Breiðablik - 01.12.1906, Page 11

Breiðablik - 01.12.1906, Page 11
B R E I Ð A B L I K. 111 matSur og dugflegur og einn þeirra,er eigi láta leiða sig í gönur eöa vefja sér héöin að höfði; við öllu slíku er hann eins lík- Árni Eggertson. legur að sjá og nokkur maður, sem vér þekkjum, því hann er bæði skýr og glöggur. Og þá er hann eigi síður ötull að koma því í framkvæmd, sem hann ætlar sér, og séður að sama skapi. Hann hefir líka almenna tiltrú og hefir sjálfur kunnað að koma ár sinni prýð- isvel fyrir borð á skömmum tíma. Enda munu þeir, er hann þekkja, allir við því búast, að hann verði Islendingum að sóma og gagni í þessari nýju stöðu. Árni Eggertsson er fæddur 8. maí 1873 að Fróðhúsum í Borgarhreppi í Borgar- fjarðarsýslu. Foreldrar hans voru þau Eggert Jónsson, sonur Jóns Árnasonar frá Leirá, dannebrogsmanns, og Sigríðar Jónsdóttur. Til Ameríku fluttust þau með börnum sínuui flestum árið 1887; tvö þeirra munu hafa komið ári síðar. Alls eru þau níu systkini og einn hálf- bróðir. Eggert Jónsson lézt í júní 1897 í íslenzku bygðinni norður við vötn (Nar- rows). Ekkja hans, móðir Árna, nam land í Swan River-bygð og dó í sumar sem leið. Fyrsta ár, sem Árni dvaldi hér í landi, var hann í Selkirk-bæ. Eftir þaðfórhann til Winnipeg og hefir verið hér síðan. Lítinn tíma hafði hann til skólanáms, en árið 1890 gekk hann nokkurn tíma á kaupsýsluskóla. Kveldskólakenslu færði hann sér líka í nyt, þegar hann mátti því við koma. Árið 1895 gekk hann um tveggja mánaða tíma á alþýðuskóla bæj- arins, efsta bekk (standard 8),og fekk þá leyfi til að fara inn á Collegiate-skó 1 ann. En úr því varð ekki, því þá giftist hann og gekk að eiga Oddnýju Jónínu Jakobs- dóttur, dóttur Jakobs Oddssonar og konu hans Sigurbjargar Jónsdóttur af Tjörnesi í Þingeyjarsýslu, bónda í Nýja-íslandi. Hefir þeim hjónum orðið fjögurra barna auðið; eru það þrír drengir og ein stúlka. Eftir að Árni kvongaðist, vann hann að bókhaldi hjáýmsum kaupsýslufélögum í bænum. En fyrir þrem árum tókst hann fasteignasölu á hendur og hefir rekið hana lengst af einn í eigin nafni með þeirri atorku og dugnaði, að fáir menn eru jafnönnum kafnir og hann. S K R í T L U R. 5. Kínversk kurteisi. Útg’efendur um allan heim reyna að vera eins kurteisir og þeim er unt, þegar þeir senda aftur handrit, er þeir vilja ekki láta prenta, en þeir komast ekki í hálfkvisti við austurlenzka kurteisi. Kínverskur útgefandi segfir: ,,Vér höfum lesið ritgjörð yðar með óum- ræðileg’um fögnuði. Vér sverjum það við heilaga ösku forfeðra vorra, að vér höfum aldrei séð svo ágætt meistaraverk. Iíans hátign keisarinn, vor háleiti lávarður, myndi skipa oss, ef vér létum prenta það, að hafa það til fyrir- myndar, og gefa aldrei neitt út, sem eigi væri í alla staði jafn-ágætt. En þar sem vér gæt- um ekki hlýtt skipan þessari oftar en svo sem einu sinni á hundrað þúsund árum, neyðumst vér til að senda yðar guðdómlega handrit aftur og biðjum yður þúsund sinnum fyrirgefningar.

x

Breiðablik

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.