Breiðablik - 01.08.1908, Qupperneq 3

Breiðablik - 01.08.1908, Qupperneq 3
BREIÐABLIK 35 innar. Hún leitast við að greina sorann frá gullinu í trúarbrögðun- um. Sýnir fram á, hvað sé af mannlegum toga spunnið og- hvað það sé, sem ævarandi sannleiks- g"ildi hefir. Rétttrúnaðarkerfin legfgur hún litla áherzlu á. Þau eru að all-miklu leyti orðin eins og veg'g'ur á milli mannanna og frelsarans. Að svo miklu leyti, sem veggurinn skyggir á Krist, er hann þá rifinn niður. Ekkert, sem skyggir á frelsar- ann og þá guðshugmynd, sem hann gaf mönnunum, getur verið sannleikur. Það hlýtur alt að vera mannlegur misskilningur, hvort sem það kemur fram í ritningunni eða kenningarkerfum kirkjunnar. Með öllum þeim þekkingarskil- yrðum, sem nú eru fyrir hendi, leitast nýja guðfræðin við að gjöra sér grein fyrir, hvað hann sagði og í hverju frelsisverk hans var fólgið. Samróma skoðar hún hann sem uppsprettu hinnar full- komnustu guðsþekkingar, sem til er í heiminum. Hann og orðin hans skera úr, þegar dæma skal um einstök atriði þeirrar guðshug- myndar. Hatin fekk mönnunum ekkert kenningarkerfi. Það hefir myndast í huga þeirra sjálfra. En hann fekk mönnunum guðshugmynd, skýrari og dýrlegri en þeir höfðu áður átt. Hann kendi þeim að þekkja guð sem föður, að umgangast hann sem föður, biðja hann sem föður. Hann leiddi mennina inn í sama samfélag við föðurinn og hann stóð í sjálfur. Lífssambandið við guð,sem veittist fyrir drottin Jesúm Krist, er þungamiðja kristindóms- ins,—hugarfarið hans, lífið hans, fórnin hans. Að þetta sé alfa og ómega, upp- haf og endir alls kristindóms, hefir hin nýja guðfræði látið sér skilj- ast betur en nokkuru sinni áður. Kenningarkerfin, —rétt-trúnaður- inn,hefir verið settur í staðinn fyrir Krist. Hvorttveggja láta þeir víkja fyrir Kristi. Hann er dóm- arinn, prófsteinninn. Það er langt fráþví,að dýrð mannkynsfrelsarans hafi dvínað. Hún margfaldast auðvitað í hugum allraþeirra, sem fórna kirkjulegum erfikenningum, til þess að láta alt lúta Kristi Þegar eitthvað í biblíunni varpar skugga á Krist, verður það ávalt grunsamt. Alt þess konar hlýtur að vera frá mönnunum runnið, en eigi frá þeim guði, sem opinberaði sig í Jesú Kristi. Hann er meiri en Móse, meiri en nokkur spámað- ur eða postuli. Væri þeirra kenn- ing eins fullkomin eins og hans, væri hann eigi lengur langt ofar öllum. Prófessor Eugene MéNécoz í Parísarborg, sá maður, sem nú er ötulastur í að blása nýju lífi í evangeliska trú á Frakklandi, seg- ir nýlega um stefnu nýjuguðfræð- innar : ,,Aðal-einkenni hennar getum vér sagt að sé þetta, að hún gjörir ákveðinn greinarmun milli

x

Breiðablik

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.