðablik - 01.11.1906, Blaðsíða 11
BREIÐABLIK. 95 um á Flug'umýri, er höfundurinn bendir á meö svo mikilli mælsku. Fyrirlestur síra Kristins er um guSfræð- islegt efni, kristilega trúvörn. Það er mikilsvert atriði ogf vel til þess fallið að vera athugað á kirkjuþingi. Höfundur- inn er ungur prestur, en bæði sérlega vel gefinn og vel að sér, eins og þetta erindi hans ber með sér. Það er skipulega framsett og að flestu leyti fast hugsað. Einkum hefir höf. tekist vel með fyrra helming þessa máls, þar sem talað erum mótspyrnuna gegn kristindóminum á öll- um öldum. Oss virðist sem honum muni takastaðfá allan þorrann af lesendum sín- um til að fallast á það, sem þar er haldið fram. En það er þetta: Á öllum öldum hefir þessi mótspyrna verið. Á öllum öld- um hafa andmálsmenn kristindómsins talið sér sigur vísan. Á öllum öldum hefir sagt verið: Nú eru dagar kristinn- ar trúar og lífsskoðunar taldir. Á öllum öldum hefir kristindómurinn birzt sem sigursælt lífsafl, er þróast við mótspyrnu. Og þó hann nái enn þá ekki til allra, hefir hann aldrei seilst lengra út en einmitt nú. Þess vegna er engin ástæða til að æðrast, þó sumir haldi því fram nú, að dagar kristindómsins muni taldir. Síðari hlutinn er um margvíslegar skoðanir innan kristninnar á því, hvað sé kristindómur og hvað það sé, sem eigi að verja. Við lestur fyrra hlutans styrkist eflaust trú margra og þeir komast að þeirri niðurstöðu, að málefni kristindóms- ins standi eigi á eins völtum fæti og oft er geflð í skyn. En við lestur síðara hlutans er hætt við, að annað verði uppi á tening. Þar er grein gjör fyrir sundr- ung þeirri, sem á sér stað í kristninni út af því, hvað eiginlega sé kjarni kristin- dómsins. Og þar er fram á það sýnt, hve fráleitar sé skoðanir allra þeirra, sem ekki álíta sjálfsagt að halda fram óskeik- ulleika ritningarinnar í hverju smáatriði. En þeir, sem það gjöra nú á dögum eru hverfandi stærð í samanburði við hina. Ætti málefni kristindómsins enga veru- lega stuðningsmenn aðra en þá, væri útlitið óendanlega dapurt. Því er haldið fram, að hinir sé allir hálfvolgir miðlun- armenn, er sönnum kristindómi vinni meira tjón en svarnir óvinir. Skyldi þetta geta verið réttur skilning- ur? Skyldi ekki kristindómur hafa stuðn-' ing og fylgi allra þeirra manna, sem treysta og trúa himneskum föður og frels- ara um heim allan? Skyldi eigi allar stefnur innan kristninnar, þar sem trú og tilbeiðsla er í hjörtunum, vera að þjóna lávarði sínum og styðja málefnl hans,hver eftir þeim mæli trúar, sem þeim er gefinn? Munu eigi margir hinna frjálslyndustu guðfræðinga og leikmanna hafa guðs anda í hjarta í jafnríkum mæli og hinir íhaldssömustu? Skyldi þeir þá eigi allir, hver í sínu lagi, vera að leggja fram skerf til að þoka skilningi mannanna á guðlegri opinberan eitthvað áfram? Hvað er það sem á að verja? Er það bókstafur biblíunnar eða andi hennar ? Er það náttúrufræði, ártöl, dagsetning og nöfn ? Eða er það sáluhjálpar atriðin —-kenning Krists og postulanna? Er það skilningur seytjándu aldar guðfræð- inganna á óskeikulum innblæstri hvers biblíuorðs? Eða er það sá kjarni, sem þrýstir sér með valdi sannleikans inn í samvizkur mannanna? Með þessar og þvílíkar spurningar í huga leggur maður bókina frá sér. Þorleifur H. Bjarnason : Mannkynssaga handa ung'liiig'um. Sniðin eftir sö'g’uágrifSi Jóhans Ottosen. Rvk 1905. 160 bls. Verð 60 ct. Þetta er snotur bók, laglega prentuð og að mörgu leyti vel samin. Það er stutt en hentugt yfirlit yfir helztu atriði mannkynssögunnar og efni hverrar blað- síðu sýnt með svörtu letri á spázíum. Ártöl eru látin vera fá og framsetning ljós og aðgengileg. Kverið er ekki nema að nokkuru leyti

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.