Breiðablik - 01.11.1906, Blaðsíða 12

Breiðablik - 01.11.1906, Blaðsíða 12
96 BREIÐABLIK. þýSing, eftir því sem í formála segir, heldur er hér um bil þriðjungi máls bætt við af höf. íslenzka. Þeim mun meiri furða er það, að þar skuli ekki ofurlítið rneira tillit tekið til Islands. Þess er að eins getið, að það hafi fundist af norskum víkingum, en ekkert um lýðveldið, forn- aldarbókmentir vorar, né nokkuð af því, er sýnir, að vér höfum verið í tölu þjóð- anna. Hægt er auðvitað að segja,að vér höfum ekki haft nein slík stórvægileg á- hrif á sögu mannkynsins, að þess sé vert að geta í svo stuttu ágripi. Samt sem áður hafa fornaldarbókmentir vorar haft svo mikil áhrif og merkileg bæði á Norð- urlöndum og Þýzkalandi, að eigi virðist ástæða til að dylja íslenzka unglinga þess. Það er ánægjulegra að geta bent þeim á eitthvað, sent slík smáþjóð hafi af mörkurn lagt til heimsmenningarinnar, heldur en að gefa í skyn nteð þögn, að vér höfum verið öldungis þýðingarlaus stærð, einkum þegar hægt er að gjöra það með sláanda dæmi. Islenzkir sagn- fræðingar mætti ekki apa það eftir út- lendum höf. að ganga fram hjá Íslandí eins og væri það ekki til. Valdimar Briem: Kristin bariiafræði í ljóð- um. Rvk 1906. — bls. 74. Hér er tilraun gjör af góðfrægu skáldi að setja frant í ljóðum efni það,sem kristi- legar barnalærdómsbækur flytja í stuttum málsgreinunt. Þetta nýja kver ber það nteð sér, að stórmikil alúð og vandvirkni hefir verið við það lögð af höf. hálfu. Mikil umhugsan og stórkostleg fyrirhöfn kemur fram á hverri blaðsíðu. Hvert vísuorð er út af einhverri tiltekinni ritn- ingargrein, sem bent er á með feitu letri á spázíum. Kverinu er skift í tvo parta eins og kveri síra Helga Hálfdánarsonar. Fyrri parturinn erurn kristileg trúaratriði, hinn síðari um kristilegar lífsreglur. Hin- um fyrra er skift í 20 smærri, hinum síð- ara í 10 og er hver þessara smákafla ortur undir sérstökum bragarhætti. Báðir eru partar þessir álíka Iangir, hinn siðari ör- lítið styttri. Mikið sjálfsafneitunarstarf hefir þetta hlotið að vera af höf. hendi. Því hér er engin tilraun til að yrkja svo, að erindi fái skáldlegt gildi. Málið má heita lík- ingalaust. Alt er eins óbrotið, látlaust og skiljanlegt, sem mest má verða. Og auðsætt, að syo hefir höf. haft það af á- settu ráði. Honum er að eins um það ant að koma fræðunum fyrir í ljóðum, svo fræðslan verði ekki fyrir það minni. Hvergi í allri ljóðagerð síra Valdimars kemur það betur í ljós,að öll löngun hans er að þjóna lávarði kristninnar með ljóð- gáfu sinni, án tillits til þess, hvort hann fyrir það öðlast nokkurt hrós af mönnum. Ekki mun heldur bók þessi auka skáld- heiður hans, þó hvergi finnist rímgallar né hortittir, enda hefir tilgangurinn verið allur annar. Vér getum ímyndað oss, að sumum unglingum, rnyndi þ)'kja ánægja ntiklu meiri að læra kverið sitt utanbókar í Ijóð- um, og ekki ætti það að vera örðugt. Margir þeirra,sem nú eru farnir að eldast, kunnu eitt sinn langar rímur,spjaldanna ámilli, reiprennandi og hafa munað fram eftir allri æfi. Og með góðri munnlegri tilsögn efumst vér ekki um, að fræðslan geti eins góð orðið og þó lært væri ó- bundið mál. Líklega myndi orðin betur geymast í minni. En svo m)'ndi öðrum þetta erfiðara. Sumir eiga bágt með að skilja skáldskap, miklu lakar en óbundið mál. Freisting yrði öllu meiri til að læra hugsunarlaust. Hræddir erum vér þess vegna um, að menn kunni að verða tregir til að taka upp þetta nýmæli, einkum líka vegna þess, að minni og minni áherzla er lögð á utanbókar kunnáttu. En ýmsum munu ljóðin fögur þykja og margir hinna eldri manna finna unun í að ryfja upp barnalærdónt sinn með því að lesa þau sér til sálubótar.

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.