Breiðablik - 01.08.1908, Blaðsíða 8

Breiðablik - 01.08.1908, Blaðsíða 8
40 BREIÐABLIK hana miskunarlaust í koll hverjum manni, sem eigi er nákvæmlega sömu skoöunar og hann. Þaö er ófögur sjón og gjörist ófegurri með hverjum degi. Ef enginn sannleikur væri í þessu, dytti þaö niöur sem marklaust hjal, hvaö sem eg og aðrir kunna að segja. En það er svart á hvítu frammi fyrir öllum heimi. Síra Jón er sjálfur meö kirkjulegri frammi- stöðu sinni,að færa fram öldungis óhrekj- andi rök fyrir því, að hann er langmesti trúarofsa-maðurinn, sem nú er uppi í ís- lenzkri kristni. Hver einasta smádeilu- grein,sem eftir hann sézt, ber þess óræk- an vott. Enginn íslendingur, sem nú er uppi, temur sér annan eins munnsöfnuð. Það er því ekki um skör fram, að við sé varað. Trúarofsamennirnir eru hættu- legir. Þeir koma öllu í bál og brand, hvar sem þeir fara. Eg álít það heilaga skyldu mína að vara við þessu. Það er eigi nóg að hafa jábræður kring um sig, sem hrósa öllu upp í eyrun. Sá er vinur beztur, er til vamms segir. Það er kær- leikur í því eins víst og kærleikur var í ádeilum frelsarans til Faríseanna, þó þeim hafi fundist það kaldar kveðjur—kærleik- ur, svo framarlega sannleikurinn sé þar. Engum kemur til hugar að vera vond- ur út af skoðunum síra Jóns, mér allra- sízt. Hann hefir eins mikinn rétt til sinna skoðana og eg til minna. Hann má fyrir mér trúa því, að hvert einasta orð í biblíunni sé innblásið og óskeikult, — og spjöldin líka ■—■ ef hann vill. En hann hefir engan rétt til að úthrópa mig eða nokkurn annan mann, er játar trú sína á frelsara heimsins, sem heiðingja og Júdas. Skoðanirnar eru honum vel- komnar, ef hann vill gjöra grein fyrir þeim með stiltum og sæmilegum orðum. En ofsinn og fyrirdæmingarnar og argvít- ugar nafngiftir eru óhafandi. Enginn kirkjulegur leiðtogi, sem eg þekki í kristn- inni, hvorki hér í Vesturheimi, á Eng- landi, Norðurlöndum,né Þýzkalandi gæti ritað aðrar eins deilugreinar, sem um leið eiga að vera trúvörn, eins og þær, sem eftir síra Jón liggja. Viti einhver annar af einhverjum slíkum, getur hann sagttil. Nú eru liðin að eins átta ár síðan Guð- spjallamál komu út. En hve þau spari- föt hafa slitnað á þeim tíma! Það hefir verið farið svo óvarlega með þau. Það eru komnar á þau stórar glommur og skín í miklu ógöfugri búning innan undir — hversdagsgarmana. Síra Jón stóð þá í eins konar helgibirtu í huga þjóðar vorr- ar um fram aðra menn, er sú bók kom út. En sá helgiglampi hefir dvínað. Hann hefir slökt hann sjálfur. Fyrir það kenni eg í brjósti um hann og margir fleiri. Það hefir verið þroski niður á við, eins og hann sagði um annan Jón. Eg er hon- um ekki reiður,kemur það ekki til hugar. Eg hefi verið að biðja hann,að leggja nið- ur þessa trúvörn, sem honum finst svo yndisleg, af því hún gjörir sparifötin hans — Guðspjallamál — alveg ónýt. Og það er svo sárt að sjá góða flík verða að engu. En eg býst við hann haldi henni áfram. Hann er orðinn of gamall til að læra. Hann um það. En hún er að fara með nafnið hans. Síra Jón segist liafa neitað að taka for- setakosning eftir heils árs umhugsunar- tíma. Það getur vel verið, að hann hafi verið að hugsa í þá átt. Komandi við- burðir varpa stundum skugga sínum inn í hugskot manns löngu áður en fram koma. Bágt eiga víst þeir, sem á kirkju- þingi voru, með að trúa því, að hann hafi verið kominn að sérlega ákveðinni niður- stöðu í þeim efnum, áður hann kom á kirkjuþing. Fyrít er stungið upp á hon- um til forseta. Svo verður þó nokkurt uppihald; menn eru að átta sig. Þá var góður tími til að neita kosningu. En rétt þegar að því var komið, að kosning færi fram, stendur einn þingmanna upp og stingur upp á síra Birni. Fyrst þegar búið var að stinga upp á síra Birni, af- sakar síra Jón sig frá kosningu, Svo fara ýmsir að standa upp og halda því

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.