Breiðablik - 01.11.1907, Blaðsíða 10
90
BREIÐABLIK
er haldið fram og frekari skýringar gefn-
ar á ýmsum atriðum.
Ekki stendur Campbell einn uppi með
skoðanir sínar á kristindóminum, heldur
eru það skoðanir, sem lengi hafa verið að
ryðja sér til rúms í hugum margra hinna
sterk-trúuðustu manna. Samt sem áður
eiga þær enn fyrir hendi að skýrast og
verða miklu ljósari. En það mun mönn-
um verða skiljanlegra eftir en áður, að
kristileg hugsan má aldrei verða að stein-
gjörfingi, heldur vera stöðugt að brjótast
áfram, til að gjöra sér ljósari grein og
gleggri fyrir lífsskoðan sinni, sem hlýtur
að breytast, eftir því sem þekking mann-
anna vex, þó eðli trúarinnar sé ávalt hið
sama. Á þýzkalandi og í Noregi eru
ýmsir helztu menn lútersku kirkjunnar
nú að tala um sömu efni og Campbell í
ræðu og riti.
FRELSISBARÁTTAN Á RÚSSLANDI.
Þriðja dúman. Alþingi Rússa nefnist
dúma eins og kunnugt er og hafa þegar
tvær verið háðar. Dúman var sett á stofn
til að afstýra uppreistinni þar í landi út af
óstjórn Rússa og hrakförum þeirra fyrir
Japansmönnum. Rússnesku aðalsmenn-
irnir hræddust nýmæli þetta eins og heitan
eldinn. Þeir óttuðust,að þar myndi þjóð-
arviljinn fá að ráða, en það finst þeim öllu
öðru geigvænlegra. Því það muni koma
einkaréttindum þeirra og einvaldsstjórn
fyrir kattarnef. Fyrsta dúman kom sam-
an og þar rættist alt, sem íhalds-og höfð-
ingjaliðið hafði mest kviðið. Þávarhenni
slitið með skyndi. Önnur dúman kom
saman. Öllum varúðareglum hafði stjórn-
in þá fylgt við kosningarnar, sem henni
gátu hugkvæmst og ætlað að tryggja sér
fylgi þingmanna með alls konar ófrelsis
varnöglum. En það fór eins. Sú dúma
varð býsna eindregið þjóðréttindanna
megin og á móti stjórninni; svo var henni
slitið. Þriðju tilraunina er nú verið að
gjöra. Ýmsar frelsisskerðingar hafaverið
gjörðar í sambandi við kosningarlögin, til
þess að sjá um, að þessi þriðja dúma yrði
keisarans megin. En ýmislegt bendir
á, að stjórnin hafi enn verið ofurliði borin
ogað eins ilt kunni að verða fyrirhanaað
ráða við þessa 3. dúmu og systur henn-
ar. Smátt og smátt virðist því Rússland
vera að endurfæðast stjórnarfarslega.
Afturhaldsöflin verða vonandi ekki
nógu máttug til að stöðva frelsis og
framfaraþrá þjóðarinnar. Vér vonum,
að frjálsu þjóðirnar,þar sem þjóðræði fyrir
löngu er sezt að völdum, fái brátt þann
fögnuð að skipa endurfæddri rússneskri
þjóð á bekk með sér.
ÚR HEIMI VÍSINDANNA.
1. Þráðlaus skeyti.
Nýlega var sett á stofn hér í Kanada
Marconi-stöð, sem sendir viðstöðulaust
þráðlaus skeyti yfir Atlanshaf fyrir hálfu
minna gjald en áður. Myndi nú ekki
bræður vorir á íslandi hafa getað látið sér
nægja slíka stöð, sem þeir hefði getað
fengið fyrir hálfu minna fé en sæ-símann?
Vel hefði það að líkindum komið sér fyrir
þá að geta talað við umheiminn með hálfu
minni kostnaði en nú á sér stað. Marconi-
skevti frá Kanada til Norðurálfu kosta nú
nákvæmlega hálfu minna en símskeyti.—
Næsta sporið áfram verður sjálfsagt, að
farið verður að senda þráðlaus telefón-
skeyti. Enda sýnist byrjan þess þegar
gjör í Bandaríkjum í bænum Norfolk í
Virginia,þar sem þess konar tilrauna-stöð
hefir verið reist af vísindamanninum De
Forest. Er þar talað saman þráðlaust og
viðstöðulaust yfir tveggja mílna svæði.
Naumast verður þess langt að bíða, að
sú fjarlægð verði lengd, svo sú uppfundn-
ing er varla langt undan landi. Á her-
skipum, er tilheyra sama flota, á þegar