Breiðablik - 01.07.1908, Síða 12

Breiðablik - 01.07.1908, Síða 12
28 BREIÐABLIK Vörum var bylt í búlka, menn kvöddust í skyndi, þung'ar kistur voru dregnar út á skip. Skip lögöu frá landi, sem þegar voru búin. Sigríður stórráða sá, að þau, sem reru upp eftir elfinni, voru sökkhlaðin síld og salti, en þau skip, er stýrt var út á opið haf, voru hlaðin dýru eikartimbri, nautabúðum og skinnum hátt upp eftir möstrum. Þegar drotning sá alt þetta, hló hún af fögnuði. Hún kvaðst gjarnan ganga að eiga Ólaf konung,til þess að fá slíka borg til umráða. Sigríður stórráða reri upp að konungs- bryggju. Ólafur konungvr stóð þar og tók við henni, og er hún gekk til móts við hann, fanst honum, að fegurri konu hefði hann aldrei litið. Fylgdust þau síöan aðuppað konungs- garði og tókst með þeim samhugur mik- ill og vinátta. Og er þau gengu til borðs, hló Sigríður stórráða og talaði við kon- unginn í sífellu, meðan biskup fór með borðbæn,og konungur hló og talaði líka, af því hann sá þeirri stórráðu var það til geðs. Að endaðri máltíð, er allir tóku höndum saman til að hlýða á bæn bisk- ups, tók Sigríður stórráða til að segja konungi frá auðæfum sínum. Hún hélt því áfram, meðan á borðbæn stóð. Og konunguritin veitti orðum Sigríðaráheyrn, en ekki biskups. Konungur leiddi Sigríði stórráðu til hásætis; sjálfur settist hann við fætur henni. Og Sigríður stórráða sagði hon- um, að hún hefði látið brenna tvo smá- konunga inni, er svo djarfir hefði gjörzt að biðla til hennar. Og konungur fagn- aði yfir og hugsaði, að þá leið mætti allir smákonungar fara, er svo fífldjarfir væri að biðla til konu eins og Sigríðar stór- ráðu. Þá hringdi til aftansöngs og konungur stóð upp og ætlaði að ganga til Maríu- kirkju til að biðjast fyrir, eins og hann var vanur. En þá kallaði Sigríður stór- ráða á skáld sitt, og söng hann kvæðið um Brynhildi Buðladóttur, sem lét drepa Sigurð Fofnisbana. Og Ólafur konung- ur gekk ekki í kirkju, en í stað þess sat hann og horfði Sigríði stórráðu í augu; björt voru þau og svartar brúnir boga- dregnar hvelfdust yfir. Þá skildist hon- um Sigríður stórráða vera Brynhildur, og að hún myhdi drepa hann, efhannbrygð- ist henni. Honum rann líka í hug, að víst myndi hún vera sú kona, er gæti látið brenna sig á báli með honum. Og meðan prestar sungu messu og báðust fyrir í Maríukirkju í Konungahellu, sat Ólafur konungur og hugsaðium, að hann vildi ríða til Valhallar með Sigríði stór- ráðu fyrir framan sig á hestinum. Þá nótt var ferjumaður, sem flutti fólk yfir Gautelfi, svo önnum kafinn sem aldrei fyrr. Hvað eftir annað var hann beðinn að koma yfir til hins bakkans, en er hann kom þangað, var þar aldrei neinn. Samt sem áður heyrði hann fótatak nærri, og báturinn varð fullur og nær við að sökkva. Hann reri alla nótt fram og aftur, og vissi ekki, hvað alt þetta átti að þýða. En að morgni voru einlæg smáspor á bakkanum og í þeim fann ferjumaður smálauf, en er hann leit betur eftir, var það lýsigull. Þá þóttist hann skilja, að það væri allir þeir álfar og dvergar, sem flúið hefði frá Noregi sökum kristninnar, er nú hefði horfið heim aftur. En jötunn sá, er bjó í Fortinsfjalli beint austur af Konungabellu, grýtti einni steinblökk á fætur annarri í Maríukirkj- una alla liðlanga nótt. Og ef sá jötunn hefði eigi verið svo sterkur, að steinarnir hefði flogið of langt og alla leið yfir um elfi, þá hefði vissulega mikla óham- ingju að höndum borið. Morgun hvern var það vani Ólafs kon- ungs að ganga í kirkju, en daginn, sem Sigríður stórráða var í Konungahellu, fanst honum hann ekki komast til þess. Er hann var risinn úr rekkju, vildi hann þegar ganga niður til hafnar, þar sem

x

Breiðablik

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.