Breiðablik - 01.07.1908, Blaðsíða 3
BREIÐABLIK
19
in í tvent: Austurlönd og- vest-
urlönd, grísk kaþólska kristni og
rómversk kaþólska. Þeim bar
næsta lítið á milli. Austurlönd
vildu ekki viðurkenna páfann í
Rómaborgf andlegfan einvald allrar
kirkju og- klofnuðu frá. Klofn-
inganir lýstu hver annan í bann
og staðfestu djúp mikið milli sín.
Vesturlöndum fanst bjart sín
megin, en koldimt hinum megin
og austurlöndum eins.
Rómerska kirkjan klofnaði svo
aftur á 16. öld og mótmælenda
kirkjan reis upp. Páfa-kirkjunni
fanst verða dimt í mótmælenda
heiminum og mótmælendur sáu
eigi annað en niðamyrkur í kaþ-
ólskri kristni.
Mótmælendur skiftust í tvent:
lútersk kirkja annars vegar, end-
urbætt kirkja hins vegar. Hvorri
um sigf fanst birtan nokkuð gráleit
hjá hinni og fullkomið sannleiks-
Ijós hvergi í heimi, nema innan
eigin vébanda.
Endurbætta kirkjan brotnaði
sundur í smábrot. Hverju brotinu
fanst birtan lítil nema hjá sér. Þar
skein sól vitaskuld í heiði, þó aðrir
sæi naumast handa-skil.
Óumræðilega verður sú lífsskoð-
an myrk, sem heldur því fram, að
sannleiksljósið skíni að eins örfá-
um mönnum. Hinir allir — allur
hávaði jafnvel upplýstustu manna
heimsins — vaði í villu og svíma.
Ríki ljóssins stöðugt að bíða ósig-
ur, færast saman, en ríki myrkurs
og myrkravalds að sama skapi að
færast út og verða einvalt.
Heimska slíkrar lífsskoðunar er
nú fyrir löngu flestum augljós orð-
in. Kirkjudeildirnar, hvort heldur
stórar eða smáar, eru nú hættar
að tala hver um sjálfa sig sem eina
ljósberann í heiminum.
Menn hafa látið sér skiljast, að
þetta sé lélegur kristindómur, —
ekki til þess vænlegur að gjöra
dýrð drottins meiri, heldur til hins,
að gjöra hana að engu.
Samt eldir eftir af þessu, svo að
furðu gegnir. Lúterska kirkjan
hefir ávalt verið álitin ein hin upp-
lýstasta kirkjudeild, enda er Þýz-
kaland föðurland hennar. Hin-
um nýju biblíufræðum hefir hún
hrundið af stað og er enn í fylk-
ingarbroddi, að því, er til þekk-
ingar og kirkjulegra vísinda kem-
ur.
En til eru brot lúterskrar kirkju,
þar sem hin myrka lífsskoðan
fyrri alda er enn við lýði. Þau
brot eiga helzt hei-ma hér í Vestur-
heimi.
Missouri-menn álíta, að engir
sé lúterskir í öllum heimi, nema
sjálfirþeir og örfáir andlegir bræð-
ur, svo sem til dæmis norskir
sýnódu-menn og aðrir slíkir. Hinir
allir að einhverju leyti fallnir frá.
General Council, önnur höfuð-
deild lútersku kirkjunnar hér í
landi, lítur hornauga til hægri og
vinstri. Dimt finst þeim og lágt
undir loft hjá bræðrum sínum í
Missouri. En gjóstugt og súgsamt