Breiðablik - 01.12.1906, Blaðsíða 5

Breiðablik - 01.12.1906, Blaðsíða 5
BEIÐABLIK. 105 kennir. Hann á að setja kristi- lega meðvitund barnanna í sam- band við boro-araleo- ætlunarverk o o mannanna. Hann á að halda uppi hugsjón borgaralegs lífs á kristilegum grundvelli fyrir nem- endunum. Til meira má naum- ast ætlast. Samt gjörir kennari við kenn- araskóla öldungis rétt í því að segja kennurum og kennaraefnum, að göfugasta ætlunarverk þeirrar stöðu sé að rita faðir vor í sálir barnanna. Það er göfugasta ætl- unarverk þeirrar stöðu og göfug- asta ætlunarverk sérhverrar stöðu og sérhvers manns. Hvað er trúrækin þjóð? Trúrækin er hver sú þjóð, er lætur sér ant um faðir vor í mannssálunum o? álítur velferð O þjóðlífsins undir því komna,að það sé lifandi samband milli barnsins á jörðu og föðursins á himni. Þar sem faðir vor dvínar í sál- unum, dvína líka d)7gðir og mann- kostir. Framfara viðleitnin verð- ur þar fálm út í myrkur og ófar- sæld. Allar stöður þjóðlífsins eiga að halda því vakandi og lifandi, eng- in í því efni að varpa áhyggjum upp á aðra. Þær eiga þar allar að hjálpast að og styðja hver aðra. Búast mávið,að einstaklingar svo og svo margir skerist þar úr leik. En þegar sagt verður um ein- hverja stétt eða stéttir, að þær sé hér andvígar, er fúi kominn í máttarstólpa þess þjóðlífs. Ekki gætir þess jafnlítið í blaða- mensku nokkurrar kristinnar þjóð- ar svo oss sé kunnugt, að hún sé kristin, eins og þjóðar vorrar. Helztu blöð kristinna þjóða hafa meðferðis, eitt sinn hverja viku að minsta kosti, prédikan, kristilega hugleiðing, skýringar á guðsorði eftirhelztu menn andlegrar stéttar. Og alla daga vikunnar álíta þau kristileg áhugamál einhver hugð- næmustu umræðuefni, þegar þau fyrir rás viðburðanna verða uppi á tening. Þau ganga aldrei fram hjá þeim. Vita sem er, að fá mál önnur fá annað eins bergmál í sál- um mannanna og þau. En vér slítum öllum kröftum í stjórnmálaþrefi. Hvað mörg sem blöðin verða, syngja þau öll við sama tón. Harður fiskur getur verið góð fæða við og við fyrir þá sem vel eru tentir. En skelfing er það þreytandi fæða einvörð- ungu. Hví getur eigi orðið breyting á þessu ? Hví styðja blöð vor eigi betur trúrækni þjóðar vorrar en þaugjöra? Hví vekja þau ekki oftar máls á kristilegum umræðu- efnum ? Finnist þeim,að þjóð vor myndi breyta um til batnaðar með því að hætta að vera kristin, ætti þau að segja það. En finnist þeim það nokkuru skifta, áð þjóð vor haldi áfram kristin að vera, ætti þau þá ekki að hjálpa til að fá faðir vor ritað sem skýrast í sál hennar? Hvorki prestar né kennarareiga

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.