Breiðablik - 01.12.1906, Síða 12

Breiðablik - 01.12.1906, Síða 12
I 12 BREIÐABLIK /P Björkin og stjarnan. Eftir ZACHARIAS TOPELIUS. Þýdd af síra Fridrik Hallgrímssyni. C'YRIR hér um bil tveim öldum voru mikil vandræði á Finnlandi. Það var stríð í landinu, borgir og bæir voru brendir, korniö á ökrunum var troðið niður, og fyrir hungur og morð, flótta og drepsóttir, misti landið meira en hundrað þúsundir barna sinna. Þá heyrðist þar ekki annað né sást, en andvörp og tár, kveinstafir og harmur, aska og blóð; og þeir sem lengst varðveittu vonina, vissu loks ekki, hvaða von þeir ætti að ala, því refsivöndur drottins lá þungt á landinu og þeir tímar gleymast aldrei. Þá kom það þráfaldlega fyrir, að heimili tvístruðust svo, að sumt af heimilisfólkinu var flutt til lands óvinanna, en sumt flýði út í skóga og auðnir eða alla leið til Svíþjóð- ar. Konan vissi þá ekkert um mann sinn eða bróðirinn um systur sína, og foreldrarnir vissu ekki, hvort börnin þeirra væri lífs eða liðin. Og þegar loks varð friður, og þeir sem enn voru á lífi sneru aftur heim, voru þeir sárfáir, sem ekki máttu trega einhvern nákominn ástvin. Eíns og sagt er í sögunni um hina ungu konu Bláskeggs riddara, að hún var alt af að senda systur sína upp í turninn, þar sem sást langar leiðir eftir þjóðbrautinni, og spurði hana svo : ,,Anna systir mín, sér þú nokkurn koma? — Sér þú enn þá engan koma?“ og sjaldan heyrðist annað svar en þetta: ,,Engan, engan“. En stundum kom það líka fyrir,eins og í sögunni um Bláskegg, að langt út á brautinni sást lítill ryk- mökkur, sem færðist óðum nær, og loks sást hópur flóttamanna eða hertekinna, og allir flýttu þeir sér, hver heim til sín. Þá leitaði föður- og móður-augað að börnum sínum; og fundu þau það, sem þau leituðu að eftir skilnaðinn langa og' sára, þá varð meiri fagnafundur en frá verði sagt; bæirnir risu aftur úr rústum, akrarnir komust aftur í rækt, og nýir og betri tímar runnu upp eftir hörmunga- árin. Meðan á stríðinu stóð, höfðu líka lítil systkin, drengur og stúlka, verið flutt langt burtu í ókunnugt land, og þar höfðu þau komist til góðs fólks, sem fór vel með þau. Árin liðu; systkinin litlu döfnuðu vel og höfðu alt, sem þau þurftu; en þau gátu ekki gleymt foreldrum sínum og fósturjörðu. Það fór fyrir þeim eins og Gyðingunum herleiddu í Babýlon, sem hengdu hörpur sínar á greinar trjánna og gátu ekki sungið lofsöng drotni í ókunnu landi, því hjörtu þeirra voru í Jerúsalem. Þegar það fréttist, að ófriðnum væri lokið í Finnlandi,og að allir, sem vilduog gætu,mætti hverfa aftur þangað,þá fengu börnin óyndi í ókunna landinu og þau báðu um,að þeim yrði leyft að fara heim. Fólkið, sem þau voru hjá, hló að’ þeim og sagði: ,,Fara heim, óvitarnir ykkar! Vitið þið, hve langa leið þið yrðið að ganga, ef þið ætluðuð heim ? Meira en hundrað mílur“. ,,Það stendur á sama“, sögðu börnin, ,,okkur langar svo heim“. ,,En eigið þið þá ekki heima hérna? Hér hafið þið föt og fæðu eins og þið þurfið og meira en það, ljúffenga ávexti að borða, mjólk til að drekka, hlý föt, skemtilegt hús og gott fólk, sem elskar ykkur. Hvað viljið þið meira?“ ,,Það vitum við vel“, sögðu börnin, ,,en við viljum samt fara heim“.

x

Breiðablik

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.